Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 68
er komið á kfc fylgirmeð öllum barnaboxum svooogott™ PIPA R \ TBW A • SÍA • 132743 Rogastanz eftir Ingibjörgu Reynisdóttur Fjörug skáldsaga byggð á fjölskrúðugum persónum og atburðum sem eiga sér stað í raunveruleikanum þar sem meðal annars varpað er fram spurningunni um hvenær kynlíf sé kynlíf. Bara ef... eftir Jónínu Leósdóttur Sprenghlægileg saga úr samtímanum sem Jónína skrifar eins og henni er einni lagið. Þetta er saga sem sjónum er beint að því hversu mikið við veljum að horfa í baksýnisspegilinn í daglegu lífi. Litlu dauðarnir eftir Stefán Mána Mögnuð spennusaga þar sem drunginn svífur yfir vötnunum. Stefán Máni sýnir hér á sér nýjar hliðar og skyggnist enn lengra inn í persónur sínar. Svik, leyndarmál og lygar – allt í einni bók. Vonarlandið eftir Kristínu Steinsdóttur Heillandi saga sem segir frá forvitnilegum alþýðukonum sem komu fótgangandi til Reykjavíkur á seinni hluta 19. aldar í von um betra líf. Þær byrja í saltfiski, kolaburði og þvotti og láta ekki sitja við orðin tóm. Kristín sló eftirminnilega í gegn með met- sölubókinni Ljósu. Kata eftir Steinar Braga Kata er saga um kynferðisglæp og eftir- köst hans og nálgast Steinar Bragi við- fangsefnið af því vægðarleysi sem hann er þekktur fyrir. Bókin um Kötu hefur þegar vakið mikið umtal en meðal persóna eru þjóðþekktir Íslendingar sem eru enn á lífi. Kvíðasnillingarnir eftir Sverri Norland Höfundur dregur hér fram frumlega og fjöruga mynd af hlutskipti karla í sam- tímanum, saga drengja sem brátt verða unglingar og svo fullorðnir menn. Þetta er fyrsta skáldsaga Sverris og hlaut hann nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Hafnarfjarðarbrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur Drepfyndin saga fyrir unglinga á öllum aldri um Klöru sem býr í svínastíu í Hafnarfirði sem er skilin eftir hjá ömmu sinni á meðan foreldrar hennar fara til Kanaríeyja. Bryndís hlaut íslensku barna- bókaverðlaunin fyrir bókina Flugan sem stöðvaði stríðið. Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson Ófeigur skaust upp á stjörnuhimin ís- lenskra höfunda með bókinni Skáldsaga um Jón sem fékk Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins. Hér skiptist á fjar- stæðukennt grín og kraftmikil ádeila sem ber vitni um djúpa tilfinningu fyrir íslenskri náttúru og mannlífi. Stundarfró eftir Orra Harðarson Átakanleg saga sem þó er full af leiftrandi húmor og hráslagalegri kaldhæðni. Hér er sagt frá efnilegasta skáldi Íslands sem fimm árum eftir sína fyrstu bók er engu nær um framhaldið. Norðurland kemur mikið við sögu í þessari fyrstu skáldsögu Orra. Segulskekkja eftir Soffíu Bjarnadóttur Ljóðræn skáldsaga um lífsviljann og þá krákustíga sem manneskjan fetar í leit að sátt við eigin tilvist, um unga konu sem fer til Flateyjar til að jarða móður sína. Þetta er fyrsta skáldsaga Soffíu og hefur hún hlotið góðar viðtökur. Drón eftir Halldór Armand Frumleg og óvenjuleg skáldsaga eftir höf- und bókarinnar „Vince Vaughn í skýjunum“ sem fékk mikið lof. Hér segir frá Heiðrúnu Sólnes, efnilegustu knattspyrnukonu landsins, en líkami hennar virðist geta spáð fyrir um dularfullar árásir dróna um allan heim. Mikil breidd í íslenskum skáldsögum Þ að kennir ýmissa grasa í jólabókaf lóðinu sem þeg-ar er byrjað að flæða inn í bókabúðir. Íslenskar skáldsögur njóta alltaf sérstakra vinsælda og fjölmargir sem óska sér einskis heitar en að fá minnst eina íslenska skáldsögu í jólapakkann. Gríðarleg breidd er í efni þeirra skáldsagna sem komið hafa út frá haustmán- uðum eftir íslenska höfunda; við lesum um svik og leyndarmál, al- þýðukonur sem vinna í saltfiski á 19. öld og sprenghlægilega frásögn af lífi tveggja para á tímamótum. - eh Helgin 31. október-2. nóvember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.