Þjóðlíf - 01.10.1987, Síða 33
INNLENT
EINAR ÓLASON
* Vegna breyttrar sætaskipunar sitja ráöherrar nú andspænis ræöumönnum á Alþingi.„Það
verða nóg umræðuefni strax á fyrsta degi.“
Pólitískt neistaflug__________________
Hvertstórmáliö afööru á fyrstu dögum Alþingis
ÞRIÐJA ELDRAUN ríkisstjórnarinnar er aö
hefjast. Alþingi kom saman laugardaginn
10. október og strax upp úr þeirri helgi mátti
búast viö aö flest stærstu og eldfimustu mál
stjórnarinnar kæmu fram í dagsljósið í meö-
ferö Alþingis.
Fyrsta raunin fólst aö sjálfsögöu í sjálfri
stjórnarfæðingunni, sem var löng og erfið, og
fyrstu aðgerðum hennar. Því næst kom glím-
an viö ríkissjóðshallann, fjárlagagerð og
lánsfjáráætlun. Samkomulag náðist um stór-
•tr áætlanir til að draga úr ríkissjóðshallanum
°g erlendum lántökum. Útvegsbankamálið
olli meiri titringi í stjórnarsamstarfinu en
flest annað og er enn óleyst þegar þetta er
skrifað, en skamkvæmt heimildum ÞJÓÐ-
LlFS innan Alþýðuflokksins er talið allt eins
líklegt að Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
taki af skarið á allra næstu dögum og leysi
Það úr langri sjálfheldu. Hvort af hlýst póli-
f'skt neistaflug eða einhverskonar málamiðl-
un hefur náðst er ekki Ijóst. Hitt er víst að
stjórnarandstaðan hyggst taka málið upp á
Þ'ngi - Útvegsbankamálið átti að vera frá-
8engið og leyst með lögum Alþingis sl. vor.
Útkoman nú krefst hins vegar ýmissa
athugasemda þingmanna.
Þegar þingmenn ganga til fyrsta fundar á
aiánudag, 12. okt., verður gengið til kosn-
inga forseta sameinaðs þings og deilda, og
kosninga í hinar 23 fastanefndir Alþingis.
Hér ríður á að samkomulag hafi tekist á milli
flokka með tilliti til valdahlutafalla í kosn-
ingunum í vor. Stjórnarliðar hafa fyrir
nokkru gengið frá sínum málum. Um mikil-
vægustu skiptinguna var þegar samið á bak
við tjöldin í stjórnarmyndunarviðræðunum í
sumar. Þannig fá t.d. sjálfstæðismenn forseta
sameinaðs þings, sem verður Porvaldur
Garðar Kristjánsson. Alþýðuflokksmenn fá
formannsstöðuna í eftirsóttustu nefnd þings-
ins, fjárveitinganefnd, og mun Sighvatur
Björgvinsson gegna því embætti en sam-
kvæmt sérkennilegu samkomulagi krata við
framsóknarmenn sem upplýst var í sumar,
eiga framsóknarmenn varaformanninn sem
verði jafn Sighvati að völdum. Gegnir
Alexander Stefánsson því embætti sem
nokkurskonar sárabót fyrir missi ráð-
herrastólsins. „Menn gæta þess að koma
aldrei til þingsins með lausa enda í þessum
málum," sagði einn viðmælandi blaðsins.
Stjórnarandstöðuflokkarnir höfðu þó
ekki gengið frá samkomulagi sín í milli um
sameiginlegan lista við nefndakjör og skipt-
• Jón Baldvin fjármálaráðherra verður í
brennidepli átaka á fyrstu dögum þingsins.
31