Vísbending - 24.12.2012, Side 5
5
Þei, þei! þei, þei!
BENEDIKT
JÓHANNESSON
Sagt er að Bandaríkjamenn dýrki útlaga. Kannski eru það ýkjur, en í Hollívúdd-myndum er skúrkurinn oft í hlutverki hetjunnar sem allir dýrka og dá. Líklegast er þessu ekki mjög
ólíkt farið hér á landi. Fjalla-Eyvindur var útlagi sem sveipaður er
ævintýraljóma. Ekki þarf að deila um að Grettir, Gísli Súrsson og
Gunnar á Hlíðarenda voru hetjur þó að þeir væru drepnir sem sekir
skógarmenn. Hvernig lítur sagan á þá sem nú hafa komist upp á
kant við lögin? Hæstaréttardómari sem er nýhættur störfum segir að
dómstólar dæmi eftir almenningsáliti. Um það er erfitt að fullyrða, en
á því er ekki vafi að Morgunblaðið ætlaði að taka dómara á taugum
þegar það birti forsíðumynd af fimm hæstaréttardómurum, rétt eins
og þeir væru drukknaðir sjómenn. Flestir eru sammála því að dómarar
eigi að dæma að lögum, en stundum er erfitt að sjá hvar lögin enda
og mat tekur við. Fáir virðast átta sig á því að svipuð skylda hvílir
á ákæruvaldinu, engan skal ákæra nema saksóknari telji að hann
verði dæmdur að lögum. Þetta á einnig við um eftirlitsstofnanir. Þær
eiga ekki að beita hæstu sektum sem hægt er að hugsa sér heldur
beita þeim af skynsemi og í samræmi við það brot sem framið er.
Þetta gleymist oft í því þjóðfélagi hefndarþorsta sem Íslendingar
virðast nú hafa búið sér. Viljum við það? Er það markmið að búa til
útilegumenn í óeiginlegum skilningi? Er ekki brýnna að leysa vanda
þeirra sem fóru illa út úr hruninu en hefna einhverra misgjörða eða
glæpa án fórnarlambs? Endurreisnin er komin af stað, en drjúgur
verður síðasti áfanginn.
Eins og áður er efni jólablaðs Vísbendingar fjölbreytt blanda af
fróðleik og skemmtun sem ekki er endilega bundin við viðskipti eða
efnahagsmál. Það er heiður fyrir blaðið að fá að birta ljóðaþýðingar
Hannesar Péturssonar, en þetta er í fyrsta sinn sem þær birtast.
Ásgeir Jónsson rekur hvernig Íslendingar heimtu, og misstu, frelsi
í verslun. Það virðist nánast vera náttúrulögmál að þjóðin tapi
því frelsi og leggi sjálfviljug á sig höft sem hinir bestu menn telja
svo óráð að spretta af. Leiftursóknin var tilraun til þess að segja
þjóðinni fyrirfram að hún þyrfti að færa fórnir til þess að komast
úr kreppu. Það vildi enginn heyra þá fremur en nú. Ísafjörður á sér
merka sögu og þar eru mörg hús sem gætu hvert um sig verið efni í
heilar bækur. Jón Páll Halldórsson, sem lengi var í forystu í atvinnu-
og stjórnmálum bæjarins, segir frá þeim í skemmtilegu viðtali. Á
meðan menn lesa blaðið kemst Golfstraumurinn um 30 kílómetra
nær Íslandi. Gluggagægir er velkominn á jólum en síður á öðrum
árstímum. Í jólalaginu sem fylgir að venju koma álfar, jólasveinar og
Grýla við sögu eins og vera ber því það er gaman á jólum.
Þetta blað er jólakveðja Talnakönnunar og Heims til vina sinna.
Við óskum þeim öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi
árum og þökkum fyrir samskiptin á líðandi ári. V