Þjóðlíf - 01.10.1987, Blaðsíða 26
Klámdrottningín
áþing
Skandall (?) á Ítalíu
I ÍTÖLSKU þingkosningunum í júní var kos-
in á þing kona að nafni Iiona Staller - at-
burður sem hefði ekki sætt neinum tíðindum
nema vegna þess að umrædd Ilona er klám-
drottning mikil, hefur „leikið“ í fimm klám-
myndum og fimm myndböndum af grófari
gerðinni. Ilona var kjörin ein af 14 þin-
mönnum Radikala flokksins, sem er nú
sjöundi stærsti flokkur Ítalíu. Radikala-
flokkurinn bauð fyrst fram árið 1976 og fékk
þá tvo þingmenn. Hann hefur alla tíð notað
mjög óvenjulegar aðferðir til að vekja athygli
á sér og málstað sínum, sem felur m.a. í sér
baráttu fyrir rýmkun laga um skilnaði,
getnaðarvarnir og fóstureyðingar. Þetta síð-
asta tiltæki flokksleiðtoganna þykir þó slá
allt annað út - og hefur einnig orðið til þess
að konur hafa flúið flokkinn í hrönnum.
Ilona Stallererfædd árið 1951 ogerþví36
ára gömul. Hún er reyndar ungversk að upp-
runa og munu foreldrar hennar hafa verið
sterkefnaðir. Hún lagði stund á læknisfræði
við háskóla um tíma en hætti námi og gerðist
ljósmyndafyrirsæta. Hún giftist manni af
ítölsku þjóðerni og ílutti með honum til
Ítalíu. Þar tók við „framaferill" hennar sem
klámdrottningar. Árið 1976 var útvarps-
rekstur gefinn nær frjáls á Ítalíu og lá þá við
að nær annar hver maður ræki eigin útvarps-
stöð. Ilona Staller tók við talþætti á Radio
Luna þar sem hún klæmdist við gesti og
gangandi undir nafninu Cicciolina, en það
nafn mætti kannski þýða sem kynþokkaver-
an. Hún varð landsfræg fyrir þessa þætti sína.
Hún lék í fimm klámmyndum eins og áóur
sagði og fimm voru teknar á myndbönd þeg-
ar yfirvöld fóru að blanda sér í málin af vel-
sæmisástæðum.
Cicciolina gekk í Radikalaflokkinn á síð-
asta ári. í kosningabaráttunni kom hún ávallt
fram berbrjósta og hélt á bleikum bangsa.
Kosningabaráttann þótti daufleg - þar til hún
geystist fram á sjónarsviðið.
Nýverið birtist viðtal við hina nýju þing-
konu í breska tímaritinu The Face. Viðtalið
var ótrúlegt sambland af klámi og alvöru-
gefnum stjórnmálayfirlýsingum. Endur-
sögnum af kláminu sleppum við hér, en
þingkonan segist munu leggja áherslu á fjög-
ur stefnumál á þingi. í fyrsta lagi mun hún
berjast fyrir rýmkun á lögum um velsæmi á
almannafæri (sem þýðir sennilega að rýmka
eigi klámlögin). í öðru lagi mun hún berjast
gegn ritskoðun af hvaða tagi sem er; í þriðja
lagi vill hún beita sér gegn kjarnorkuverum
og í fjórða lagi vill hún leyfa barnaklám.
Dæmi svo hver sem vill.
Kosið
á Álandseyjum
Umbrot í flokkakerfinu
í LÉNSÞINGS- OG sveitarstjórnarkosning-
unum á Álandseyjum dagana 18. og 19.
október n.k. verða sjö listar í framboði, þar
af þrír óháðir. Aldrei hafa jafn margir listar
verið í kjöri, en þetta er í fyrsta skipti sem
óháðir listar koma fram. Samtals eru 167
frambjóðendur á listunum, þar af 28 óháðir.
Einungis 30 þeirra komast inn á lénsþingið.
í lénsþingkosningunum 1983 komust
frambjóðendur fjögurra lista á þingið. Mið-
flokkurinn var þá með stærsta þingflokkinn,
Frjálslyndir með þann næststærsta, Banda-
lag frjálslyndra (ef svo mætti kalla þá) og
Jafnaðarmenn voru svo með fimm fulltrúa
hvor listi. Að þessu sinni bjóða fram að auki
Óháðir á Álandseyjum, Óháðir og Græn-
ingjar. Almennt er talið að Óháðir á Álands-
eyjum séu frekar borgaralega sinnaðir þótt
þeir hafi engin formleg tengsl við stjórnmála-
flokka. Óháði listinn er á vegum sjálfstæðis-
hreyfingarinnar á eyjunum og er því tæpast
jafn óháður og hann gefur sig út fyrir að vera.
Græningjar koma svo fram á langþráðum
lista umhverfisverndarsinna og eru taldir al-
gjörlega óháðir stjórnmálaflokkum og stefn-
THE FACf