Vísbending - 24.12.2012, Page 18
18
vÍSBENDINg áRSINS 2012
Vísbending var á flugi allt árið og flestir af fremstu hagfræðingum þjóðarinnar fjölluðu um
efnahagsvandann og lausnir á honum. En greinarhöfundar héldu sig ekki bara við þetta efni heldur
var blaðinu fátt mannlegt óviðkomandi.
Stundum voru greinar á heimspekilegum nótum:
Margir töluðu um að Íslendingar hefðu dregist aftur úr
nágrannaþjóðum:
Verg landsframleiðsla á mann í löndunum tveimur [Íslandi og Danmörku] er álíka
mikil, að teknu tilliti til verðlags, en Danir þurfa mun færri vinnustundir hlutfallslega til
að ná sinni landsframleiðslu, þótt Danir njóti ekki góðs af náttúruauðlindum með sama
hætti og Íslendingar. Það getur vart verið óhugsandi að Íslendingar geti náð Dönum að
þessu leyti, a.m.k. virðist það hvorki óraunhæft né óeðlilegt markmið. Það myndi skila
miklum hagvexti hérlendis.
Hagvöxtur á 21. öldinni, Gylfi Magnússon, 37. tbl.
Stefnan er að vernda íslenska framleiðslu, þó að hún sé dýrari og jafnvel lakari. Þess
vegna setti ugg að mörgum þegar farið var að tala um vínræktarbændur undir Eyjafjöllum.
Menn sáu fyrir sér að Guðni og Jón Bjarnason myndu banna óþjóðlega drykki í ÁTVR.
Því var það léttir þegar í ljós kom að um var að ræða venjulega landaframleiðslu.
Laga bændur sig að aðstæðum? 48. tbl.
Í fyrsta blaði ársins birtist þessi spá
sem rættist:
árið 2012 verður skárra en undanfarin ár
ef þessi spá gengur eftir. Verðbólga og
atvinnuleysi minnka, hagvöxtur verður
nokkur og kaupmáttur vex. Hins vegar
er ríkið enn rekið með halla og skuldir
þess aukast nema það selji eignir.
Verður 2012 gleðilegt ár? 1. tbl.
Þó að sumir stuðningsmenn stjórnarflokkanna kunni að hugsa
gjaldið sem refsingu fyrir það fólk, sem hefur leyft sér að efnast á
útgerð, er hitt vonandi markmið fleiri að sett sé auðlindarenta sem sé
sanngjörn og viðráðanleg fyrir útgerðina til frambúðar. Í ljósi þess er
óskiljanlegt hvers vegna sett er fram svo flókið kerfi, en reyndar hafa
flestar aðgerðir stjórnarflokkanna í skattamálum borið þess merki að
ráðgjöf þeirra hefur byggst á heimspekinni: Warum einfach, wenn
man es komplizert machen kann?
Gull í greipar Njarðar, 25. tbl.
Heimspekingurinn Karl Popper fjallaði eitt sinn um „óendanleika
heimskunnar,“ að við gætum aldrei vitað allt og þess vegna má segja
að því meira sem maður er upplýstur því heimskari áttar maður sig á
að maður sé.
Velmenntuð þjóð? Eyþór Ívar Jónsson, 28. tbl.
Sérhverjum foringja, hvort sem hann er í stjórnmálum eða rekstri,
er nauðsynlegt að eiga ráðgjafa sem þorir að segja sannleikann. Þegar
slíkan vin vantar er fallið skammt undan.
Hvers vegna tapa leiðtogar hæfileikunum? 21. tbl.
Öllum sanngjörnum mönnum hlýtur að vera ljóst að valdið
getur ekki færst milli handhafa með öðrum öruggum hætti en með
handabandi við enda á farangursrana á flugvelli.
Höldumst hönd í hönd, 33. tbl.
Það er hins vegar vel þekkt að kyrrstaða ríkir aldrei til eilífðar á
smásölumarkaði og þess er skemmst að minnast þegar blóðugt
verðstríð geisaði á matvörumarkaði sem endaði með miklu
rekstrartapi smásala og síðar sektum af hálfu samkeppnisyfirvalda.
Það er óvíst að marga fýsi í sama leikinn aftur.
Er okur á Íslandi? Hermann Guðmundsson, 30.tbl.
Jónas var afar skýr og skipulegur ræðumaður.
Hann gat haldið langa fyrirlestra blaðalaust
og talið upp hvert einasta atriði sem máli
skipti. Hann hafði sjálfur miklar áhyggjur
af því hve rökræðum hefði hrakað meðal
stjórnmálamanna.
Merkasti hagfræðingur Íslands? 7. tbl.
Jónas Haralz
hagfræðingur lést á
árinu. Hann hafði komið
að hagsögu landsins í
meira en 65 ár.
Ein birtingarmynd siðrofs er skapandi lögskýring. Með skapandi lögskýringu
varðandi löggjöf á fjármálamarkaði er átt við að reglur séu túlkaðar að þörfum
fjármálafyrirtækis. Það kann að vera til að auka á umsvif og arðsemi þess en kann
jafnframt að auka áhættu í rekstri þess.
Siðrof í samfélaginu, Vilhjálmur Bjarnason, 36. tbl.
Málið sýnir hve erfitt var að fjalla um staðreyndir í óðagotinu fyrir hrun og er jafnvel
enn. Það spillti fyrir fréttaflutningnum að blaðamenn gáfu sér ekki tíma til þess að fá
traustar heimildir.
Er partíið búið? 41. tbl.
Hrunið og aðdragandi þess var greinarhöfundum hugleikið: