Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 21

Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 21
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 21 Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is myndun stjórnar Stjórnarmyndunarviðræð urn ­ar vöktu fyrst athygli vegna þess sem ekki var í fréttum: Hvað var að gerast á bak við tjöldin? Flókið sjónarspil eða bara einfalt kurteisistal fárra? Var formaður Fram ­ sóknarflokksins að snupra Bjarna Bene ­ diktsson viljandi með því að tala fyrst við aðra og það aftur og aftur? Það fór um marga sjálfstæðismenn. Framsóknarmaður sagði við Frjálsa verslun að „menn halda alltaf að hlutirnir séu flóknari en þeir eru í raun og veru. Það var ekkert sérstakt í gangi annað en að tala við alla“. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sig mundar Davíðs, segir að þessi taugatitringur hafi verið óþarfur og alls ekki eins alvarlegur og haldið var fram í fréttum. „Ég held ekki að þetta hafi varanleg áhrif á samstarf Sigmundar Davíðs og Bjarna. Þeir hafa áður unnið vel saman í þinginu og þekkjast vel,“ segir Jóhannes Þór. Lykilstaða sigmundar davíðs Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur er ekki heldur viss um að forleikurinn að stjórnmyndunarviðræðunum hafi verið nákvæmlega skipulagður leikþáttur af hálfu Framsóknarflokksins. „Þó er augljóst að Sigmundur Davíð vildi sýna að hann er i lykilstöðu; þeirri stöðu sem miðjuflokkar gjarnan hafa og Al þýðu ­ flokkur og Framsóknarflokkur höfðu áður,“ segir Stefanía. „Vandinn er að flokkarnir til vinstri töp ­ uðu svo hræðilega núna að þeir geta varla verið með í stjórn. Sigmundur Davíð vissi líka að Sjálfstæðisflokkurinn gæti ekkert leitað þótt töf yrði á formlegum stjórnar ­ myndunarviðræðum. Framsókn er með öll trompin á hendinni,“ segir Stefanía. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur hefur líka takmakaða trú á flóknu valdatafli í að draganda viðræðnanna: „Formaður í miðjuflokki býr við þær aðstæður að hann verður að leita samstarfs til hægri og vinstri. Einhver hópur í flokknum verður alltaf fyrir vonbrigðum með niðurstöðuna og formaðurinn verður að geta sagt við þann hóp: Ég reyndi en það reyndist ekki grundvöllur fyrir samstarfi,“ segir Ólafur. Ólafur segir einnig að Sigmundi Davíð hafi tekist að sýna að hann er í lykilstöðu, sem þrengir kosti Bjarna Benediktssonar, sem býr við þá aðstöðu að lífsnauðsyn er fyrir flokk hans að komast í stjórn. Hik á vinstri væng Framsóknar Stefanía bendir einnig á sögulegar ástæður: „Það eru líka gamlar efasemdir innan Fram sóknarflokksins um stjórnarsamstarf við sjálfstæðismenn,“ segir hún. „Það er vinstriarmur í flokknum og sagan sýnir að framsóknarmenn tapa oftast fylgi á samstarfi til hægri. Það var meira að segja farið að líta á flokkinn sem hægriflokk. Þess vegna getur hafa verið raunverulegur þrýst ingur innan hans að leita eftir við ­ brögðum vinstriflokkanna.“ Ólafur bendir líka á að sviptingarnar í póli tíkinni í vor hafi styrkt mjög stöðu Sig ­ mundar Davíðs. Hann hafði frjálsar hendur og umboðið frá forsetanum: „Sigmundur Davíð er ný stærð í íslensk ­ um stjórnmálum. Hann hefur orðið að þola háð og spott en hann hefur sýnt að hann er stjórnmálamaður af styrkleika sem ekki ber að vanmeta. Hann hefur hæfileika til að flytja fólki sannfærandi boðskap,“ segir Ólafur. áhætta sjálfstæðisflokks Viðmælendur Frjálsrar verslunar eru því á þeirri skoðun að taugatitringurinn sem varð á milli flokkanna í upphafi muni ekki hafa varanleg áhrif á samstarfið. Aðrir þættir gætu reynst vandasamari. Stefanía bendir á að „það getur verið áhættusamt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fara í stjórnarsamstarf á forsendum Fram sóknarflokksins. Það liggur í loft ­ inu að framsóknarleiðin verður valin í skuldamálum en skattalækkanir Sjálf ­

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.