Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 31

Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 31
INNLENT neina ieiösögn eitt eða neitt. Fólk hópast í Kringluna til aö skoða verslunarhúsnæðið og Itetur það viðgangast að eytt sé 120 miljón- um í einn hamborgarastað. En ég held samt aö fólk finni tómahljóðið í þessu. Menn geta Jú tatað sig upp og reynt að fylgja einhverjum stæl en það veitir ekkert meira. Þess vegna held ég að í þessum andlegu hreyfingum og t-d. Snæfellsássmótinu, felist leit að inntaki í 'ífínu og að þetta sé einhverskonar andsvar við hreinni verslunarefnishyggju sem öllu tröllríður þessa dagana." I snjallri grein Guðbergs Bergssonar, rit- hötundar, fyrir nokkru fjallaði hann um fegurðina, fæðuna og tískuna og sagði m.a.; »£« eitt er víst, að maðurinn má aldrei lifa eðlilegu lífi. Hann verður sífellt að vera að gera hitt og þetta með ótal tœkjum og verndargripum, til þess að líf hans verði „virk'úega eðlilegt“ ..Aldamóta- hynslóðin nu alltaf að tala um mannrækt. Afkomendur hennar eru allir í vaxtarœktinni. Og hver er munurinn á þessu?" Hugræktarnámskcið eða heilsuræktarnámskeið, slökun og lífefli, orkuæfingar grasalækningar eða svæðanudd. Þetta eru mottó dagsins. Á djúpslökunar- námskeiði sem nú stendur yfir í Reykjavík eiga menn kost á að losa um djúpstæða vöðvaspennu sem skilar sér að sögn í ánægjulegra kynlífi. Hjúkrunarfræðingur nokkur sem hélt vinsælt námskeið um kynlíf og kynferðisfullnægingu í sumar, var þátt- takandi á Snæfellsásmótinu og kynnti þar andlegar hliðar kynlífsins. Á tímum al- næmisógnunarerhægt að tryggja öruggt kyn- líf með „andlegu sambandi í fantasíu," eins og hún komst að orði. Við erurn ófullnægð og skortir öryggi. Það er inntak þeirrar bylgju andlegra pælinga og námskeiðaáráttu sem ríður yfir. Erum við aðeins velmegandi þjóð í ákafri leit að full- nægingu? • Ómar Friöriksson ÞORSTEINN BARÐASON * brídrangur vakti óskipta athygli fyrir mót sitt á Snæfellsnesi. 1 natni samtakanna þríhyrningnum sem er úilið sterkasta uppbygging formsins og Þrí- úrangar eru sker suður af íslandi. Skv. heim- údum Einars Pálssonarí 1. bindi lians Rætur 1Henskrar menningar miðast helgun landsins v>ð Þrídranga er landnámsmenn komu til ís- lands. Samtökin eru orðin talsverð stofnun °8 samkvæmt ummælum eins viðmælanda hJÓÐLÍFS hyggjast þeir reka þessa starf- semi með hagnaði þó svo að hann harðneiti Pví að þeir láti stjórnast af sérstakri gróða- yon. Fyrirhuguð er víðtæk kynningarstarf- serni með tilheyrandi sýningum, tímaritaút- Sútu, ráðstefnum o.þ.h. Síðar í þessum mánuði kemur hinn heims- auini huglæknir (eða loddari?) Matthew _a>ming til landsins á vegum Þrídrangs. ann verður með heilunarnámskeið, fyrir- estra og sýnikennslu. Manning þessi á m.a. §eta drepið krabbameinsfrumur með . 8arorkunni einni saman.hann hefur stjórn sv°kölluðum œrslandafyrirbœrum, þ.e. er farvegur fyrir ósjálfráða skrift og tleira kúnstugt. ,,í dag er Matthew Manning heimsfrægur fyrir sína andlegu og dulrænu hæfileika eftir að vísindamenn beggja vegna Atlantshafsins gerðu nákvæmar rannsóknir á honum eftir ströngustu kröfum vísinda- rannsókna," segja Þrídrangsmenn og halda áfram: „Árangurinn varð til þess að dulrænir hæfileikar breyttust úr því að vera trúarlegt fyrirbæri yfir í vísindalega sannaðar stað- reyndir."Koma Mannings á ugglaust eftir að vekja athygli fjölmiðla því hann ku hafa gaman af að halda alls kyns sýningar fyrir pressuna. Meðal annarra námskeiða Þrídrangs, sem ekkert lát virðist á þessa dagana, er nám- skeið um upplifun fyrri lífa og annað um notkun stýrðra hugsýna, sem gengur út á það að sjá og upplifa nákvæmlega það sem mað- ur vill fá í lífinu - og að fá þaö. • Ómar Friðriksson/Sveinn Agnarsson ÞJÓÐLÍFSTÖLUR Starfandi auglýsingastofur á höfuð- borgarsvæðinu: 52. Upphæð sektar fyrir að aka yfir á rauðu ljósi: 3 000 kr. Fjöldi frystihúsa sem sjávarútvegsráðu- neytið sakar um kvótasvindl: 5. Salernissvæði í lagi skv. úttekt Ríkismats sjávarafurða á innra og ytra umhverfi fiskvinnslustöðva: 32.6% Salernissvæði „gölluð" skv. sömu úttekt í fiskvinnslustöðvunum: 44.1%. Áætlað hlutfall þjóðarinnar sem neytir svefnlyfja daglega: 6%. Hækkun lánskjaravísitölu milli mánaða í september: 1.07%. Verðbólga miðað við hækkun lánskjara- vísitölunnar síðustu 6 mánuði: 19.6%. Hækkun byggingarvísitölu frá ágúst- mánuði: 1.09%. Mannskaði á ísienskum skipum árið 1986: 21 maður. Upphæð til framkvæmda við Blöndu- virkjun árið 1988: 291 miljón kr. Fjöldi íslendinga sem telja skv. skoðana- könnun að stjórnmálamenn segi yfirleitt ekki sannleikann: 76% Fjöldi skráðra stúdenta í Háskóla íslands skólaárið 87-88: 3906. Þar af karlar: 47.3%. Bílasölur á íslandi: 240. Fjöldi skráðra dagmæðra í Reykjavík: 380. Fjöldi dagfeðra: 0. Áætlaður fjöldi eyðnismitaðra íslendinga eftir 5 ár miðað við aukningu sjúkdóms- ins erlendis: 960. Fjöldi fólks í vekalýðsstétt sem býr í eigin húsnæði: 63.6%. Heimildir: Fiskvinnslan, fagblað fiskidnaðar- ins 3/87. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Ráðstefna um öryggismál sjómanna. Lands- virkjun. Fréttabréf Háskóla íslands. Dag- vistarheimili Reykjavíkurborgar. Ráðstefna um alnœmi á vegum Landlaeknisembœttis og H.l. Húsnœðiskönnun Félagsvísindaslofnun- ar. Dagblöð o.fl. 29

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.