Þjóðlíf - 01.10.1987, Qupperneq 62
atvinnuöryggi. Eflaust væru samt ýmsir fúsir
til að fara í líklegt þingsæti sem ekki vilja fara
í prófkjörsbaráttu.
Petta er sameiginlegur vandi allra ís-
lenskra stjórnmálaflokka. Hnignun Alþýðu-
bandalagsforystunnar á hins vegar einnig
rætur í vaxandi aðskilnaði flokksins frá sam-
félaginu. Núverandi formaður Alþýðu-
bandalagsins á þarna stóran hlut að máli.
Svavar Gestsson var t.d. sérstakur talsmaður
þess árið 1979 að Álíheiður Ingadóttir, sem
þá var aðeins 28 ára gömul og nær alls
óreynd í stjórnmálum, tæki sæti Svövu
Jakobsdóttur í þriðja sæti listans í Reykjavík.
Einnig segir það sína sögu, að Svavar skuli
sitja enn sem formaður þrátt fýrir tap í
þrennum kosningum í röð, einna mest í
Reykjavík þar sem hann hefur skipað efsta
sætiðsíðan 1978.
Að mati formanns flokksins á Alþýðu-
bandalagið að vera flokkur af leninískri
gerð, sem verður að verjast spillandi áhrifum
umhverfisins. Innan flokksins á að ala upp
flokksfólk með sósíalísku fræðslustarfi.
Síðan er hugmyndin sú, að „flokkurinn
skipuleggi kerfisbundið flokksliðið til starfa í
öllum félagsmálahreyfingum, sem eiga eitt-
hvað skylt við málstað okkar: verkalýðs-
félögin eru þar auðvitað ofarlega á blaði, en
einnig samvinnuhreyfingin og margskonar
samtök önnur.“ (Svavar Gestsson: Skýrsla
til Varmalandsnefndar, bls. 50). Flokkurinn
á semsagt að sjá samfélaginu fyrir forystu-
fólki en væntanlega alls ekki að leiða „utan-
garðsfólk" til forystu. Samkvæmt hinni
leninísku hefð er það heldur ekki megin-
hlutverk flokksforystunnar að ná upp
kosningafylgi, heldur að varðveita sósíalism-
ann og forystusveit verkalýðsins, flokkinn.
LANDSFUNDURINN. í byrjun næsta
mánaðar verður haldinn landsfundur Al-
þýðubandalagsins. Þarna munu koma saman
u.þ.b. 300 fulltrúar frá fimm tugum flokks-
félaga víða á landinu. Hvað er líklegt að
gerist á þeim fundi miðað við þá þróun sem
lýst var hér á undan?
Ekki fæ ég séð að landsfundarfulltrúar geti
á nokkrum dögum gert það, sem Alþýðu-
bandalaginu hefur mistekist árum saman: að
smíða flokknum stefnu sem dregur til sín
kjósendur. Þar að auki hefur tlokkurinn nú
ákaflega lítið svigrúm til að marka sér afger-
andi málefnastöðu í íslenskri pólitík. Nýir
flokkar, Kvennalistinn og Borgaraflokkur-
inn, gegna hvor með sínum hætti hlutverki
,,andófsafla“, berjast með „fólkinu" gegn
,,kerfinu“. Alþýðuflokkurinn leggur áherslu
á umbætur innanfrá, er „ábyrgur“ ríkis-
stjórnarflokkur; Framsóknarflokkurinn
skírskotar til íslenskrar þjóðernishyggju,
m.a. með harkalegum mótmælum gegn
meintum afskiptum Bandaríkjamanna af
okkar málum. Állir þessir flokkar róa því á
hefðbundin mið Alþýðubandalagsins.
I rauninni er kosning formanns flokksins
hið eina sem á fundinum gerist og skiptir
STJORNMAL
verulegu máli. Þetta skal rökstutt nánar.
Gengi stjórnmálaflokka ræðst mjög af
þeirri ímynd sem foringjar þeirra skapa.
Ástæðan er fyrst og femst sú, að stærsti hóp-
ur kjósenda hefur ekki sterkar taugar til
neins ákveðins stjórnmálaflokks. Fram-
ganga flokksleiðtoga ræður miklu um af-
stöðu þessa hóps í kosningum. En mikilvægi
flokksforingja er einnig innávið; ekki síst er
það formannsins hlutverk að beina athygli
flokksfólks frá innanflokkserjum - besta ráð-
ið gegn þeim er oftast að snúa sér að ein-
hverju öðru, t.d. að halda 100 fundi um land
allt.
