Þjóðlíf - 01.10.1987, Blaðsíða 57

Þjóðlíf - 01.10.1987, Blaðsíða 57
BÍLAR hversu hljóölát hún er. Þar gildir einu hvort att er við vindgnauð, vegardyn eða vélar- s°ng. Bíllinn er þannig hannaður, eins og hönnuðir keppast við um þessar mundir, að loftmótstaða er eins lítil og framast er unnt °g vindgnauð þar með einnig í lágmarki. Hávaði frá vél er einnig minni en maður á að Venjast. Sem sagt verulegur skortur á hávaða. Að þessu leyti er hrein unun að aka bíln- Urn á jöfnum hraða á góðum vegi, hávaðinn augrar a.m.k. engan; hitt er annað mál að t^'g syfjaði undir þessum kringumstæðum. En það verður víst ekki á allt kosið í þessum heimi! Ekki er getið um það í upplýsingum um- boðsins hvort bremsurnar hafi verið endur- hættar, en hvað sem því líður er ástæða til að geta þess að þær hljóta að vera með því besta sern um er að ræða; ástigið er lauflétt og strax 'jóst hvað þarf að stíga fast til að bremsa að Því marki sem maður óskar. LÍTIL vél, en öflug. Vélin í Toyota Corolla Liftback XL er fremur lítil að sprengirými nnðað við stærð bílsins og þyngd, en skilaði furðu miklu afli. Hún er fjögurra strokka og °venjuleg að því leyti að ventlar eru þrír fyrir bvern strokk. Sogventlarnir (sem hleypa bensínmenguðu lofti inn í sprengirýmið áður en rafkertið kveikir í því) eru tveir, en út- blástursventill (sem losar vélina við loft að '°kinni sprengingu) er einn. Hingað til hafa ffestar bílvélar verið búnar tveimur ventlum a strokk, en fjölventlavélum fer nú fjölgandi °g markmiðið er að auka afl. Þessi vél er sem Sagt 12 ventla, en 1600 cm '1 vélin í GTi- gerðinni er 16 ventla, tveir sog- og tveir út- blástursventlar fyrir hvern strokk. Ekki er ég í aðstöðu til að meta hvaða gildi ventlafjöldinn hefur fyrir afl þessarar vélar, Vn víst er að aflið er feykinóg til allra venju- egra nota. Það býður reyndar ekki upp á snöggan framúrakstur, a.m.k. ef bíllinn er . Ihlaðinn, og vissulega er það ekki að astæðulausu að Corollan er líka fáanleg með alsvert aflmeiri vél fyrir þá sem finnst þetta ekki nægjanlegt. ^að orkar reyndar tvímælis hversu skyn- Samlegt er að hafa í bílum af þessari stærð eiar með ógnarkrafti. Víst er gaman að aka Peim, en umframaflið er ekki líklegt til að kka umferðaslysum. Svo rammt hefur vVeðið að því í Noregi að ungt fólk fari sér að óa í slíkum bílum, að þar hafa verið uppi 3 c*‘r um að setja fyrir þá sérstakt aldurs- la! ‘gmark. PLÁSS fyrir börnin og barnarúmið. Nýja Corollan er ekki smábíll, en nær því heldur ekki að teljast miðlungsstór. Þetta er fimm manna bíll, en best fer um fjóra fullorðna. Sæti gefa góðan stuðning og rými er prýði- legt, nema hvað lofthæð afturí er fulllítil; þar er meðalmaður með höfuðið alveg uppi í þaki. Farangursrýmið er óvenju mikið og því til viðbótar má leggja niður aftursætisbakið í tveimur hlutum. Sem sagt alhliða heimilis- bíll, hvort sem flytja þarf börnin eða barna- rúmið. „Það er ábyggilega hægt að koma í hann tveimur BMX-hjólum,“ sagði áður- nefndur frændi minn. Búnaður er að öðru leyti svipaður því sem gerist um bíla í þessum verðflokki, en geta má um snúningshraðamæli, eyðslumæli (grænt ljós lýsir ef stigið er hæfilega á bensín- gjöfina, en gult ljós ef gefið er ótæpilega í), hliðarspegla báðum megin og eru þeir stillanlegir innanfrá, og miðstýrða hurðalæs- ingu. Hún virkar þannig að þegar bílstjóra- hurðinni er læst með lykli að utan læsast allar hurðir sjálfkrafa um leið. Óneitanlega þægi- legt. Á