Vísbending


Vísbending - 24.12.2012, Síða 11

Vísbending - 24.12.2012, Síða 11
11 V ið Mývatn á Norðausturlandi er ein af fegurstu og búsældarlegustu sveitum á Íslandi. En sé haldið í suðurátt, upp á hálendið, tekur auðnin fljótlega við; þar eru hrikaleg öræfi með fjöllum, eyðisöndum og hraunflákum. Þar er Ódáðahraun, stærsta samfellda hraunbreiða á Íslandi. Þetta landsvæði var að mestu ókannað fram undir miðja 19. öld. Lék um það dulúð öldum saman og alþýðutrú kvað það íverustað trölla og óvætta, og ekki síst útilegumanna, sakamanna sem flúið höfðu undan réttvísinni. Reykjarstróka, sem stundum sáust ofan af öræfunum, töldu menn koma frá Dyngjufjöllum í miðri auðninni. Hugðu margir að þeir væru frá býlum útilegumanna sem leyndust í afviknum en blómlegum huldudölum í grennd við fjöllin. Árið 1830 ákváðu Mývetningar að rannsaka hvort útilegumenn væri raunverulega að finna á öræfunum. Kveikjan að ferðinni var slæmar heimtur á sauðfé um árabil. Þegar fé skilaði sér ekki með eðlilegum hætti af fjalli á haustin höfðu bændur tilhneigingu til að kenna útilegumönnum um það. Sennilegt þótti að þeir hefðu stolið úr hjörðunum sér til viðurværis. Fimm bændur voru í hópnum sem sendur var í rannsóknarferðina, allt karlmenn á besta aldri. Voru þeir vopnaðir byssum, bareflum og stórum sveðjum, enda var talið að um hættuför gæti verið að ræða. Ekki höfðu bændurnir árangur sem erfiði. Þeir sneru heim nokkrum dögum seinna eftir að hafa riðið umhverfis Dyngjufjöll og höfðu ekki rekist á neina útilegumenn. Ekki höfðu þeir heldur fundið neinar stöðvar þeirra. Þessi ferð bændanna kann að þykja gefa tilefni til að kíma yfir trúgirni og einfeldni íslensks sveitafólks fyrr á öldum; það hafi lifað sig inn í heim þjóðsagnanna og látið þjóðtrúna og ímyndunaraflið ná tökum á sér í stað þess að beita rökhyggju sem leiddi mönnum fyrir sjónir hve ósennilegt það væri að útilegumenn gæfu lifað á öræfunum. Óþekktur samtímamaður orti um ferð Mývetninga vísu sem varð fleyg. Álitamál er hvort telja bera hana háð eða lof. Mývatns horsku hetjurnar herja fóru á Dyngjufjöll, sverð og byssu sérhver bar, að sækja fé og vinna tröll. Ekki er að efa að hefðu bændur og aðrir leitarmenn að jafnaði hætt sér lengra inn á afrétti hálendisins en þeir treystu sér til á þessum tímum, hefðu fjárheimtur þeirra orðið mun betri. Stundum lendir fé í sjálfheldu í fjallshlíðum og klettum og komi menn því ekki til bjargar er voðinn vís. Reykur er ekki örugg vísbending um mannabyggð, allra síst á Íslandi, þar sem náttúrulegir reykir eru margvíslegir, meðal annars frá heitum hverum. Hugmyndir um blómlegar huldubyggðir á hálendinu hlutu líka að vera ótrúverðugar þegar horft var til þess að þar eru veður jafnan ódælli en á láglendi og hitastig lægra. En útilegumannatrúin á Íslandi, sem að líkindum var nokkuð almenn frá því snemma á öldum og fram í byrjun tuttugustu aldar, var þó hvorki alveg tilefnislaus né hreinn hugarburður. Jafnvel þótt hafnað sé öllum hinum vinsælu og litríku þjóðsögum um útilegumannabyggðir í afskekktum dölum verður ekki framhjá því horft að til eru raunveruleg og skjalfest dæmi um menn sem lögðust út á þessum tíma, stálu fé, rændu ferðafólk og gátu verið ógnun við friðsælar sveitir. Ýmis mannvirki, sem fundist hafa í hellum og á öðrum stöðum fjarri byggð, bera þess ótvíræð merki að þar hafi menn dvalist um lengri eða skemmri tíma. Þess eru ennfremur nokkur dæmi að bændur hafi safnað liði til að handsama útilegumenn – og haft þá með sér til byggða. Ferð bændanna úr Mývatnssveit upp á öræfin árið 1830 var því ekki einsdæmi – að vísu var hún farin til að leita ÍSLENSKIR úTILEgumENN: ÞJÓðTRúIN Og vERuLEIKINN um aldir var það útbreidd trú á Íslandi að í huldudölum á öræfunum leyndust blómlegar byggðir útilegumanna. Dæmi eru um að bændur hafi vígbúist og riðið til fjalla að leita að stöðvum útilegumanna. Þokunni yfir þessum leyndardómsfullu stöðum létti ekki fyrr en með kortlagningu hálendisins á 19. öld. guðmuNDuR mAgNúSSON SAgNFRæðINguR

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.