Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 30

Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 30
ustu dæmin af þeirri bylgju námskeiða sem flæða yfir þjóðina og eiga það að meira eða minna leyti sammerkt að fólk er að reyna að styrkja stöðu sína í líi'inu og hver og einn hugsar aðeins um sig sjálfan. Þetta eru oftast praktísk námskeið, þó að þau þurfi ekki endilega að hafa það að markmiði en fólk er greinilega reiðubúið að leggja mikið álag á sig í þrotlausri leit að endurhæfingu eða full- komnun, og oft kosta þessi námskeið drjúg- an skilding," segir einn þeirra sem leitað var til um skýringar á fyrirbærinu. Annar segir: „Þetta helst í hendur við uppahreyfinguna á Vesturlöndum og þá koma mér Dale Carnegie námskeiðin í hug. Þú reynir að styrkja stjórnunarhæfileikana, styrkja sjálfs- traustið en um leið felst ákveðin sjálfssefjun í þessu." Sálfræðingur sem rætt var við sagði að í seinni tíð væru yngri sálfræðingarnir nokkuð duglegir við að halda námskeið sem flest, ef ekki öll, hafa það að markmiði að etla öryggistilfinningu þátttakendanna og dáleiðslu og kristallaheilun. Bandaríkja- maöurinn, Andrew Nevai, (sem einn við- mælandi ÞJÓÐLÍFS lýsti fremur sem þaul- reyndum sölumanni í viðkynningu en and- legum leiðbeinanda), hélt námskeiðið þar sem fjallað var um hvernig hægt er að nota kristalla á hagnýtan hátt í daglega lífinu. ( „Á námskeiöinu var fólki kennt að not- færa sér útgeislun kristallanna, en áhrif þeirra eru mismunandi," segir Gardar Garðarsson, framkvæmdastjóri Þrídrangs. „Sumir kristallar eru orkumiklir og þá er gott að nota þegar manni finnst maður vera orkulítill, en þarf á meiri orku að halda. Rauöir kristallar, eins og t.d. rúbínar, eru sérstaklega orkumiklir, Aörir hafa róandi áhrif á mann, sumir skerpa einbeitnina og enn aðrir auka draumfarir. Það er því afar hagnýtt að vita hvaða áhrif sérhverjir krist- allar hafa á mann, þannig að maður geti not- aö þá á réttan hátt," segir Garðar. Félagar í Þrídrangi eru nú á milli 160 og ____________INNLENT_________________ gera þá hæfari til að ráða ráðum sínum sjálfir. Nú má t.d. sækja námskeið í angistar- og kvíðastjórnun. Á vegum Tómstundaskólans er boðið upp á sérstakt námskeið í tíma- stjórnun. ,,Pú hugsar lífþitt eins ogþú sért að gera um það kvikmyndahandrit. Reynir að móta persónurnar í lífi þínu, aðstœðurnar og framvinduna eftir eigin höfði og að þuð gagn- ist þér eitts vel og þú óskar," er aðalinntak slíkra „time management" námskeiða sem vinsæl eru í Bandaríkjunum. Til eru þeir sem halda því fram að upp- gangur allra handa andlegra hreyfinga sé andsvar við efnishyggjunni og lífsgæðakapp- hlaupi velferðarríkisins. Það má þó efast unt það, alltént virðist hugleiðslufólk og fylgis- menn andlegra gúrúa ekki hafna lífsgæðun- um eins og hipparnir gerðu á sjöunda ára- tuginum. Einn þeirra sem þátt tóku í mótinu Snæfellsás '87 og er virkur meðlimur í Þrí- drangi, er maður á þrítugsaldri sem selur tölvur á daginn. Hann segir: „Þegar nágranni 170 talsins og áhugasvið félagsmanna eru mjög ólík, enda segir Garðar að þeir viður- kenni allt og aðhyllist allt í tengslum við heildræn mál. „Hver og einn getur haft sína persónulegu skoðun á því hvað sé rétt og því fordæmum við engan," segir hann. Námskeið Þrídrangs og kynningar hafa einn tilgang öðrum fremur; að gera einstakl- ingnum ljóst að hann einn beri ábyrgð á sjálfum sér og sinni heilsu, því að „þegar þú ert farinn að hugsa vel urn sjálfan þigog líður vel bæði andlega og líkamlega, þá geturðu farið að gefa öörum af þinni umframorku." Hingað til hefur námskeiðahald Þrídrangs gengið vel og námskeiðin eru oftast fullsetin. Það eru ekki aðeins félagsmenn sem sækja þessi námskeið og að sögn Garðars er ekki óalgengt að sama fólkið komi aftur og aftur á námskeið. Á næsta ári er ætlunin að efna til móts svipað Snœfellsás 87, stærra og enn betur skipulagt. Að sögn Þrídrangsmanna tengist talan þrír ARI JÓHANNESSON • Spurt um Englakonungdóminn. Sigurborg Guðmundsdóttir, forstöðumaður námskeiðs, og Susanne Gerleit, leiðbeinandi, til hægri. i minn fer út á kvöldin til að stunda golf, er hann að fást við eitthvað sem er viðurkennt í þjóðfélaginu. Það finnst engum skrítið að ganga um og berja kúlu ofaní holu. Þegar ég ver hins vegar áhuga mínum í að leita þekk- ingar hjá Þrídrangi og fæst þá við ýmislegt sem þú kallar kannski kukl, er ég rneð hobbý sem er ekki viðurkennt, þykir skrítið og gæti kannski kostað mig vinnuna ef ég gerði það opinberlega. En mér finnst þetta bara mjög gantan og áhugavert. Ég hef alltaf haft áhuga á öllu sent passar ekki saman við þá heims- mynd sem við búum við, og að reyna að skilja það," segir hann við ÞJÓÐLÍF. Maður af 68 kynslóðinni sem hefur nokk- uð fylgst með þessum andlegu hræringum úr fjarlægð segir: „Að sumu leyti er þetta virð- ingarverð viðleitni til að finna önnur sjónar- horn á lífið, en þetta er líka mikið fálm og margt af þessu er tómt rugl. Sennilegaáþetta rætur sínar í því að mönnum finnist versl- unarmenningin sem við búum við ekki veita Nokkur hugtök HEILDRÆN AÐFERÐ: Ákveðin af- staða mannsins gagnvart sjálfum sér og umhverfi sínu. Gengið er út frá því að maðurinn sé ein samverkandi heild líkama, tilfinninga, hugar og annarra dýpri þátta. HEILARI: Heilariermaðursemerbú- inn aö hreinsa meðvitund sína og skapa innra jafnvægi hjá sér, þannig að hann getur starfað sem orkuleiðari og hefur andlega umframorku og gott samband við sinn innri mann eða sál. LÍFEÐLI: Kröftug aðferð sem eykur orku og kraft, losar um djúpstæða vöðvaspennu og skilar sér í ánægju- legra kynlífi. GERHEIMAR: Tilfinningaheimurinn innra með okkur og allt í kringum okkur. ENGLAKONUNGDÓMURINN: Engl- ar eða verur af ýmsu tagi sem vaka yfir okkur. hjálpa okkur og fá okkur til að rifja upp þá kunnáttu sem býr innra með okkur - kunnáttu sem e.t.v. var aðall okkar í einhverju fyrra lífi. 28

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.