bílstjórahurðinni innanverðri er einnig rofi sem læsir öllum hurðum á auga- bragði. Það skiptir e.t.v. minna máli hérlend- is, en getur komið að gagni ef menn aka um erlend skuggahverfi og líst ekki á blikuna. Stjórntæki eru öll innan seilingar, rofar fyrir ljós og rúðuþurrkur á stýrisleggnum eins og almennt tíðkast nú orðið. Rofinn fyrir afturrúðuþurrkuna er þar líka, sem er til þæginga, og er með „letingja" eins og fram- þurrkurnar; þá fer þurrkan eina ferð annað TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR Lengd (cm): 421,5 Breidd (cm): 165,6 Hæð (cm): 136,0 Hæð undir lægsta punkt (cm): 15,5 Eigin þyngd (kg): 935 Farangursrými (lítrar): 385 Bensíntankur (lítrar): 50 Vél: 4ra strokka, 12 ventla, einn yfirliggjandi knastás Sprengirými (cm): 1295 Afl (DIN-hestöfl); 75 Tog (Nm/snún/mín): 101/4200 Þjöppunarhlutfall: 9,5:1 Bensínkerfi: 2ja hólfa blöndungur Bensín (oktan): 92 Fjöðrun: Sjálfstæð McPhearson á öllum hjólum Hemlarframan: Diskar Hemlar aftan: Skálar Stýri: Tannstangarstýri Beygjuradíus (metrar): 4,8 Gírkassi (hlutföll): l.gír: 3,545:1 2. gír: 1,904:1 3. gír: 1,310:1 4. gír: 0,969:1 5. gír: 0,815:1 Bakk: 3,250:1 Drif: Að framan veifið. Frágangur virðist mér allur til fýrirmyndar og hvergi heyrðist tíst eða skrölt þótt ekið væri á vondum vegi. Auðvitað á það ekki að heyrast í nýjum bfl, en gerir það stundum engu að síður. Það segir sína sögu. HVAÐ er góður bíll? Stundum eru bifreiða- eigendur spurðir: „Er þetta góður bíll?" Þeir segja auðvitað já, því ekki geta þeir látið spyrjast að þeir hafi valið vitlaust. En hvað er átt við? Aksturseiginleika? Bensíneyðslu? Viðhaldskostnað og endingu? Varahluta- þjónustu? Vafalaust allt þetta og ýmislegt fleira. Sá sem tekur að sér að hafa skoðun á bílum opinberlega verður að reyna að svara spurningunni: Er Toyota Corolla Liftback XL góður bíll? Þá verður að segja á móti: Það fer eftir því hvað við er átt. Því er þó óhætt að slá föstu að aksturseiginleikar eru framúrskarandi hvað varðar fjöðrun, stýri og bremsur. Afl er nægjanlegt til allra venju- legra nota og bíllinn er sparneytinn. Það er gott pláss fyrir 4-5 manna fjölskyldu, að því tilskildu að unglingurinn sé ekki ógnarlangur sláni, því þá rekur hann höfuðið uppundir sitji hann afturí; og það má taka heilmikið af dóti með í sumarferðalagið. Um endingu og bilanatíðni verður hins vegar ekkert fullyrt, frekar en um aðrar tegundir. Það er vitaskuld undir meðhöndl- un komið, en óhætt er þó að segja að Toyota hefur orð á sér fyrir að bila tiltölulega sjaldan og endast vel. Um það hafa Toyotamenn meira að segja tölur. Sama orð fer reyndar af fleiri bifreiðategundum og vissara að fara ekki lengra út á þann hála ís. Ég vil bæta því við að bílar eru ekki ein- ungis misjafnlega góðir, þeir eru misjafnlega skemmtilegir. Það ræður vafalaust jafnmiklu þegar fólk velur sér bíla. Og mér þykir nýja Corollan skemmtilegur bfll. Ég tel líka að væntanlegir kaupendur fái dámikið fyrir peningana sína; sú gerð sem hér hefur verið sagt frá kostar um 490 þúsund með ryðvörn og skráningu. Miðað við stærð og búnað sýnist mér það vel sloppið. Við þá sem eru fyrir bíla og þykir gaman að key'ra vil ég að lokum segja að þeir taka fjárhagslega áhættu með því að reynsluaka Corolla 1600 GTi, þ.e.a.s. dýrari gerðinni, það gæti nefnilega gert þá 150 þúsund krón- um fátækari til viðbótar. • Ásgeir Sigurgestsson 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.