Þjóðlíf - 01.10.1987, Síða 22
ERLENT
Arangursrík
heimsókn
Honecker
í Vestur-Þýskalandi
HEIMSÓKN ERICHS Honeckers til V-
Þýskalands 7.-11. september sl. markar án
efa tímamót í samskiptum þýsku ríkjanna.
Þetta er í fyrsta sinn sem austur-þýskur
þjóðarleiðtogi heimsækir landa sína vestan
megin við múrinn. Ráðamenn í Bonn voru
að vísu búnir að vara við því að menn byndu
alltof miklar vonir við þessa heimsókn og
það var vitað, að hún yrði engan veginn til
þess að leysa allan sambúðarvanda Austur-
og Vestur-Þjóðverja. Hins vegar er það talið
vera stórt spor í rétta átt, að leiðtogar ríkj-
anna tveggja skyldu koma saman og ræða
málin í bróðerni. Tveir kanslarar jafnaðar-
manna, Willy Brandt og Helmut Schmidt,
sóttu Erich Honecker heim á árum áður og
Schmidt bauð Honecker í heimsókn til V-
Þýskalands fyrir sex árum. Það var hins vegar
ekki fyrr en nú að Honecker sá sér fært að
þjggja þetta boð, enda hefur sambúð ríkj-
anna verið stirð á síðustu árum.
Árangurinn af viðræðum Kohls og
Honeckers varð mun meiri en flestir höfðu
þorað að vona. Þrír sáttmálar voru undir-
ritaðir milli ríkjanna, þar sem lögð eru drög
að samstarfi þeirra á sviði umhverfisverndar,
• Helmut Kohl, kanslari
V-Þýskalands.
geislavarna og tækni og vísinda. Jafnframt
komu leiðtogarnir sér saman um, að A-
Þjóðverjar losuðu um ýmsar hömlur, sem
ríkt hafa á landamærum ríkjanna. Frá og
með 1. nóvember er ferðamönnum heimilt
að hafa með sér vesturlensk sérfræðitímarit
inn í A-Þýskaland, en til þessa hefur allt
• SamanburðurtímaritsinsTimeá lífskjörum í
Vestur- og Austur-Þýskalandi
LIFSKJÖR
Austur-
Þýskaland
prentað mál að vestan verið bannvara eystra.
Sömuleiðis verður fólki framvegis leyft að
hafa með sér snældur í farteskinu, svo
framarlega sem efni þeirra stangast ekki a
við „hagsmuni sósíalismans“. Jafnframt er
aflétt banni á lyfjum, sem fólk hefur fengið út
á vestur-þýska lyfseðla, en til þessa hafa
menn orðið að leggja fram lyfseðla fra
austur-þýskum læknum, ef þeir hafa viljað
flytja meðöl austur yfir. Auk þess mun
Honecker hafa gefið Helmut Kohl vilyrðt
fyrir því að veita ungum Austur-Þjóðverjum
aukin tækifæri til að heimsækja landa sína i
vestri. Heimsóknum ungs fólks að austan
hefur reyndar fjölgað til muna á allra síðustu
árum. Til marks um það er sú staðreynd, að a
þessu ári munu um 1,2 milljónir Austur-
Þjóðverja undir ellilífeyrisaldri heimsækja
Vestur-Þýskaland, sem er umtalsverð aukn-
ing frá því sem verið hefur. Ellilífeyrisþegaf
hafa hins vegar lengi notið þeirra forréttinda
að mega dvelja fyrir vestan fjórar vikur á an-
Almennt er talið, að báðir aðilar geti verið
ánægðir með heimsókn Honeckers, þrátt
fyrir að ekki séu líkur til að Austur-Þjóð-
verjar hætti að skjóta á flóttamenn á landa-
mærum ríkjanna og Berlínarmúrinn verð>
tæpast jafnaður við jörðu í bráð. Honeckef
bauð Helmut Kohl í opinbera heimsókn ti
Austur-Þýskalands og líklegt er talið, 3
Kohl muni heimsækja austur-þýska A
þýðulýðveldið einhvern tíma á næsta ári. PaC
er því von manna, að heimsókn Honeckers
leiði til þess, að ríkin taki upp reglubundm
samskipti, sem tímælalaust eiga eftir að slaka
á spennunni og koma íbúum beggja lan
anna til góða.
• Arthúr Björgvin Bollason
20