Vísbending


Vísbending - 24.12.2012, Blaðsíða 25

Vísbending - 24.12.2012, Blaðsíða 25
25 Fúnir húskofar eða fjársjóður Á áttunda áratugnum var þessi látlausa húsaþyrping í eigu Hafnarsjóðs Ísafjarðar og þótt eitt og annað væri geymt í hinum fornu húsum þá höfðu þau ekkert sérstakt hlutverk. Ef gerð hefði verið könnun á viðhorfum bæjarbúa á þessum tíma er ekki víst á hvern veg afstaða þeirra til verndunar eða förgunar húsanna hefði fallið. Sú skoðun að þessir gömlu húskofar tepptu mikilvægar byggingarlóðir átti víða hljómgrunn og duglegir athafnamenn voru þá eins og nú ávallt reiðubúnir með jarðýtuna og gröfuna. En meðal áhrifamanna í bænum áttu gömlu húsin í Neðstakaupstað vini og velunnara sem gerðu sér skýra grein fyrir því að þarna á eyraroddanum var fjársjóður sem óx að verðgildi með hverju ári sem leið án þess að honum væri fargað. Árið 1975 steig bæjarstjórn Ísafjarðar fyrstu skrefin í átt til friðunar en þá voru verslunarhúsin í Neðstakaupstað og íbúðahúsið í Hæstakaupstað friðuð til þess að forða þeim frá eyðileggingu. Tveimur árum síðan hófst svo viðgerð Faktorshússins í Neðstakaupstað en það var verst farið. Það var svo 1978 sem komið var á laggirnar sérstakri húsafriðunarnefnd á Ísafirði. með risaverkefni í fanginu Bæjarstjórnin fól húsafriðunarnefndinni að annast framkvæmd viðgerða á friðuðum húsum. Nefndinni var einnig falið að afla fjár til verksins og má segja að hún hafi þannig fengið þetta risaverkefni í fangið. Húsafriðunarnefndin var skipuð þremur mönnum, tveimur sem bæjarstjórnin skipaði og einum fulltrúa Sögufélags Ísfirðinga. Þetta voru þeir Gunnar Jónsson, oft kallaður Gunnar í Brunabót, og Jón Páll Halldórsson, en þeir voru skipaðir af bæjarstjórn, og þriðji maðurinn var Guðmundur Sveinsson frá Góustöðum, sem var fulltrúi Sögufélagsins. Jón Páll var á þessum tíma forstjóri hraðfrystihússins Norður- tangans sem var einn fjölmennasti vinnustaður Ísafjarðar. Jón Páll var ekki kallaður neitt sérstakt til auðkennis, hvorki kenndur við vinnustað sinn eða foreldra eins og þó var svo algengt á Ísafirði á þessum árum. Kannski var það vegna þess að það var aðeins einn Jón Páll Halldórsson. Frá upphafi var Hjörleifur Stefánsson arkitekt nefndinni til ráðuneytis og má segja að hann hafi vakað yfir verkinu, en hann mældi húsin upp, gerði uppdrætti og verklýsingar. Húsafriðunarnefndin starfaði óbreytt í rúmlega 20 ár og varð mjög mikið ágengt. Eina breytingin sem var á henni gerð var að við fráfall Guðmundar Sveinssonar tók Ásgeir S. Sigurðsson sæti hans. Næstu árin var svo unnið við húsin í Neðstakaupstað eftir því sem fjármunir leyfðu. Árið 1979 og 1990 veitti bæjarstjórn ekkert fé til verkefnisins og þá lágu framkvæmdir niðri bæði árin. 1980 var svo hafist handa á ný. Þá var völundurinn Arnór Stígsson frá Horni ráðinn til starfa við smíðina og starfaði hann að verkinu næstu 20 árin. Jafnframt var Jóni Sigurpálssyni, safnstjóra byggðasafns, falin umsjón með verkinu og framkvæmdum á svæðinu. Viðgerð Faktorshússins lauk 1984 og þá sneru menn sér að Turnhúsinu sem var mjög illa farið eftir áratuga notkun sem saltfiskverkunarhús og þurfti mjög að rétta veggi og endurnýja mikið í húsinu. Sjóminjadeild Byggðasafns Vestfjarða var formlega opnuð í Turnhúsinu á sjómannadaginn 1988. Árið eftir hófst svo viðgerð Tjöruhússins. Þar komu Strandamenn aftur við sögu því Pétur Guðmundsson í Ófeigsfirði vann allan plankavið til viðgerðarinnar úr rekaviði af Ströndum. Framkvæmdum lauk við Tjöruhúsið 1995 og þar er nú einn vinsælasti veitingastaður landsins. Þegar framkvæmdum lauk við Tjöruhúsið var hafist handa við Krambúðina og margvíslegar endurbætur gerðar á henni. Þegar framkvæmdir við verslunarhúsin í Neðstakaupstað höfðu staðið í 16 ár nam kostnaður 15 milljónum á verðlagi hvers árs og hlutur bæjarsjóðs Ísafjarðar var 43%. Annað tókst að fjármagna með styrkjum frá ríkissjóði, Þjóðhátíðarsjóði, Húsafriðunarsjóði og Byggðasjóði. Naut nefndin ómældrar velvildar allra þessara aðila. gömlu húsin setja svip á bæinn Þegar aðkomumaður lítur yfir Eyri við Skutulsfjörð 35 árum eftir að nefndin hófst handa sést fljótlega að eitt af því sem gefur Ísafirði það yfirbragð lítillar stórborgar sem hann hefur eru gömlu húsin. Stolt og prýði Ísafjarðar í dag er vandlega uppgerður Neðstikaupstaður þar sem sjóminjasafn og einn af vinsælustu veitingastöðum landsins í Tjöruhúsinu draga að sér ferðamenn í þúsundatali. Allt hefur áhrif og þótt áminnst húsfriðunarnefnd hafi einungis starfað að endurbyggingu og varðveislu Neðstakaupstaðar þá hafa margvíslegar aðgerðir fylgt í kjölfarið og breytt ásýnd Ísafjarðar til hins betra. Í miðjum kaupstaðnum standa svo tvö hús allgömul verslunarhús frá 1873 og faktorshús frá 1788 sem tilheyra Hæstakaupstað. Bæði þessi hús hafa verið gerð upp og í faktorshúsinu er starfræktur veitingastaður og gisting. Edinborgarhúsið rétt við höfnina, sem áður var vörugeymsla og fiskverkunarhús, hýsir nú upplýsingaskrifstofu, veitingastað og menningarmiðstöð og er sannkölluð bæjarprýði. Gamla sjúkrahúsið, sem Guðjón Samúelsson teiknaði og var byggt árið 1925, hefur fengið nýtt líf. Þar er nú bókasafn, skjalasafn og sýningarsalur og forkunnarfagurt húsið laðar til sín þverskurð af ísfirsku samfélagi dag hvern. Í bláa húsinu við Túngötu ólst upp forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Húsasamstæðan við Hafnarstræti 2 er í svokölluðum Jugend-stíl og gefur miðbæ Ísafjarðar einstakt yfirbragð.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.