Þjóðlíf - 01.04.1991, Blaðsíða 42
KVIKMYNDIR
TEIKNINGUM
GEFID LÍF
KRISTÓFER DIGNUS PÉTURSSON
Kvikmyndir og teiknimyndir hafa gengið
í farsælt og arðvænlegt h jónaband í borg-
inni Hollywood. Fyrstu afkvæmin eru
komin í heiminn og mörg fleiri á leiðinni.
Forstjórar kvikmyndaveranna og eig-
endur útgáfufyrirtækjanna mala nú gull
og ætla sannarlega að grípa gæsina með-
an hún gefst, og því ekki?
Hér er efni fyrir markhópa á öllum
aldri, ungir krakkar gleypa við myndun-
um og vörunum sem fylgja í kjölfarið,
táningar sem safna hasarblöðum láta sig
ekki vanta á kvikmynd um uppáhaldsof-
urhetjuna leikna af stórstirni og foreldrar,
afar og ömmur fylgja krökkunum sínum á
sýningarnar.
Helstu dæmi um velgengni mynda
byggðra á teiknimyndapersónum og sög-
um eru Superman myndirnar, Dick
Tracy (sem hreppti nokkra Óskara),
Batman og Skjaldbökurnar sem á varð
ótrúlegur hagnaður og slógu öll aðsóknar-
met. Nú er spurningin hvort væntanlegar
myndir í sama dúr standi undir nafni eða
hvort þær kæfi hverja aðra í flóðinu sem
væntanlegt er. Framleiðendur Batman og
Skjaldbakanna sáu sér færi og skelltu sér í
að gera framhald af fyrri myndunum og er
nú verið að sýna Skjaldbökurnar II
(Leyndarmál Slímsins) við góðar undir-
tektir vestanhafs. Sú spurning hvort
Batman II verði jafn vinsæl og sú fyrri
brennur nú heitast á vörum eigenda hluta-
bréfa í Warner kvikmyndaverinu en nú á
Danny DeVito að leika vonda kallinn í
stað Nicholson, sem lék Jókerinn svo eft-
irminnilega vel í fyrstu myndinni. DeVito
fer með hlutverk Mörgæsarinnar, en hún
er annar af verstu óvinum Batmans (leikin
sem áður af Michael Keaton). Það er leik-
stjórinn Tim Burton sem á að láta allt
smella saman jafn vel, ef ekki betur, og í
Batman I.
Önnur mynd sem beðið er með mikilli
eftirvæntingu er myndin The Rocketeer
sem byggð er á teiknimyndaseríu Dave
Stevens og framleidd af Disney. Sagan
gerist á 3. áratugnum og segir frá ungum
manni sem kemst yfir járnapparat sem
gerir honum kleift að fljúga um loftin blá
Michelangelo og Donatcllo í kvikmyndinni Skjaldbökurnar 2.
Hetjurnar í Watchensögunni semTerry Gilliam
ætlar að fílma.
42 ÞJÓÐLÍF