Vísbending


Vísbending - 24.12.2012, Blaðsíða 23

Vísbending - 24.12.2012, Blaðsíða 23
23 þjóðfélagsbreytinga sem lögðust illa í landsmenn. Þar mætti nefna þéttbýlismyndun, byggðaröskun og fleiri sviptingar sem fylgdu breyttum atvinnuháttum. Í bók sinni Iðnbylting hugarfarsins heldur Ólafur Ásgeirsson sagnfræðingur því fram með góðum rökum að deilur um byggðamál fremur en stéttabaráttu hafi verið helsta hreyfiaflið í stjórnmálaátökum tuttugustu aldar. Árangur Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni fólst í því að gera íslenska bændur að fríverslunarsinnum og um leið að sjálfstæðissinnum. Með hæfilegri einföldun má líta svo á að íslensk bændastétt undir forystu Jóns forseta hafi gert uppreisn gegn forpokaðri og dansklundaðri embættismannastétt en með viðskiptafrelsi að markmiði. Aftur er með hæfilegri einföldun hægt að halda því fram að önnur „bændauppreisn“ hafi orðið undir forystu Jónasar Jónssonar frá Hriflu gegn dansklundaðri embættismannastétt í Reykjavík en í það sinn gegn fríverslun. Þetta er þó líklega aðeins hluti af sögunni. Engum blöðum er um það að fletta að þeir Jónas frá Hriflu og Jón forseti voru algerlega á öndverðum meiði í efnahagsmálum þó að báðir hafi þeir sótt fylgi til sama þjóðfélagshóps, íslenskra bænda, hverra afstaða til fríverslunar hefur án efa ráðist af samkeppnisstöðu þeirra sjálfra á alþjóðavettvangi. Minning Jónasar lifir í núverandi landbúnaðarstefnu sem enn skýlir býlum landsins fyrir alþjóðlegri samkeppni, en sá vandi Íslands að reka opið markaðshagkerfi á sér þó dýpri rætur. Íslenska krónan – Akkilesarhæll fullveldis? Líklega hafa fáar vestrænar þjóðir snúist jafnhratt og afdráttarlaust gegn markaðsbúskap og Íslendingar, með höftum og bönnum eftir að fullveldi var fengið, og átt í jafnmiklum brösum síðan við að reka opið markaðshagkerfi á eigin ábyrgð, þó að slíkt sé vel þekkt í þriðja heiminum. Það hlýtur að teljast umhugsunarefni af hverju hin frjálslynda lína Jóns í efnahagsmálum varð svo endaslepp á sjálfstæðu Íslandi. Sá sem þetta ritar vill rekja það til þeirrar hörðu glímu sem Ísland hefur háð við að varðveita stöðugleika í efnahagslífi samhliða því að halda landinu opnu gagnvart umheiminum. Í þessari glímu hafa landsmenn mjög farið halloka og viðbrögðin hafa gjarnan verið þau að draga sig út úr alþjóðasamfélaginu til þess að tryggja stöðugleika. Stóran hluta af þessum óstöðugleika má rekja til íslensku krónunnar sem varð að sjálfstæðum gjaldmiðli við stofnun fullveldis árið 1918 og það á sama tíma og alþjóðlegt myntstarf um gullfót steytti á skerjum. Þannig hófst saga gjaldeyrisvandræða og verðbólgu sem staðið hefur óslitið fram á okkar daga. Þessi óstöðugleiki sést vel á þeirri staðreynd að við fullveldi var íslenska krónan jafngild þeirri dönsku en nú þarf 2000 íslenskar krónur (ef myntbreytingin 1980 er tekin með í reikninginn) til þess að kaupa eina danska. Íslendingar voru því aldeilis óviðbúnir að reka eigin mynt og stunda sjálfstæða efnahagsstjórn þegar til átti að taka, nýr grundvöllur að peningamálastjórn í sjálfstæðu myntkerfi var aldrei lagður og árangurinn er eftir því. Sá rauði þráður gengur í gegnum sögu landsins eftir fullveldi að sveiflur í gengi krónunnar hafa truflað utanríkisviðskipti og valdið því að útflutningur er ýmist rekinn með ofsagróða eða miklu tapi. Öllu afdrifaríkara er þó að vandræði í gjaldeyrismarkaði hafa oftlega kallað fram haftaaðgerðir af ýmsum toga og ýtt undir einangrunarhyggju. Sú spurning hlýtur að vakna hvort Ísland sé of lítið efnahagssvæði til þess að gefa út sína eigin mynt. Það má sem best sjá Jón forseta fyrir sér þar sem hann tekur það mál fyrir í stíl Nýrra félagsrita og leiða til þeirrar óhrekjanlegu niðurstöðu að alþjóðleg myntsamvinna henti landsmönnum mun betur en sjálfstæð mynt. Í huga hinna klassísku hagfræðinga, sem Jón sótti sína þekkingu til, hafði sjálfstæði í peningamálum takmarkaða þýðingu og átti alls ekki að misnota með því að gengisfella gjaldmiðla. Mestu máli skipti að peningar héldu föstu verðgildi, að þeir trufluðu ekki viðskipti og að verðbólga yrði ekki til að færa peninga úr einum vasa í annan. Ísland tók upp gulltryggingu árið 1873 sem hluti af danska myntkerfinu og varð síðan hluti af Norræna myntbandalaginu tveimur árum síðar. Hvorki Jón Sigurðsson né nokkur annar af leiðtogum sjálfstæðisbaráttunnar leit á sjálfstæða mynt og/eða sjálfstæða peningamálastjórnun sem fullveldismarkmið í sjálfu sér. Ekki verður annað séð en að landsmenn hafi verið ákaflega sáttir við aðild sína að þessu myntbandalagi og hafi ætlað sér að vera þar áfram sem fullvalda þjóð. Jafnvel má álíta að andvaraleysi þeirra í peningamálum eftir fullveldi megi rekja til þess að þeir hafi tekið myntbandalagið sem gefið. En hið skandinavíska myntbandalag leystist upp eftir stríðið 1918 og uppbrot þess skildu landsmenn eftir veglausa í myntmálum. Og veglausir eru þeir enn. Frá fundi við Miðbæjarskólann í Reykjavík í upphafi 20. aldarinnar. Íslendingar börðust harkalega fyrir frelsi þjóðarinnar en óttinn við viðskiptafrelsi kemur upp aftur og aftur, og birtist þá sem hagsmunagæsla, verndarstefna, þjóðremba, lýðskrum eða eitthvert afbrigði af hugmyndafræði sem hampar jafnrétti og bræðralagi í því skyni að réttlæta frelsissviptingu til athafna. V

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.