Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 50
VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
Ef litiö er hins vegar á horfurnar til lengri
tíma fyrir efnahagslífið í heild þá tel ég þær
góöar og ég held að breytingarnar á fjár-
magnsmarkaðnum auki manni framar öðru
bjartsýni á framtíðina."
En eiga þær ekki sinn þátt í þenslunni
margumræddu? Ólafur telur vissa hættu vera
á því ,,en ég met ávinninginn af þessum
breytingum miklu meira en þensluhættuna.
Það á að vera hægt að draga úr þensluáhrif-
unum en stjórnvöld verða að ráða bót á því
eftir öðrum leiðum, í ríkisfjármálum og pen-
ingamálum á annan hátt, en ekki draga
ARI
ÉG ER SANNFÆRÐ-
UR um að fjármögnun-
arleigurnar hafa ekki
áhrif á vexti í þjóðfélag-
inu. Raunvextir voru
háir á íslandi þegar
fjármögnunarleigurnar
fóru af stað og þær
bjóða fjármögnun í
ýmsum gjaldmiðlum.
Ávöxtunarkrafa íslensku krónunnar er um
17 til 18% raunvextir, á dollar er 14-15% og
á þýsku marki um 11-12% ávöxtunarkrafa
og við hjá Lind h.f. bjóðum langmest í þýsk-
um mörkum vegna þess að þar getum við
boðið það sem kalla mætti eðlilega markaðs-
vexti. Við kaupum þá mörkin erlendis á
kannski 7% vöxtum og endurlánum hér inn-
anlands á 11 til 12% vöxtum - vaxtamis-
munurinn dekkar okkar áhættu og rekstrar-
kostnað." Það er Pórður lngvi Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri fjármögnunarleig-
unnar Lind hf. sem hefur orðið í viðtali við
ÞJÓÐLÍF.
,,Það er auðvitað munur á þeim kjörum
sem fjármögnunarleigurnar bjóða og við
þekkjum þess mörg dæmi að óneíndar leigur
gera samninga við fyrirtæki í Evrópugjald-
miðlum en bjóða sama leigugjald og ef um
samning í íslenskum krónum væri að ræða.
Það er ósanngjarnt vegna þess að þá ert þú,
t.d. að kaupa þýsk mörk erlendis á 7% vöxt-
um, eðlileg ávöxtunarkrafa væri 11-12%
vextir en þú býður þessi mörk á 18% vöxtum
hér innanlands, eins og þú yrðir að gera með
íslenskar krónur. Þar værirðu aðeins í leit að
skjótfengnum gróða og slíkir viðskiptahættir
geta ekki gengið til lengdar."
Lind h.f. er sameign franska stórbankans
Banque Indosuez sem á 40%, Samvinnu-
banka íslands sem á 30% og Samvinnusjóðs
íslands sem á 30%, og er fjármálaþjónustan
sniðin eftir starfsvenjum einnar stærstu fjár-
mögnunarleigu Evrópu, Locafrance, sem er í
eigu Banque Indosuez. Lind h.f. var stofn-
sett í júlí á síðasta ári en hóf starfsemi um
breytingarnar á fjármagnsmarkaðnum til
baka. Það má ekki eyðileggja það sem menn
hafa verið að byggja upp á seinustu árum.
Hugsunarhátturinn er að breytast, menn eru
að velta fyrir sér ýmsum nýjungum og mögu-
leikum og fyrirtæki eru að stækka við sig.
Ávinningurinn af þessum breytingum á
fjármagnsmarkaðnum er að koma í ljós og
því mega stjórnvöld ekki kippa fótunum
undan þessu kerfi þrátt fyrir efnahagsvanda-
mál líðandi stundar."
• Ómar Friðriksson
seinustu áramót og hefur nú þegar gert fjár-
leigusamninga upp á 600 miljónir króna.
„Þetta er fyrsta samstarfsfýrirtæki ís-
lenskra og erlendra fjármálaaðila og Banque
Indosuez er eini erlendi bankinn sem er
kominn með fótfestu á öllum Norðurlönd-
unum fimm," segir Þórður Ingvi. „Allar
áhættureglur miðast við franskar venjur og
við notum franskan hugbúnað við alla
samningsgerð. Við njótum tæknilegrar að-
stoðar Locafrance og áður en Lind h.f. hóf
starfsemi vorum við starfsmennirnir í margar
vikur á fjármálanámskeiði hjá því fyrirtæki
til þess einfaldlega að læra „leasing," eða
fjármögnunarleigu. í gegnum þessa sam-
starfsaðila fáum við mikla þekkingu og þeir
eru ómetanlegir við að afla fyrirtækinu láns-
fjár erlendis, sem er allt tekið án ábyrgðar
eigenda. Þeir fylgjast líka vel með rekstrin-
um sem er mikið öryggisatriði til að minnka
áhættuna."
