Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 54
FÓLK
Þó svo aö Albert Jónsson sé hættur sem
fréttamaöur hjá ríkissjónvarpinu er ekki þar
með sagt að hann hafi losað sig við tjölmiðla.
Nýja starfinu hjá Öryggismálanefnd fylgir
óumflýjanlega að vera oft kallaður frétta-
mönnum til ráðgjafar og veita svör um marg-
flókin öryggis- og vígbúnaðarmál.
Albert, sem er stjórnmálafræðingur að
mennt, tekur við starfi framkvæmdastjóra
Öryggismálanefndar um miðjan mánuðinn
og leysir þar Gunnar Gunnarsson stjórn-
málafræðing af hólmi, sem hefur snúið sér að
kennslu við Háskólann.
„Ég hef unnið fyrir Öryggismálanefnd
áður, skrifað bækur og lagt stund á fræði-
mennsku á sviði vígbúnaðarmála, og því
fannst mér mjög freistandi að taka við af
Gunnari,11 segir hann. „Ég kem þó eflaust til
með að sakna fréttamennskunnar því ég
hafði mjög gaman af henni, bæði á frétta-
stofu hljóðvarpsins, þar sem ég starfaði fyrst,
og svo hjá sjónvarpinu.“
Albert segist reyndar ekki alfarið hættur
fjölmiðlastörfum því undanfarið hefur hann
unnið að undirbúningi nokkurra þátta fyrir
sjónvarpið um ísland og umheiminn. „Síð-
ustu vikurnar hjá sjónvarpinu var ég beðinn
um að undirbúa og skrifa handrit að þáttun-
um. Þarna er t.d. fjallað um hvernig sam-
skipti íslands við umheiminn hafa breyst og
hvernig eðli utanríkisstefnunnar hefur tekið
stakkaskiptum. Þarna verður bæði mikið
fjallað um utanríkisviðskiptinogöryggismál-
in og svo sérstöðu smáríkja í alþjóðasam-
félaginu, auk þess sem komið verður inn á
hugmynd utanríkisráðherra um ísland sem
griðastað þeirra sem reyna að koma á friði í
heiminum, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru
ekki umræðuþættir heldur „pródúserað"
efni sem tekur talsverðan tíma að fullvinna,"
segir Albert.
Albert er menntaður í sögu og stjórnmála-
fræði frá Háskóla íslands og lauk masters-
gráðu frá London School of Economics í
alþjóðastjórnmálum árið 1979. „Svo má
segja að ég sé langt kominn með doktorsrit-
gerð um þorskastríðin. Hún hefur þó verið
sett talsvert til hliðar þegar sem mest hefur
verið að gera í fréttamennskunni og í rann-
sóknum fyrir Öryggismálanefnd." í ofanálag
hefur Albert svo séð um stundakennslu í
alþjóðastjórnmálum við Háskóla íslands.
„Þetta er rökrétt framhald af þeim breyting-
um sem gerðar voru á Rás 2 í vor og henni
verður nú breytt úr glerhörðu poppútvarpi í
dægurmálaútvarp - við gerum umræðu um
hvers kyns málefni og fólk í daglega lífinu
hátt undir höfði,“ segir Stefán Jón Hafstein
forstöðumaður nýrrar dægurmáladeildar hjá
• Bankastjórinn og hobbíið.
gerðarfólk, þótti ýmsum sem tónlistarval
rásarinnar væri að komast inn á einkennileg-
ar brautir. „Þetta er misskilningur," segir
Stefán, „ við stóðum fyrir þessu í dægur-
máladeildinni við undirbúning breyting-
anna. Við erum að tala um öðruvísi tónlist en
leikin hefur verið á Rás 2 til þessa - góða
morguntónlist - ogspurðum: Hvernig tónlist
er best að vakna við? Auðvitað munum við
eftir sem áður velja tónlistina sjálf, en þarna
báðum við fólk um tillögur og því koma allar ,
stefnur í tónlist og frá öllum tímum, til
greina.
Fréttastofan verður að sjálfsögðu á sínum
stað í dagskránni og við verðum með útsend-
ingar af landsbyggðinni og frá fólki utan úr
heimi," segir Stefán, og bætir við:„Þarna
verður fjallað um allt milli himins og jarðar a
aðgengilegan hátt fyrir fólk í dagsins
önn."
Á dægurmáladeildinni nýtur Stefán lið-
sinnis margra gamalreyndra útvarpsmanna,
s.s. þeirra Ævars Kjartanssonar, Kolbrúnar
Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarsson-
ar.
•
Bragi Hannesson er daglega
bankastjóri í Iðnaðarbankanum - virðu-
legur með ímyndina í fullkomnu lagi-
Þegar dagsverkinu lýkur Iaumast hann
hins vegar að málaratrönum og festir á
léreft hugsýnir sínar og fær góða dóma
gagnrýnenda. Nú rétt í þessu er að ljúka
þriðju einkasýningu hans hjá Gallerí
Borg.
ríkisútvarpinu. Dægurmálaútvarp með nýju
sniði fór í loftið fimmta október. Upplýs-
inga- og fræðsluþáttur með fjölbreytilegu
músíkþeli tekur nú yfir morgunútvarpið á rás
2 en gömlu og góðu morgunþulirnir leika
lausum hala á rás 1 einsog á árum áður.
Talmálsliðir aukast líka að umfangi í síð-
degisdagskrá rásarinnar.
Þegar fréttist að starfsmenn útvarpsins
hefðu verið fengnir til að skrifa niður 10
uppáhalds morgunlögin sín í óformlegri
skoðanakönnun, til hliðsjónar fyrir þátta-
• Albert Jónsson:
Kem til með að
sakna
fréttamennskunnar.
• Stefán Jón
Hafstein:„úr
glerhörðu poppút-
útvarpi í dægurmála-
útvarp.
52