Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 6

Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 6
6 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 M örgum finnst sem 2007-yfir- bragð sé að færast yfir atvinnu lífið. Að hluta til er þetta rétt; að stærstum hluta rangt. Það eru fréttir af launum forstjóra, bank a- manna, hlutabréfabólu og falskri eftirspurn í hluta - fjárútboðum þar sem gerð eru hærri tilboð vegna fyrirsjáanlegra skerðinga sem minna á 2007 – sem og að bankarnir séu byrjaðir að lána stjórnendum og fjárfestum aftur fyrir kaupum á hlutabréfum. Í sjálfu sér er lítið hægt að segja við slíku – ef tryggingar eru nægar og lántakinn traustur. Þorri manna spyr sig hins vegar hvort forráðamenn bankanna sakni bóluáranna og hvort stórfelld hlutabréfakaup for - stjóranna séu ekki svolítið ögrandi. Eftir banka - hrun ið varð „ríkisvæðing“ þar sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins fóru í fangið á nýjum bönkum og kröfuhöfum og um leið voru ráðnir nýir forstjórar og lagt í fjárhagslega endurskipulagningu. En það fennir fljótt í sporin. Það mætti halda að bankar og önnur endurreist fyrirtæki ættu sér enga fortíð. Margir urðu hugsi eftir að Björgólfur Thor Björg - ólfsson sagði í samtali við Viðskiptablaðið að hann léti ekki plata sig tvisvar í að fjárfesta í íslenskum banka. „Fool me once, shame on you, fool me twice, shame on me“ er haft eftir Björgólfi. Ekki veit ég hvers vegna blaðið spurði Björgólf Thor hvort hann ætlaði að kaupa íslenskan banka aftur. Ef til vill verða fyrrverandi eigendur föllnu bankanna spurðir að því sama – enda eftirspurn eftir þeim ef marka má spurninguna. Og hver plataði Björgólf Thor? Hvers vegna var hann ekki spurður að því? Sennilega klóra 55 þúsund hluthafar í föllnu bönk - unum sér í kollinum og spyrja hver hafi platað hvern. Þeir fylgja Björgólfi Thor örugglega að málum og láta ekki plata sig tvisvar. Þrátt fyrir 2007-fréttir af falskri eftirspurn á hluta - bréfamarkaði er tilveran önnur á flestum heim ilum og hjá þorra fyrirtækja. Þegar maðurinn á götunni var spurður fyrir kosningar um hvað þær snerust svaraði hann að bragði: Að byggja upp öflugt atvinnulíf til að sem flestir hafi vinnu og svo hægt sé að standa undir velferðarkerfinu. Þetta var ekki flókið svar en þetta var besta svarið. Nýlega var ég spurður hvort ég vildi 2007 aftur. Ég hváði og spurði hvað átt væri við með 2007 í þessu tilfelli. Nú, þessi loforð um lækkun skatta og niðurfellingu skulda heimila. Ég svaraði því til að 2007 væri í huga fólks alþjóðlegu bóluárin 2004 til 2008 þegar bankarnir voru hreyfiaflið og tóku lánasnúning á flestum fyrirtækjum og heimilum. Þess vegna væri skuldavandinn enn að þvælast fyrir endurreisninni bæði hér heima og erlendis. Viljum við 2007 aftur? Já, auðvitað viljum að lands framleiðslan nái fyrri stigum og fari upp fyrir það sem hún var árið 2007, og gott betur, með eldmóði, vinnu, auknum fjárfestingum og hag - kvæmni. Hún er ennþá fimm prósentustigum lægri en hún var 2007 og fólk svarar því í könnunum að kreppan sé ekki búin. Það að ná upp framleiðslu ársins 2007 er hins vegar ekki það sama og „vera svo mikið 2007“ þegar eina breytan í formúlunni var erlent lánsfé og fé var ausið í allar áttir. Núna eru allt aðrar aðstæður. Illviðráðanlegur halli á ríkissjóði, sáralítill hagvöxtur, snjóhengja, ónógar fjárfestingar atvinnulífsins, mjög háir vextir, krafa um launahækkanir þegar ekki er innistæða fyrir þeim, verðbólga og of mikið atvinnuleysi. Endurfjármögnun heimila og fyrirtækja er ekki leyst þótt búið sé að afskrifa um eitt þúsund mill - jarða. Fólksflótti er enn til Noregs. Bankakerfið er of dýrt og stuðlar að krónískum háum vöxtum. Flókið skattakerfi og háir skattar hamla hagvexti. Verðtryggingin er núna jafnslæm fyrir lántakendur og óðaverðbólgan var fyrir lánveitendur fyrir tíma verðryggingarinnar. B ankahrunið skipti þjóðinni í tvennt; þá sem eiga og þá sem skulda. Þá sem seldu fyrirtæki og hoppuðu út úr bólunni á réttum tíma og hina sem keyptu af þeim. Um 30% framteljenda skulda meira en þeir eiga. Stór hluti þeirra er barnafólk sem hugsanlega getur staðið í skilum áfram þótt ekki sjái högg á vatni og illmögulegt sé fyrir það að skipta yfir í stærra húsnæði. Það spyr sig hvort það vilji vera áfram eins og hamstur í hjóli í vinnu fyrir bankana á meðan þeir sem voru með gengisbundin lán hafa fengið afskriftir. Verðbólgan frá febrúar árið 2007 er orðin 53% og undrar engan þótt skuldug heimilin gefi lítið fyrir speki um að verðbólgan sé meinið en ekki verðtryggingin. Skuldir heimila eru núna um 1.900 milljarðar, þar af eru verðtryggð íbúðalán um 1.200 milljarðar. Það kann að vera að yfirbragðið í heimi banka og forstjóra stærstu fyrirtækjanna líkist 2007. En raunveruleikinn er sá að ekki er öfundsvert fyrir nýja ríkisstjórn að taka við, svo mikið verk þarf að vinna. Þorri fólks og fyrirtækja hefur enn ekki náð þeirri fjárhagsstöðu að geta látið plata sig tvisvar í fjárfestingum. Læt ekki plata mig tvisvar Jón G. Hauksson „Mörgum finnst sem 2007-yfirbragð sé að færast yfir atvinnulífið. Að hluta til er þetta rétt; að stærstum hluta rangt.“ Leiðari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.