ÁHÆTTAN. Það vill nokkuð vetjast fyrir
mönnum að átta sig á hvað fjármögnunar-
leiga raunverulega felur í sér. Þórður Ingvi
segir að Frakkarnir líki þessu stundum við
það að ætla sér að raða pússluspili með 100
þúsund bitum sem eru allir svartir og þetta á
að gera í myrkri. „Áhættan er öll okkar meg-
in," segir hann. „Þetta er nýr möguleiki sem
fyrirtæki hafa til að fjármagna véla- og
tækjakaup. Fjármögnunarleigan kaupir
hlutinn að ósk viðskiptavinarins og er þá
skráður eigandi hans en leigir hlutinn síðan
gegn mánaðarlegu leigugjaldi í 3-7 ár. Oftast
eru samningar gerðir til 5 ára. Lind h.f. tjár-
magnar kaupin að fullu.
Fjármögnunarleigan afskrifar tækið hjá
sér á leigutímanum. Ef við kaupum t.d. jarð-
ýtu og leigjum til verktakafyrirtækis til
þriggja ára þá afskrifum við tækið á þeim
tíma, en undir venjulegum kringumstæðum
væri slík jarðýta afskrifuð á sjö árum. Á sama
tíma gjaldfærir notandinn allt leigugjaldið,
sem þýðir það að notandinn skrifar tækið
niður hjá sér á þremur árum í stað sjö. Þetta
er mjög hagstætt fyrir leigutakann ef hann
vill forðast að lenda í háum tekjuskatti. I
lokin kaupir leigutakinn oftast tækið fyrir
svonefnt hrakvirði sem er venjulega um tvö
eða þrjú prósent af upphaflegu verðmæú
vélarinnar. Hann getur líka skilað vélinni í
lok leigutímans og fengið nýja vél á nýjum
leigusamningi. Þetta er sum sé hagstæð leið
fyrir leigutaka þegar hann þarf að skrifa nið-
ur vél eða tæki hraðar en venjulegt er sam-
kvæmt skattalögum en ég legg áherslu á að
það er ekkert ólöglegt við þetta.
Því má bæta við að við hjá Lind h.f. krefj-
umst engra ábyrgða eða veðsetninga og því
skerðist veðhæfni fyrirtækis leigutakans
ekkert við fjárfestinguna og vextir eru fastir
þannig að fyrirtækið tekur enga vaxtaá-
hættu."
HARÐARI SAMKEPPNI. Þórður Ingvi seg-
ir að sú staða geti alltaf komið upp að menn
rjúki út í fjárfestingu á vélum eða tækjum
þegar svona auðveld fjórmögnunarleið býðst
án þess að þeir ráði við kaupin, „en við eig-
um að koma í veg fyrir slíkt því áhættan er öll
okkar megin. Fjármögnunarleigurnar starfa
eftir mismunandi reglum hvað áhættu snert-
ir. Þar sem við krefjumst engrar ábyrgða a
samningum er eignarhald okkar á tækinu
okkar eina trygging en þar á móti gerum við
gífurlega miklar kröfur til viðskiptavinarins.
Við gerunt t.d. aldrei samninga við fyrirtæki
nema það hafi starfað í a.m.k. þrjú til fjögur
ár. Við viljum því fremur gera samninga við
fáa en trausta viðskiptavini heldur en að vera
með samninga við marga aðila upp á flein
miljarða og stóran hluta í bullandi vanskil-
um," segir hann.
Þórður Ingvi viðurkennir að fjármögn-
unarleigurnar eigi sinn þátt í auknum er-
lendum lántökum þar sem þær eiga nú frjáls-
an aðgang að erlendum lánamörkuðum en
hann neitar því að þeirra starfsemi hafi le|tl
til meiri raunaukningar erlendra skulda-
„Áður en fjármögnunarleigurnar komu til
fóru fyrirtækin til langlánanefndar og fengu
heimild til erlendrar lántöku allt að 67% a*
fjárfestingunni, viðskiptabanki ábyrgðis1
lántökuna gegn veði í fyrirtækinu og afgang'
inn varð það að fjármagna af eigin fé. Eft'r
að fjármögnunarleigurnar komu til hafa
fyrirtæki að mestu hætt svona lántöku og
snúa sér nú beint til fjármögnunarleigunnar
og fá tækið lánað 100% án áhættu. Þetta
gefur þeim betri möguleika á fjárfestingum
sem skila strax arði og þ.a.l. til að greiða síðar
niður skuldirnar. Það er ekkert slæmt vi
þetta þegar innlenda lánsféð er alltof dýrt.
• Ómar Friöriksson
*
Ahættan öll okkar megin
Eignarhald á tækjum eina tryggingin
i
48