Vísbending - 24.12.2012, Blaðsíða 29
29
Þ
að fer því ekkert lítilræði af vatni í Golfstrauminn, 150 milljón
rúmmetrar á sekúndu. Það er 140 sinnum meira vatn en í
öllum ám sem renna í Atlantshafið á sama tíma, austan hafs
og vestan. Orkan, hitinn sem Golfstraumurinn flytur norður, er
1,4 petawött (1015 W) sem er 100 sinnum núvarandi orkuþörf jarðarbúa.
Golfstraumurinn gerir Ísland og Noreg byggileg lönd. Hitastigið er
mun hærra en á stöðum sem liggja jafnnorðarlega en njóta ekki ylsins
frá þessum heita straumi. Hann sveigir frá Norður-Ameríku, á 40. gráðu
norður, rétt sunnan við Nýfundnaland, og heldur vestur eftir, þar sem
hann klofnar í tvennt: Annar állinn rennur norður til okkar, norður
fyrir Noreg, og til Bretlands, meðan hinn heldur suður og rennur með
vesturströnd Afríku. Hann einn og sér er stærsti sköpunarkraftur Sahara-
eyðimerkurinnar.
Golfstraumurinn nær að hringa Ísland og hækkar sjávarhita hér mjög
mikið miðað við legu landsins, heldur hafís í burtu, en berst með kalda
Austur-Grænlandsstraumnum frá pólnum og langt suður í Atlantshaf, rétt
vestan við Ísland. Labrador í Kanada sem liggur á sömu breiddargráðu
og Ísland, nýtur ekki ylsins, enda er landsvæðið nær óbyggilegt sökum
hafíss og kulda.
Meðalárshiti í Grímsey er um 3°C, sjávarhitinn er heilum tveimur
gráðum hærri á ári, þökk sé Golfstraumnum. Kaldastur er sjórinn í mars,
1°C, og hlýjastur í ágúst, 9°C. Heldur hlýrra er sunnanlands, sjávarhitinn
er lægstur í janúar, 4,5°C, og mestur í ágúst, 11°C.
Frá Key West, þar sem Golfstraumurinn hefur langferð sína, að
Reykjanestá eru 6111 km. Það tekur hann því 679 klukkustundir, einn
febrúarmánuð, eða 28 daga að ná Reykjanestá.
... að suðurströnd Íslands.
V