Þjóðlíf - 01.02.1990, Síða 18
INNLENT1
RÆÐUR EFNAHAGUR
STJÓRNMÁLAAFSTÖÐU
Skoðanakönnun meðal nemenda við Háskólann: Efnaminni stúdentar kjósa Röskvu en
einhleypir og efnaðir strákar fylgja Vöku
PÁLL VILHJÁLMSSON
Stúdentar við Háskóla íslands sem búa í
leiguhúsnæði eru mun líklegri til að kjósa
Röskvu, samtök félagshyggjufólks, en
hægraframboð Vöku. Einhleypir ungir
menn með háar sumartekjur eru aftur á
móti tryggustu fylgismenn Vöku. Nær
átta af hverjum tíu stúdentum sem búa í
foreldrahúsum kjósa Vöku.
upp á tæpum þriðjungi þeirra sem voru í
úrtakinu og rýrir það gildi könnunarinn-
ar. Einn af þeim nemendum sem lenti í
úrtakinu reyndist vera staddur í Afríku
þegar könnunin var gerð og maður verður
bara að ímynda sér hverju hann hefði svar-
að um stjórnmálaskoðanir sínar. Þrátt
fyrir afföll eru niðurstöðurnar tölfræðilega
Háskóli íslands. Síðustu árin hefur Vaka sótt í sig veðrið í stúdentapólitíkinni.
etta eru niðurstöður í skoðanakönn-
un sem tveir nemendur í félagsvís-
indadeild gerðu síðastliðið vor. Sif Ein-
arsdóttir og Skúli Helgason, en þau eru
sambýlingar, notuðu nokkrar kvöld-
stundir í apríl og maí til að hringja í 150
stúdenta við Háskólann og spyrja hvort
framboðið viðkomandi hafði kosið í
stúdentaráðskosningunum í mars.
Sif leggur stund á sálfræði en Skúli á
stjórnmálafræði, en könnunin var unnin á
námskeiði í aðferðafræði. „Það voru
margir feimnir við að segja okkur hvað
þeir kusu,“ segir Sif. Ekki tókst að hafa
marktækar og kennari gaf 8.5 af 10 mögu-
legum í einkunn fyrir verkefnið.
Tilgátan sem þau vildu prófa var um
tengsl milli afkomu og kosningahegðunar.
Sif og Skúli lögðu til grundvallar könnun-
inni stefnumál Röskvu og Vöku fyrir
stúdentaráðskosningarnar í fyrra.
„Röskva lagði meiri áherslu á heildar-
myndina, að stjórnmál almennt skiptu
máli fyrir stúdenta. Áhersla Vöku var aft-
ur á móti á hagsmunamál stúdenta í
þrengri skilningi," segir Sif. Megin-
ágreiningsefni við síðustu stúdentaráðs-
kosningar var afstaðan til tekjutengdra
námslána. Röskva var fylgjandi að náms-
lán yrðu tekjutengd þannig að lánin lækk-
uðu í hlutfalli við tekjur stúdenta. Vaka er
á öndverðum meiði og vill ekki að lán
verði tekjutengd. Rök vinstrimanna eru
að tekjutengd lán tryggi réttláta dreifingu
námslána, að þeir fái hæstu lánin sem
minnstar hafa tekjurnar. Hægrimenn
segja tekjutengd lán letja menn til vinnu
og það sé vangá.
Tilgáta Sifjar og Skúla var að efna-
minni námsmenn myndu fylkja sér
um Röskvu, en þeir efnaðri binda sitt
trúss við Vöku. í öllum megindráttum
staðfesti könnunin tilgátuna sem lagt var
af stað með: Það eru afgerandi tengsl á
milli efnahags stúdenta annars vegar og
hins vegar kosningahegðunar.
Rúm 60 prósent af þeim stúdentum sem
búa í leiguhúsnæði kjósa Röskvu, en tæp
40 prósent Vöku. Átta af hverjum u'u
stúdentum sem búa í foreldrahúsum kjósa
Vöku, en aðeins tveir Röskvu.
Það má gefa sér að stúdentar sem leigja
húsnæði á meðan á námi stendur hafi al-
mennt minni fjárráð en hinir sem búa í
foreldrahúsum. Algeng leiga á tveggja
herbergja íbúð í Reykjavík er 30 til 40
þúsund krónur á mánuði. Fyrirfram-
greiðslur tíðkast, allt upp í heilt ár. Til
samanburðar er leiga á tveggja herbergja
íbúð á hjónagörðum 25 þúsund krónur á
mánuði.
Tekjurnar einar sér skipta stúdentum í
tvær fylkingar. Þeir stúdentar sem voru
með innan við 200 þúsund króna tekjur
sumarið 1988 skiptu atkvæðum sínum
nokkurn veginn jafnt á milli Vöku og
Röskvu. Þó naut Röskva ívið meiri hylli
þessa tekjuhóps. Þegar tekjurnar aukast
verður annað upp á teningnum. Sjö af
hverjum tíu sem höfðu meira en 200 þús-
18 ÞJÓÐLÍF