Þjóðlíf - 01.10.1987, Blaðsíða 27
ERLENT
-r f;jðD
wt v\ ;
wm" wKa*B
«'r
*£#55fV'v/f
y i uj£r;>?
..u/W"*"
um á Álandseyjum, en stefnumál þeirra eru á
svipaðan veg og græningja annars staðar.
Tveir frjálslyndir frambjóðendur hafa svo
lýst sig óháða þrátt fyrir setu sína á borgara-
legum listum.
í fjölmiðlum í Finnlandi hafa gamalgrónir
stjórnmálamenn rætt þessi nýju, óháðu
framboð og virðast margir þeirra fremur
bitrir og telja að sér vegið. Talsmenn óháðu
listanna halda því fram að stjórnmálaflokk-
arnir hafi ávallt átt erfitt með að marka sér
hreina, pólitíska stefnu enda sé það eðlilegt á
^yjum þar sem aðeins 23.000 manns búa.
Oháðir telja að stjórnmálaflokkar eigi
ekkert erindi til þeirra, stjórnmálin lúti öðr-
um lögmálum á Álandseyjum en annars
staðar.
Kosningaþátttaka í lénsþings- og sveitar-
stjórnarkosningum hefur alltaf verið frekar
léleg og farið minnkandi með árunum. Árið
1983 var slegið met en þá var þátttakan
63.8%, yfirleitt hefur þátttakan ekki farið
UPP fyrir 60% í kosningum. Talsmenn
óháðu listanna kenna stjórnmálaflokkunum
um og því bíða ýmsir með eftirvæntingu eftir
því hvort þátttakan í október-kosningunum
verði eitthvað meiri nú þegar óháðu fram-
boðin eru í kjöri.
Á fimmta áratugnum fór fyrst að bera á
myndun stjórnmálaflokka á Álandseyjum og
síðan hafa mál þar verið í örri þróun. í kosn-
ingunum 1979 var talið að festa væri komin í
stjórnmálalíf á eyjunum með fjórum flokk-
um: Miðflokknum, Frjálslyndum, Bandalagi
frjálslyndra og Jafnaðarmönnum - en sú
virðist ekki raunin.
Á Álandseyjum er kosið samtímis til léns-
þings og 16 sveitarstjórna, svipað og gerist í
Svíþjóð, þriðja hvert ár. Kosningar fara ekki
fram samtímis á Álandseyjum og annars
staðar í Finnlandi. 300 atkvæði nægja í flest-
um tilfellum til að koma frambjóðanda inn á
lénsþingið en það getur þó brugðist. Kosn-
ingakerfið hefur gert það að verkum að
frambjóðandi með 26 atkvæði á bak við sig
hefur komist inn en frambjóðandi með 230
atkvæði ekki. Lénsþingið kemur saman í
fimm til sex mánuði á ári.
• Guðrún Helga Sigurðardóttir/Helsinki
Taflan sýnir fjölda sæta á framboðslist-
unum sjö, sern eru mismunandi mörg, allt
frá tjórum upp í 48. Hún sýnir einnig hve
margar konur eru á listunum en alls eru
þær 49 af 167 frambjóðendum. Að end-
ingu sýnir taflan hve mörgum þingmönn-
um flokkarnir náðu inn í kosningunum
1983.
Framboðslistar í kosningunum til lénsþings á
Álandseyjum 18,- ■19. okt. 1987.
Fjöldi sæta á tramboös- lista Fjöldi kvenna í fram- boöi Fjöldi þing- manna í kosn. '83
Miðflokkurinn 48 12 11
Frjálslyndir Bandalag 44 15 9
frjálslyndra 22 6 5
Jafnaðarmenn Óháðir á 27 8 5
Álandseyjum 13 2
Óháði listinn 9 4
Græningjar 4 2
SAMTALS 167 49 30
Virnet. Galvaniserað
Grunnspartl.
Yfirspartl.
Lokaumferð með lit.
SERPOROCK
UTANHÚSSKLÆÐNING
+ EINANGRUN
SERPOROCK utanhússeinangrun er
múrkerfi, sem byggist á einangrun með
2,5“ steinull frá Steinullarverksmiðjunni
á Sauöárkróki og múrklæðningu frá
SERPOROCK í Svíþjóð. Þetta er eitt
viðurkenndasta kerfið á þessu sviði á
markaðnum í dag í Evrópu.
Veitum 5 ára ábyrgð á efni
og uppsetningu.
UPPLÝSINGAR VEITIR:
Bæjarprýði
BORGARTÚNI 31 - 105 REYKJAVÍK
SÍMI: 22727 - 623999
100 kg vatnsvarin
steinull frá Steinullar-
verksmiðjunni á
Sauðárkróki.
Upphengjur.
25