Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 39

Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 39
HEGÐUN STEINGRÍMUR E. KRISTMUNDSSON Tungan, bakarinn og þjóðarkakan Er málfarsleg stéttarskipting á íslandi? 1 STJÓRNMÁLAUMRÆÐU hérlendis er Því stundum haldið fram að fleiri en ein þjóð búi í landinu og sumar séu jafnari en aðrar. f yrir nokkrum misserum glumdi í eyrum 'andsmanna: „Hverjir eiga ísland?“ og var ekki annað að sjá en sú herferð bæri ríkuleg- an ávöxt. Hins vegar vilja íslendingar gjarna frúa því að þeir séu ein samhent þjóð í menn- 'ngarlegu tilliti - þeir tali sama mál, hafi aÞekk viðhorf, búi í sömu veröld. Andstæðar Pólitískar fylkingar virðast hafa komið sér uPp heilögu bandalagi hvað þetta snertir. Eenningar um sérstöðu ,,kvenþjóðarinnar“ ^sfa að vísu átt nokkru fylgi að fagna síðustu ar> því hefur m.a. verið haldið fram að ís- enskan sé „karlamál" (sjá grein eftir Berg- ‘Jóti Baldursdóttur í nýlegri Veru). Hérlendis er rík tilhneiging til að finna Pólitískum átökum stað á afar þröngum vettvangi kjara- og efnahagsmála. Það er rétt e,ns og um kappleik sé að ræða utan alls Uversdagslegs amsturs. Gefið er í skyn að Uandahóf ráði því í hvaða liði menn lenda og Pao sem gerist „utan vallar“ skipti ekki máli. lagsmálahundarnir skipta um föt áður en Pe*r fara í slag og þegar leiknum er lokið ^ðast þeir borgaralegum fötum á ný, skilja ^em bestu vinir og ganga til starfa sinna við akstur þjóðarkökunnar. En er það víst að íslendingar séu jafn C|njitur menningarhópur og ætla mætti af "P'nberri umræðu? Að hve miklu leyti er til dæmis málfar mismunandi eftir félagsstöðu manna og hversu djúpstæður er slíkur munur að mati almennings? Um þessar spurningar var fjallað í könnun á vegum Félagsvísinda- stofnunar Háskóla íslands. HVAÐ BÝR í MÁLINU? Færa má rök fyrir því að málið sé á margan hátt spegill þjóð- lífsins. Málfarsleg skil eru til að mynda oft vísbending um félagsleg samskipti og málleg viðhorf draga gjarnan dám af félagslegum viðhorfum. Ég hef haldið því fram annars staðar að opinber umræða um íslenska tungu - eiginleika hennar, og „hættumar" sem að henni steðja - sé þjóðfélagsumræða undir rós. Umræða meðal okkar sjálfra um sér- stöðu okkar sem þjóðar snýst einmitt að miklu leyti um tunguna, en svo er reyndar um fleiri þjóðir, til dæmis Japani. í október 1986 gekkst Félagsvísinda- stofnun Háskóla íslands fyrir símakönnun þar sem landsmenn voru m.a. spurðir um málnotkun og málleg viðhorf. Marktækt úr- tak 1130 einstaklinga á aldrinum 18 til 75 ára var valið með handahófsaðferð úr þjóð- skrá. Ein spurningin hljóðaði svo: Hversu mikill munur finnst þér vera ú múlfari einstakra stétta eða þjóðfélagshópa hér ú landi? Svörin skiptust eins og Tafla I sýnir (hér er þeim sleppt sem ekki tóku afstöðu, en það voru 5,1% þátttakenda). Stór hluti landsmanna, um 45%, er þeirrar skoðunar að „lítill" munur sé á málfari ein- stakra stétta eða þjóðfélagshópa og það kemur fáum á óvart. Hins vegar eru aðeins tæp 16% þeirrar skoðunar að munurinn sé „enginn". Og all stór hópur, nánast þriðj- ungur þjóðarinnar, er þeirrar skoðunar að um „nokkuð mikinn mun“ sé að ræða. Tæp- lega 9% telja að munurinn sé „mjög mikill". Utreikningar sýna að svörin eru óháð félagsstöðu (stétt og menntun) og kynferði. Hins vegar er marktækt samband við aldur, yngra fólk gerir meira úr málfarsmun en það sem eldra er. Full ástæða væri til að kanna nánar hvern- ig fólk skilur orðin „stétt“ og „þjóðfélags- hópur" (er til dæmis átt við starfsstétt eða þjóðfélagsstétt í víðari skilningi?) og sömu- leiðis hvað „munur á málfari" felur í sér (er málfræðin til dæmis mismunandi eða ein- ungis orðasafnið?). Hvað sem þessu líður verður að álykta að niðurstaðan stingi í stúf við algengar staðhæfingar í ræðu og riti um heildstæðni íslensks máls. Svonefnda þágufallssýki hefur all oft bor- ið á góma þegar rætt hefur verið um mál- stefnu og málnotkun á undanförnum árum. Kannanir hafa bent til þess (m.a. könnun Astu Svavarsdóttur (íslenskt múl 1982) og könnun Ástu, Gísla Pálssonar og Þórólfs Þórlindssonar (íslenskt múl 1984)) að fall- notkun með ópersónulegum sögnum (hlakka, langa, kvíða, o.s.frv.) sé stéttbund- in. Þessar kannanir eru hins vegar þeim annmörkum háðar að þær hafa einskorðast við málnotkun bama og unglinga og úrtakið er ekki valið með handahófsaðferð. í áðurnefndri könnun Félagsvísinda- stofnunar voru nokkrar spurningar um fall- notkun með ópersónulegum sögnum. Meðal annars var spurt um málnotkun þátttakenda sjálfra: Sumir segja „Ég hlakka til að fara“, aðrir „Mig hlakkar iil að fara“, og enn aðrir „Mér hlakkar til að fara". Hvað af þessu myndirþú segja? Flestir svarendur, eða 54,7%, sögðust myndu segja „ég“, 36,8% „mig“ og 8,4% „mér“ (1,1 % þátttakenda tók ekki afstöðu). Marktækt samband reynist vera á milli mál- notkunar og félagsstöðu. Því hærri sem félagsstaðan er þeim mun ólíklegra er að viðkomandi noti „rangt“ fall (þolfall eða þágufall). Kórrétt nefnifallið er hlutfallslega mun algengara hjá efstu stétt en þeirri lægstu, eða 71,7% á móti 41,6% (sjú Töflu II). Fallnotkun reynist tengd kynferði, 63% kvenna nota nefnifall en 46,4% karla. Einn- ig er marktækt samband milli aldurs og fall- notkunar. Eldra fólk er líklegra til að nota „rétt" fall en það sem yngra er. í öllum til- vikum er þó um fremur veikt samband að ræða. Rétt er að undirstrika að hér er ekki endilega um raunverulega málnotkun að ræða heldur það sem fólk segist nota, form 37

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.