Vísbending - 24.12.2012, Page 6
6
LEIFTuRSÓKNIN
– SJáLFSTæðISmENN LEggJA FRAm
SKýRA KOSNINgASTEFNu
Í
október 1979 sprakk skammlíf vinstri stjórn Ólafs
Jóhannessonar og skömmu síðar var boðað til kosninga í
desember. Skoðanakannanir bentu til þess að sjálfstæðismenn
ynnu stórsigur, en minna varð úr þeim sigri en þeir vonuðust
til. Margir kenndu kosningaplaggi flokksins um. Titill þess þótti
glannalegur: Leiftursókn gegn verðbólgu. Innihaldið var líka róttækt
að ýmsu leyti. Nýstárlegustu hugmyndirnar snerust um frelsi í
viðskiptum. Þær urðu flestar að veruleika árin og áratugina á eftir
og vöktu þá yfirleitt ekki miklar deilur. Eftir á að hyggja virðist
helst mega efast um að áætlunin hefði dugað til að ráða niðurlögum
verðbólgunnar – þrátt fyrir nafnið.
Aftur viðreisn eftir vinstri stjórn?
Um miðjan október tók Benedikt Gröndal við embætti for-
sætisráðherra. Hann stýrði minnihlutastjórn Alþýðuflokks, sem tók
við af stjórn þriggja flokka: Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks. Sjálfstæðismenn studdu minnihlutastjórnina, sem
skyldi sitja fram yfir kosningar. Marga sjálfstæðismenn dreymdi um
að sagan væri að endurtaka sig. Svipað mátti raunar segja um marga
Alþýðuflokksmenn líka. Árið 1958 studdi Sjálfstæðisflokkurinn
minnihlutastjórn Alþýðuflokks eftir að vinstri stjórn sprakk. Þetta
varð upphafið að samstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnarstjórninni, langlífustu stjórn Íslandssögunnar til þess tíma,
en hún sat í tæplega tólf ár. Með fyrstu verkum hennar var að gefa
innflutning frjálsan að miklu leyti.
Vorið 1978 hafði stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarmanna
hrökklast frá völdum eftir mikinn kosningaósigur flokkanna beggja.
Verra var þó í huga sjálfstæðismanna að þeir misstu meirihluta
sinn í borgarstjórn Reykjavíkur, sem þeir höfðu haft frá stofnun
flokksins, 1929. Í kjölfarið urðu harðar umræður í flokknum um
stefnuna, ekki síst meðal ungra manna. Stjórninni sem sat 1974-
1978 hafði ekki tekist að kveða niður verðbólguna. Hún þokaði
engu um mikil afskipti ríkisins á ýmsum sviðum. Ríkisstofnanir
ákváðu enn verð á vörum og þjónustu og vexti í lánasamningum.
Lögboðnir vextir voru langt undir verðbólgu. Ekki mátti kaupa
gjaldeyri á frjálsum markaði. Stjórnin stóð fyrir mislukkaðri
fjárfestingu í Kröfluvirkjun, en þar fannst ekki næg gufa þegar
ræsa átti aflvélarnar, sem búið var að setja upp. Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, sagði um þetta árið
1979: ,,Þegar farið er yfir þingmál Sjálfstæðismanna frá 1974 til
1978, kemur í ljós, að þar kennir ekki margra grasa, er bent geti til
þess, að þingmenn flokksins hafi á löggjafarsamkundunni unnið að
framgangi sjálfstæðisstefnunnar. Þingflokkurinn var ekki tilbúinn
til þess að berjast fyrir breytingum á efnahagskerfinu á grundvelli
frjálshyggjunnar.“ i
Var markmiðið kannski bara pot í þágu sérhagsmunahópa?
Þorsteinn segir frá fyrirgreiðslustjórnmálamanni sem lagðist alltaf
gegn sálfræðingum á opinberum vettvangi. Þannig vildi hann
leggja áherslu á ,,hægri viðhorf“. En jafnframt var það vinnuregla
hans að sinna beiðnum allra sem leituðu til hans. Sálfræðingar
sem fóru á hans fund fengu að sjálfsögðu úrlausn sinna mála.ii Um
Kröfluvirkjun segir Þorsteinn: ,,[Hún] sýndi, að Sjálfstæðismenn
voru reiðubúnir til þess að nota aðgang sinn að almannafé í því
skyni að reisa sér minnisvarða sem einstaklingum án tillits til
arðsemi ... Ríkisstjórnin verður ekki nema að takmörkuðu leyti
sökuð um þau tæknilegu mistök, sem þarna urðu. Kjarni málsins
er sá, að Kröfluvirkjun var og er fjármálalegt ævintýri burt séð frá
gufuleysinu.“ iii
Annar ungur sjálfstæðismaður, Davíð Oddsson borgarfulltrúi,
lét orð falla í svipaða átt: ,,Sjálfstæðisflokkurinn stóð ekki gegn
gegndarlausri opinberri fjárfestingu í síðustu ríkisstjórn. Hann stóð
að henni.“ iv
Davíð fjallaði um sigur Alþýðuflokksins í kosningunum
1978, sem var ekki síst sigur hægri krata: ,,Hvers vegna sveigja
Alþýðuflokksmenn sig svo að stefnu sem öll lögmál segja að
Sjálfstæðismenn hljóti að berjast fyrir? Þeir skynja að hrein
sjálfstæðisstefna, frjálshyggja, hefur sjaldan átt meiri hljómgrunn
með þjóðinni en nú ... Alþýðuflokkurinn vann stórsigur þegar hann
lét greipar sópa um mörg eiginleg baráttumál Sjálfstæðisflokksins.“
SIguRðuR
JÓHANNESSON
HAgFRæðINguR