Þjóðlíf - 01.02.1990, Qupperneq 5

Þjóðlíf - 01.02.1990, Qupperneq 5
« ÉG KVAÐ NOKKRAR STEMMUR Sigurður A. Magnússon rithöfundur hefur komið ótrúlega víða við í land- kynningu á erlendum vettvangi. I viðtali við Þjóðlíf segir hann m.a. frá sérstæð- um persónuleikum, sem hafa fyrir tilvilj- un tengst þessu starfi. Meðal þeirra er milljónerinn Leví, sem var betlimunkur á Indlandi í tíu ár, en fékk áhuga á ís- lenskum rímnakveðskap... 42-45 Jafnaðarmannaflokkur íslands HVENÆR KEMURÞÚ? Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra í viðtali um formennsku í EFTA, nálgun íslands við Evrópu, ís- lenska fjölmiðla, stjórnmálaástandið og endurreisn hreyfingar jafnaðarmanna á íslandi 8-15 Bjartari tímar framundan. Bresk rannsókn um viðhorf fólks til þjóðfélags framtíðarinnar ....................... 65 VIÐSKIPTI Smáfréttir að utan.............. 66 VÍSINDI - HEILBRIGÐI Erfðatækni við víngerð ............. 68 Angórugeitur. Ullin af angóru- geitum mikil tískuvara.............. 68 Kræklingar mæla mengun í vatni..... 69 Nýtt lyf gegn krabbameini? Nýuppgötvaður hópur efna úr dýraríkinu gæti valdið byltingu í lyflækningum .. 70 Þolfimur hjólastóll................. 71 NEYTENDUR Auglýsingar fyrir böm. Leitað álits hagsmunaaðila, auglýsingasálfræðings og nokkurra barna................ 75 ÝMISLEGT Krossgáta..................... 78 Veröld sem verður Evrópubandalagið er hægt og örugglega að verða að efnahagslegu stórveldi og með jaðarsvæðunum — EFTA—ríkjunum verður EB það efnahagsveldi sem mestu skiptir á okkar svæði. íslendingar taka um þessar mundir þátt í viðræðum til undirbúnings evrópsku efnahagssvæði með aðgætni og nauðsynlegri djörfung. Sá misskilningur hefur slæðst inn í umræðu að undanförnu að við værum í þann mund að ganga inn í Evrópubandalagið sjálft. Það er ekki á dagskrá þessa stundina og gæti ekki orðið fyrr en eftir nokkur ár. En engu að síður er mögulegt að aðild okkar að evrópska efnahagssvæðinu muni skipta sköpum fyrir íslendinga í fram- tíðinni. íslendingar höfðu með höndum formennsku í EFTA einmitt þá mánuði, sem skóku heiminn með byltingunni í Austur—Evrópu í lok sl. árs. Formennska íslands mæltist mjög vel fyrir í Evrópu og þótti þjóðinni til sóma. í viðtali Þjóðlífs við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kemur fram að afdrif þessa máls muni ráða miklu um lífskjör okkar í náinni framtíð. Ýmislegt bendir til þess að íbúar evrópska efnahagssvæðisins eigi eftir að njóta mikillar hagsældar. En hagsældin er ekki einhlít. Það þarf bæði brauð og frið. Stórkostleg- ar breytingar í Evrópu skipta okkur íslendinga miklu eins og aðrar Evrópuþjóðir. Varsjárbandalagið er í fjörbrotunum og Nató mun breytast mikið á næstunni. Löngum hefur herinn og Nató klofið þessa þjóð á heiftrækinn hátt. E.t.v. eygjum við raunhæfa von um að því tímabili fari nú að ljúka. Eins og fram kemur hjá formanni Alþýðuflokksins í viðtalinu við Þjóðlíf má gera ráð fyrir að fjögur meginmál muni marka þróun stjórnmála á Islandi á næstu árum: