Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 70
Ragnar Kjartansson talar á You Are in Control. Arnar Jónsson, Halldóra Björnsdóttir og Baldur Trausti Hreinsson ásamt leikstjóranum Svölu Arnarsdóttur. Þau ásamt Agli Ólafssyni og Svandísi Dóru Einarsdóttur koma fram í Hörpu á mánudagskvöld og hylla Einar Benediktsson. Ljósmynd/Hari Alls eru sjö nýjar bækur í tíu efstu sætunum á metsölulista Pennans Eymundsson þessa vikuna. Helstu tíðindin eru þau að Arfur- inn eftir Borgar Jónsteinsson fer beint í fyrsta sæti listans. Þetta er fyrsta bók höfundar og þar dregur hann lesandann að hildarleik heimstyrjaldarinnar síðari og í ferðalag til Argentínu tíunda áratugarins. Gunnar Helgason á fótboltabók í öðru sæti, Gula spjaldið í Gautaborg, og í þriðja sæti er bókin Saga þeirra, sagan mín, eftir Helgu Guðrúnu Johnson, sem er saga þriggja kvenna sem einkennist af sviptivindum og skörpum and- stæðum. Í fjórða og fimmta sæti eru svo bækurnar Nála Riddarasaga, eftir Evu Þengilsdóttur og Nátt- blinda Ragnars Jónassonar. Sænska spennusagan Í innsta hring vermir sjötta sætið en Koparakur, ljóðabók eftir Gyrði Elías- son, stekkur beint í sjöunda sæti. Í áttunda sæti er einnig ný bók á lista, Svart- hvítir dagar, eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur þar sem Jóhanna segir frá upp- vaxtarárum sínum. Nýjasta bók Stefáns Mána, Litlu dauðarnir, fer beint í níunda sæti og verður gaman að sjá hvernig viðtökur hún fær næstu vikurnar. 7 nýjar bækur á topp 10  Ráðstefna You aRe In ContRol í næstu vIku Skapandi fólk sem vinnur þvert á listgreinar Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control (YAIC) verður haldin í Reykjavík í sjöunda sinn dagana 3. og 4. nóvember næstkomandi í Bíó Paradís. Sem fyrr mætast á ráð- stefnunni skapandi greinar; hönnun, tónlist, bókmenntir, tölvutækni, leik- list, kvikmyndagerð og myndlist. Þemað í ár er Skapandi samsláttur (e. Creative Synergy), þar sem áhersla er lögð á verkefni og skapandi fólk sem vinnur þvert á eða milli listgreina og rýnt í hvaða nýju tækifæri er að finna í þessum samslætti. Meðal fyrirlesara eru Christine Boland, sem er fræg fyrir svokallað „Trend Forecasting“ á sviði tísku, hönnunar og neyslumynstri. Banda- ríski tónlistarmaðurinn Zebra Katz sem hefur vakið athygli fyrir að vinna þvert á listgreinar í tónlist sinni. Hann kemur einnig fram á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Nelly Ben Hayoun hefur verið nefnd „Willy Wonka hönnunar og vísinda“. Vala Halldórsdóttir, aðal- ritstjóri QuizUp. Edward Nawotka, ritstjóri og stofnandi Publishing Per- spectives og listamaðurinn Ragnar Kjartansson. Nánari upplýsingar um fyrirlesara og fjölmargar vinnustofur ráðstefnunn- ar má finna á www.youareincontrol.is.  tímamót 150 áRum fagnað með sýnIngu um eInaR BenedIktsson Eitt besta skáld sem álfan hefur átt Í dag, föstudag, eru 150 ár liðin frá fæðingu Einars Benediktssonar skálds og athafnamanns. Afmælinu verður fagnað á ýmsan hátt um helgina og á mánudagskvöldið verður gestum boðið í ævintýraferð um ljóðheima skáldsins, þar sem kvæðin kallast á við myndir, leik, hljóð og tónlist. Einn af þeim sem haldið hefur utan um afmælisdagskrána er Arthúr Björgvin Bollason sem segir skáldið hafa fallið í gleymsku í menningarlegri umræðu í gegnum tíðina. Þ etta hófst nú þannig að forsetisráðherra lofaði tvennu í áramótaræðu sinni um síðustu áramót. Annars vegar að fagna afmæli lýðveldisins og hins vegar 150 ára af- mæli Einars Benediktssonar. Þetta heyrði fjöl- skylda hans eins og aðrir og fór að kanna það hvort það ætti að efna þetta lof- orð, sem kom í ljós að stóð til,“ segir Arthúr Björgvin Bollason, einn skipuleggj- enda dagskrár í tilefni 150 ára afmælis Einars Benediktssonar. „Fjölskyldan fékk það hlutverk að leggja sjálf til hvað væri best að gera. Þetta lendir á borðinu hjá mér og konu minni, Svölu Arnarsdóttur dramatúrg, en Einar var langafi hennar. Fyrst var búin til skýrsla með hug- myndum að því sem ætti að gera og við lögðum til að haldin yrði afmælishátíð og að hús skálds- ins við Elliðavatn yrði gert að húsi ljóðsins þar sem verkum hans yrði haldið á lofti með sýningu eins og gert hefur verið erlendis. Þar sem gestir upplifðu ljóðin á bæði myndrænan og gagnvirkan hátt. Síðan yrði húsið tilvalið til allskyns uppákoma tengdum ljóðum og ljóð- list, við eigum ekkert ljóðahof hér á landi,“ segir Arthúr. „Svo lögðum við til að Einari yrði gerður sá heiður að gera afmælisdag hans, 31.októ- ber, að degi ljóðsins. Sérstaklega með það að leiðarljósi að tengja það verkefni inn í skólana, svo þetta er hugsað sem málræktarátak líka og ég hugsa að það hafi kveikt í fólki á æðstu stöðum því þessi hugmynd hefur fengið góðar undirtektir.