Þjóðlíf - 01.04.1991, Page 53
nð
Heiðurseimreiðarstjórar
Forstöðumenn ríkisreknu
járnbrautanna í fyrrverandi
Austur-Þýskalandi hafa
markaðssett gömul farartæki
stofnunarinnar, sem heyra
ættu söfnum til, með óvenju-
lega árangursríkum hætti.
Nokkrir stílhreinir og sér-
stæðir vagnar, sem og úr-
valsvagnar fyrrverandi ríkis-
stjórnar, hafa verið leigðir
fyrirtækjum og ferðaskrifstof-
um. Og við strendur Eystra-
salts er boðið upp á tíu daga
námskeið fyrir 55 þúsund
Lítil lest í Bad Doberan.
krónur þar sem menn geta
látið bernskudrauminn ræt-
ast. Þetta er á 15 kílómetra
langri járnbrautalínu milli Bad
Doberan og Kuhlungsborn,
þar sem nemendurnir geta
stjórnað gufustróknum sjálfir
og lært hvaðeina sem heyrir
til gamaldags járnbrautum. í
lok námskeiðsins fá menn
bréf upp á það að geta stjórn-
að járnbraut og titilinn „heið-
urseimreiðarstjóri“...
(Spiegel/óg)
Lúxushús fyrir lífstíð
Tímarit stjórnvalda í Sovét-
ríkjunum hefur gefið til
kynna, að Nikolai Ryskov
fyrrverandi forsætisráð-
herra megi reikna með að
halda öllum forréttindum
sínum til æviloka. Hann
gegndi embætti í fimm ár
en fékk hjartaáfall og varð
að hverfa frá í desember sl.
Þannig heldur hann einbýl-
ishúsi því sem hann hefur
búið í sem forsætisráð-
herra. Og auk þess fær
hann miðað við sovéskar
aðstæður tiltölulega há eft-
irlaun eða 1200 rúblur á
mánuði. Honum er tryggð
vönduð læknismeðferð og
aðstoð og sömuleiðis fær
hann að halda embættis-
bifreið sinni. Síðustu fréttir
herma að Ryskov hyggist
bjóða sig fram í næstu for-
setakosningum í Rússl-
andi...
(Spiegel/óg)
Tító í Bláu lestinni 1956.
Bláa lestin seld
Jámbrautalestir eru orðnar
sérstæð vara í viðskiptalífi
hinnar gömlu Austur-Evrópu.
Hin sögufræga „Bláa lest“,
sem Tító marskálkur í Júgó-
slavíu ferðaðist í um í landi
sínu á árunum 1948 til 1980 er
nú komin á sölulista. Bláa
lestin, „hótel á teinum“,
stendur saman af þremur
eimreiðarvögnum og níu sal-
arvögnum. Meðal þekktra
ferðafélaga voru þjóðhöfð-
ingjar eins og Elísabet Breta-
drottning og Leonid Brésnjef.
í tíð Títós var ferðaáætlun
lestarinnar ríkisleyndarmál.
Af öryggisástæðum var sam-
lita lest ævinlega ekið á und-
an lestinni sjálfri. Frá því að
hinsta ferðin varfarin, með lík
Títós frá Ljubljana til Belgrad,
hafa stjórnvöld og yfirstjórn
ríkisjárnbrautanna rifist um
eignarhald á Bláu lestinni. En
gífurlegur viðhaldskostnaður,
um 6 milljónir á ári, þvingar nú
til sölu. Þeir sem aðallega
hafa sýnt áhuga eru erlendar
ferðaskrifstofur og önnur er-
lend fyrirtæki...
IBM með fjötur um fót
Risafyrirtækið IBM er að
skera niður og endurskipu-
leggja víða í verksmiðjum sín-
um og fyrirtækjum. Alls verð-
ur fækkað um 14 þúsund
manns á næstunni, þar á
meðal í Þýskalandi. Fjögur
IBM fyrirtæki í Þýskalandi
verða fyrir barðinu á endur-
skipulagningunni; verksmiðj-
ur í Berlín, Böblingen, Mainz
og Sindelfingen, sem þykja
ekki nógu arðbærar, né held-
ur í stakk búnar til að standa
sig í sífellt harðari samkeppni
á tölvumarkaðnum. Forstjóri
IBM í Þýskalandi, Olaf Henkel
lét hafa eftir sér:„Þýsku IBM-
verksmiðjurnar eru orðin IBM
fjötur um fót“. Skynsamlegra
væri að flytja alla framleiðsl-
una til útlanda og að IBM
starfaði einungis sem sölufyr-
irtæki í Þýskalandi. Talið er
að samsetningarverksmiðj-
unni í Berlín sé sérstaklega
hætt í væntanlegum sam-
drætti, en þar starfa um eitt
þúsund manns...
ÞJÓÐLÍF 53