Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 26
26 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
skoðun
þau hafa orðið
Sigurður B. Stefánsson segir að mikil bjartsýni hafi ríkt á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði um
miðjan apríl og ekki síst á Wall
Street þrátt fyrir mislitar horfur
í heimsbúskapnum og erfiða
skuldastöðu mikilvægra þjóða.
„Vísitölur hlutabréfa á Wall
Street fóru í byrjun apríl yfir
hæstu sögulegu gildi frá ár un um
2000 og 2007. Utan Banda-
ríkjanna hafa hlutabréf í kaup-
höllum að vísu ekki verið eins
sterk nema í Tókýó þar sem
Nikkei -vísitalan hefur hækkað
um 50% frá lokum september
2011. Sú hækkun er rakin til
stefnubreytingar japanska seðla-
bankans sem nú rær öllum árum
að því að lækka gengi jensins
og hefur gengi þess fallið um
20% gagnvart Bandaríkjadollar
á hálfu ári.“
Sigurður segir að hafa þurfi í
huga að S&P 500-vísitalan var í
annarri viku apríl á sömu slóðum
og í hágildum áranna 2000
og 2007. Frá árinu 2000 hefur
vísitala neysluverðs í Bandaríkj-
unum hækkað um 36% og eiga
hlutabréf því eftir að hækka um
það hlutfall til að ná raunvirði
þess árs. Sigurður segir að
jafn framt megi hafa í huga að
verðmæti hlutabréfa á mæli-
kvarða VH-hlutfalls var um 15 í
apríl 2013 en var um eða yfir 20 í
há gildum áranna 2000 og 2007.
„Verð á hrávörum lækkaði um
5% til miðs apríl frá ársbyrjun
2013 og um helmingur af 50%
hækkun á hrávörum frá miðju ári
2010 til apríl 2011 er genginn
til baka. Lægra hrávöruverð
hjálpar til að halda verðbólgu í
horfinu og kemur neytendum til
góða. Á hinn bóginn kemur þessi
verðlækkun niður á hrávöruútflytj-
endum og segir harkalega til sín
í verði hluta bréfa í kauphöllum í
Brasilíu, Rúss landi og Kanada
svo að dæmi séu nefnd.“
Hlutabréf á Wall Street
ná sögulegu hámarki
sigurður B. stefánsson
– sjóðstjóri hjá eignastýringu landsbankans
ERLEND
HLUTABRÉF
Ingibjörg Þórðardóttir segir að fasteignamarkaðurinn sé á nokkuð góðu róli eins og hann hefur verið undan-
farna mánuði. „Verð fór nokkuð
hækkandi í byrjun ársins en
hefur nú almennt staðið í stað.
Segja má að jafnvægi einkenni
markaðinn þó svo viss svæði
og áhugaverðar eignir veki
vissulega mikinn áhuga og leiði
þ.a.l. til meiri eftirspurnar. Miklar
umræður um fasteignalán hafa
eflaust haft áhrif á markaðinn
enda skipta þau miklu fyrir
kaupendur að tryggt sé visst
öryggi og fólk geti séð með
nokkurri vissu hver greiðslubyrði
sé fram í tímann. Þetta, ásamt
margháttuðum loforðum flokka
um aðgerðir í lánamálum fólks,
hefur greinilega áhrif á fast eigna-
markaðinn enda nokkuð sem fólk
bíður eftir að sjá hver þróunin
verður á og hvað kemur út úr
loforðum flokka um ýmsa þætti
er varða húsnæðislánamál og
leið sréttingar lána.“
Ingibjörg bendir á að vorið
sé framundan og reynslan hafi
sýnt að fasteignamarkaðinn
taki þá vissan kipp. „Fast-
eigna markaðurinn er oft, ólíkt
hlutabréfamarkaði, markaður
sem lýtur sálfræðilegum þáttum
og þar getur hækkandi sól og
bjartsýni haft áhrif.“ Kosningaár
ingiBjörg þórðardóttir,
– formaður félags fasteignasala
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Dow Jones síðustu tólf mánuðina
Breytingar á flokka -
kerfinu
dr. stefanÍa óskarsdóttir
– lektor við HÍ
STJÓRNMÁL
Samfylkingin var stofnuð sem mótvægi við Sjálf stæðisflokkinn. Allt frá stofnun Sjálf-
stæðisflokks ins hafði forystu-
mönnum hans tekist að halda
hægri vængnum sameinuðum
á meðan vinstri vængurinn var
klofinn á milli hófsamra og rót-
tækari vinstrimanna. Fyrirfram
höfðu ýmsir efasemdir um að
uppskera Samfylkingarinnar
yrði í samræmi við væntingar.
Sagt var að ekki væri í hendi að
fylgi vinstriflokk anna fjögurra
sem ætluðu að mynda Samfylk-
inguna færi allt til hins nýja flokks.
Einnig deildu menn um áhersl-
urnar og úr varð að róttækustu
vinstrimennirnir stofnuðu VG.
Í sínum fyrstu þingkosningum
1999 sótti Sam fylkingin inn á
miðjuna með skírskotun í stefnu
sem kennd var við hina „nýju
miðju“. Með því þrengdi hún
mjög stöðu Framsóknarflokks-
ins, sem skrapp saman í fylgi.
Þetta ógnaði hins vegar ekki
Sjálfstæðis flokknum sem fékk
sína bestu kosningu í 25 ár. VG
stóð eftir sem lítill vinstriflokkur
en Samfylkingin varð næst-
stærsti flokkur landsins.
Nú hefur flokkakerfið enn á ný
tekið breytingum. Undir styrkri
forystu formannsins hefur Fram-
sóknarflokkurinn endur heimt fyrri
stöðu sem stór miðjuflokkur. Til
vinstri við hann eru fjórir litlir
flokkar eins og var fyrir 1999.
En fylgisaukning Framsóknar-
flokksins er líka á kostnað
Sjálf stæðisflokksins sem kann
að hafa færst of mikið til hægri í
huga kjósenda.“
– í sambandi við allt
118 Já.is Stjörnur.is Símaskrá Já í símann i.ja.is
Já – það passar
Góðir hlutir koma í mörgum stærðum.
Nýi Já.is vefurinn lagar sig að því tæki sem þú skoðar hann í og er
jafnþægilegur í notkun á tölvuskjá og í snjallsíma.
Þetta er ein af fjölmörgum nýjungum sem gera Já.is notendavænni,
aðgengilegri og ítarlegri.
Við erum stolt af nýjum vef sem smellpassar fyrir alla.
J .i j r r.i í r J í í i.j .i