FULLTRÚARNIR. Hver verður svo for-
maður Alþýðubandalagsins? Við skulum
byrja á því að huga að þeim sem velja for-
manninn, landsfundarfulltrúum. Undanfar-
in ár hefur verið lítil endurnýjun í flokknum;
margir hafa hætt þátttöku í starfinu en fáir
komið í staðinn. Gamalgróið flokksfólk
verður því í miklum meirihluta á landsfundi.
Helstu forystumenn þessa hóps eru sjö af
átta þingmönnum flokksins: Geir Gunnars-
son, Skúli Alexandersson, Ragnar Arnalds,
Steingrímur J. Sigfússon, Hjörleifur Gutt-
ormsson, Margrét Frímannsdóttir og Svavar
Gestsson.
Reyndar er skipulag Alþýðubandalagsins
víðast hvar lítið annað en fámennir hópar í
nánum tengslum við þingmennina. Að vísu
er oft rætt um „lýðræðiskynslóðina" í
flokknum. Þessir einstaklingar eru mjög
áberandi í fjölmiðlum; þeir hafa stuðning
meðal kjósenda flokksins en litla rótfestu á
landsfundinum.
Alþýðubandalagið hefur síðasta áratug
fyrst og fremst valið fólk til forystustarfa á
grundvelli innra framgangskerfis. Engu að
síður hefur flokkurinn innan sinna raða
nokkra einstaklinga, sem uppfylla þær
hæfniskröfur sem í samfélaginu eru almennt
gerðar til forystufólks í stjórnmálum. Má þar
nefna þau Kristínu Ólafsdóttur og Ólaf
Ragnar Grímsson. Þau eru bæði mjög þekkt,
koma vel fyrir í fjölmiðlum, hafa mikla
reynslu af stjórnmálum og gætu hugsanlega
aflað Alþýðubandalaginu fylgis.
Engu að síður hygg ég, að útilokað sé að
annað hvort þeirra, eða einhver af sama tagi,
verði kjörið formaður Alþýðubandalagsins.
Á landsfundinum mun ráða sá mælikvarði.
sem þróast hefur í flokknum á undanförnum
áratug og áður var lýst. Ekki mun koma til
greina að velja einhvern, sem ógnað gæti
völdum þingflokksins og jafnvel gert tilkall
til ráðherrasætis, ef flokkurinn færi í ríkis-
stjórn. Varla yrðu þá t.d. Hjörleifur, Ragnar
og Svavar allir þrír ráðherrar aftur.
FORMAÐURINN. Á landsfundinum hygg
ég að talið verði eðlilegt, eins og Svavar
Gestsson skrifaði í skýrslu sinni „að miða við
það við skipun forystusveitar flokksins a
næstu mánuðum að þar verði til flokksmiðja,
sem þaldi saman um velferð flokksins númer
eitt, hvað sem á dynur, þar sem menn taki
höndúm saman um að taka hagsmuni flokks-
ins fram yfir hagsmuni sjálfs sín eða annarra
aðila. Til að ná því marki verður að endur-
skipuleggja forystusveitina. Það þýðir það,
að þeir sem merktir eru af innanflokksátök-
um síðustu ára skipti um vettvang og okkur
ber öllum að líta svo á að öll sæti trúnaðar-
manna séu opin, um leið og við hljótum öll
að taka þeim verkefnum sem flokkurinn vill
setja okkur til á hvaða vettvangi sem þau
kunna að vera.“
Á landsfundinum verður spilað eftir þeu11
leikreglum, sem valdakjarninn í Alþýðu'
bandalaginu hefur mótað. Meginkrafa hans
til flokksformannsins er að standa vörð um
valdakerfið í flokknum.
Ragnar Arnalds væri í lagi, en hann vill
fremur skrifa leikrit og kvikmyndahandrit.
í ljósi alls er að ofan greinir munu á lands-
fundi Alþýðubandalagsins vakna raddir um-
að ekki sé tímabært að skipta um formann ur
því að ekki náist samstaða um arftaka
Svavars. Valdakjarni flokksins mun verða
fljótur til að taka undir þessar óskir. Þetta
mun ganga eftir.
• Svanur Kristjánsson
TrioVing
hótelskrár
Erum þegar í notkun á
eftirtöldum hótelum:
Hótel Stefanía, Akureyri
Hótel Keflavík, Keflavík
Hótel Örk, Hverageröi
Hótel Saga, Reykjavík
Hótel Holliday Inn, Reykjavík
58