kröfur um uppstokkun fiskveiðistefnunnar, uppstokkun landbúnaðarins, mótun raunhæfrar byggðastefnu og meira frjálsræði og opnun íslenska þjóðfélags- ins gagnvart umheiminum. Það er oft haft á orði að flokkakerfið á íslandi sé úrelt. Það endurspegli ekki lengur pólitískan vilja í landinu. Margir telja að flokkakerfið standi einatt vörð um veröld sem var. Og því miður á það við um ofangreind meginviðfangsefni íslenskra stjórnmála, að flestir stjórnmálaflokkanna ríghalda í það kerfi sem er, enda telja þröngir en valdamiklir hagsmunahópar sig hagnast best á því. Hræðslan við breytingar veldur og miklu. Meðal þess sem um þessar mundir er mjög til umræðu til uppstokkunar á íslenska flokkakerfinu er myndun nýrrar hreyfingar jafnaðar- manna og frjálslyndra afla, sem bíður eftir því að takast á við alveldi Sjálfstæðis- flokksins á jafnréttisgrundvelli. í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík hafa flokksvélar smá- flokkanna sýnt hvers þær eru megnugar í tregðunni gagnvart augljósum kröfum um samvinnu og valkost við Sjálfstæðisflokkinn. Þessar flokksvélar eru taplið dagsins í dag. Stofnanirnar sem ekki þorðu. Jón Baldvin spyr: Jafnaðarmannaflokkur íslands— hvenær kemur þú? Ætli margir myndu ekki svara þessari spurningu á þann veg að slíkur flokkur komi þegar allar litlu flokksvélarnar eru hættar að verja veröld sem var og beini sjónum sínum að veruleika dagsins og verkefnum veraldarinnar sem verður. Við höfum orðið vitni að heimssögulegum breytingum sem orðið hafa hjá mörgum þjóðum. Þær breytingar voru óhjákvæmilegar. Á íslandi standa menn einnig frammi fyrir óhjákvæmilegum breytingum. Meðal þeirra er umbylting hins úrelta flokkakerfis. Óskar Guðmundsson Úlgefandi: Félagsútgáfan h.f. Vesturgötu 10, box 1752,121 Reykjavík, sími 621880. Framkvæmdastjórn Félagsútgáfunnar: Björn Jónasson, Jóhann Antonsson, Skúli Thoroddsen. Sljórn: Svanur Kristjáns- son, Bjöm Jónasson, Ásgeir Sigurgestsson, Pétur Reimarsson, Jóhann Antonsson, Birgir Árnason, Skúli Thoroddsen. Albert Jónsson, Hallgnmur Guömundsson, Árni Siguijónsson. Ritstjóri bjóölífs: Óskar Guömundsson. Blaöam.: Kristján Ari Arason, Einar Heimisson, Sævar Guðbjörnsson. Setn. o.ll.: María Sigurðardóttir. PróFdrk: Guðrún. Fréttaritarar: Arthúr Björgvin Bollason (Munchen), Guðmundur Jónsson (London), Einar Karl Haraldsson (Stokkhólmi), Guðrún Helga Sigurðardóttir (Finnlandi). Ingólfur V. Gíslason (Lundi). Jón Ásgeir Sigurðsson (New Haven), Yngvi Kjartansson (Osló),Árni Snævarr (París). Forsíða, hiinnun: Erlingur Páll Ingvarsson. Ljósm. áforsíðu: Guðmund- ur Ingólfsson. Skrifstofustjóri: Guörún Björk Kristjánsdóttir. Bókhald: Jón Jóhannesson. Fram- kvæmdastjóri: Lára Sólnes. Auglýsingar: Hörður Pálmarsson. Markaður: Hrannar Björn. Prent- vinnsla: Prentstofa G. Benediktssonar hf. Kópavogi, sími: 641499. Blaðamenn símar: 623280 og 622251. Ritstjóri: 28230. Áskriftasími: 621880. Auglýsingasímar: 26450 og 28149. ÞJÓÐLÍF 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.