“ Á mánudagskvöldið verður haldin Ævintýra- ferð um ljóðheima skáldsins í Norðurljósasal Hörpu þar sem leikarar lesa og leikgera ljóðin undir leikstjórn Svölu. „Þetta verður mikið sjónarspil sem hefur verið unnið af Jóni Agli Bergþórssyni kvikmyndatökumanni og Vigni Jóhannssyni myndlistarmanni og við hugsuð- um þetta sem upptakt að því sem verður hægt að sjá í húsi skáldsins,“ segir Arthúr. „Svala lagði áherslu á það að flestar hliðar Einars yrðu þarna sýndar svo þarna fáum við að sjá eldhugann, athafnamanninn, elskhugann og skáldið Einar. Hann var langt á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir og lífssýn. Hann féll svolítið í gleymsku en útlendingar sem þekkja mikið til í evrópskum bókmennt- um segja hann eitt besta skáld sem álfan hefur átt,“ segir Arthúr Björgvin Bollason. Sýningin Nú heyrist eldhjarta Íslands slá verður í Norðurljósasal Hörpu mánudags- kvöldið 3. nóvember klukkan 20 og er aðgang- ur ókeypis. Þeir sem koma fram í sýningunni eru Arnar Jónsson, Egill Ólafsson, Halldóra Björnsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson og Svandís Dóra Einarsdóttir. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Einar Benedikts- son. 70 menning Helgin 31. október-2. nóvember 2012 Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Fös 7/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 9/11 kl. 13:00 21.k. Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins! Bláskjár (Litla sviðið) Sun 9/11 kl. 20:30 8.k. Þri 11/11 kl. 20:00 Aukas. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k. Sýningin 11. nóvember. verður textuð á ensku. Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k. Fös 21/11 kl. 20:00 24.k. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Lau 22/11 kl. 20:00 25.k. Sun 2/11 kl. 20:00 Aukas. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k. Sun 23/11 kl. 20:00 aukas. Mið 5/11 kl. 20:00 Aukas. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k. Sun 16/11 kl. 20:00 aukas. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k. Fim 20/11 kl. 20:00 aukas. Nýjar aukasýningar komnar í sölu! Gaukar (Nýja sviðið) Fös 31/10 kl. 20:00 11.k. Sun 9/11 kl. 20:00 Lau 29/11 kl. 20:00 Lau 1/11 kl. 20:00 12.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k. Sun 30/11 kl. 20:00 Fim 6/11 kl. 20:00 13.k. Fim 20/11 kl. 20:00 Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur Beint í æð (Stóra sviðið) Fös 31/10 kl. 20:00 Frumsýning Fös 14/11 kl. 20:00 8.k. Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Lau 1/11 kl. 20:00 2.k. Lau 15/11 kl. 20:00 9.k. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Sun 2/11 kl. 20:00 3.k. Sun 16/11 kl. 20:00 10.k. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Þri 4/11 kl. 20:00 4.k. Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Fös 28/11 kl. 20:00 17.k. Mið 5/11 kl. 20:00 5.k. Mið 19/11 kl. 20:00 11.k. Lau 29/11 kl. 20:00 18.k. Fim 6/11 kl. 20:00 6.k. Fim 20/11 kl. 20:00 12.k. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Fim 13/11 kl. 20:00 7.k. Fös 21/11 kl. 20:00 13.k. Forsala í fullum gangi - Frumsýning 31. október Beint í æð – frumsýning í kvöld! HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið Karitas (Stóra sviðið) Fös 31/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 14/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 1/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 15/11 kl. 19:30 13.sýn Fös 28/11 kl. 19:30 18.sýn Fim 6/11 kl. 19:30 8.sýn Sun 16/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 29/11 kl. 19:30 19.sýn Fös 7/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 14.sýn Fim 4/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 8/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 15.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 21.sýn Fim 13/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 22/11 kl. 19:30 16.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 22.sýn Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu. Konan við 1000° (Kassinn) Fös 31/10 kl. 19:30 19.sýn Fös 14/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 33.sýn Lau 1/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 15/11 kl. 19:30 28.sýn Fim 4/12 kl. 19:30 35.sýn Fim 6/11 kl. 19:30 23.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 5/12 kl. 19:30 36.sýn Fös 7/11 kl. 19:30 24.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 6/12 kl. 19:30 37.sýn Lau 8/11 kl. 19:30 25.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 30.sýn Fim 13/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 28/11 kl. 19:30 31.sýn 5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun. Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið) Sun 2/11 kl. 13:00 24.sýn Sun 23/11 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00 26.sýn Sun 30/11 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30 Sun 16/11 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 13:00 Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu. Hamskiptin (Stóra sviðið) Mið 19/11 kl. 19:30 Aukas. Aðeins ein aukasýning í nóvember. Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 1/11 kl. 17:00 2.sýn Lau 15/11 kl. 17:00 4.sýn Sun 2/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 16/11 kl. 20:00 5.sýn Sápuópera um hundadagakonung
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.