Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
Þetta var vitaskuld eldfimt mál í kosningabaráttunni og leiddi til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Fram sóknarflokkurinn náðu þar undirtökunum. Baráttan
hverfðist um hugmyndir framsóknarmanna
og þá sérstaklega hvað ætti að gera við
krón ur eða aðrar innlendar eignir sem end
uðu annaðhvort í Seðlabankanum eða hjá
ríkissjóði.
En þetta eru í raun og veru tvö mál sem bíða
komandi ríkisstjórnar:
Annars vegar aðferð við uppgjörið
á hinum föllnu bönkum
Hins vegar nýting fjármuna þegar
og ef þeir koma út úr uppgjörinu
Frosti Sigurjónsson, nú þingmaður Reyk
víkinga, bar oft í kosningabaráttunni hitann
og þungann af að útskýra hvað fælist í
hugmyndum framsóknarmanna. Alþýða
manna átti stundum erfitt með að fylgja
röksemdafærslunni en fyrirheit um lækkun
á húsnæðisskuldum freistaði kjósenda.
Og þar sem um pólitískt baráttumál var
og er að ræða er erfitt að fá hlutlægt mat
á hversu raunhæfar tillögur fram sóknar
manna eru. Frjáls verslun hefur rætt við
töluverðan hóp sérfræðinga og mat þeirra
er: Þetta eru raunhæfar hugmyndir en það
má deila um hvað á að gera við innlendar
eignir þrotabúanna sem hugsanlega féllu í
ríkiskassann.
eru kanínur í hattinum?
Gagnrýnendur framsóknarmanna hafa líkt
hugmyndum þeirra við að draga „kanínur
upp úr pípuhatti“ og álíka sjónhverfingar.
Hugmyndin er að þvinga kröfuhafa þrota
búanna til að fella niður hluta af kröfum
í innlendar eignir. Það eru mest krónur á
reikningum í bönkum og tveir bankar.
En hvernig getur niðurfelling á kröfum
orðið að peningum? Ef ég skulda þúsund
kall og fæ helminginn felldan niður get ég
ekki farið út í búð og keypt nammi fyrir það
sem fellt var niður! Allir sjá þetta.
En dæmið er svolítið flóknara. Það er rétt
að halda meginspurningunum aðskildum:
aðferðinni við uppgjör og hins vegar nýt
ingu fjármunanna.
Aðferðin sem framsóknarmenn vörpuðu
fram gengur í stuttu máli út á að segja
við erlenda eigendur krónueigna: Þið fáið
aldrei að skipta öllum þessum krónum í
gjaldgenga peninga. Það verður að semja.
Þið fáið nokkurn hluta – ef til vill bara
25%, ef til vill minna – allt annað verður
eftir á Íslandi. Hluta krafna eiga ríkið og
lífeyrissjóðir nú þegar.
Það sem eftir verður af eignum þrota bú
anna á Íslandi eru þá annaðhvort krónur
sem væntanlega yrðu fluttar í Seðlabanka
eða aðrar íslenskar eigur þrotabúanna.
Ríkið getur svo selt það sem hann fengi.
Arionbanki og Íslandsbanki eru stærstu
bitarnir.
Til vara mætti knýja áþekka lausn fram
með löggjöf.
Í raun er þetta töluvert mikill skattur sem
kröfuhafar verða að borga til að fá það sem
þeir telja sína eign og þar eru erlendar eigur
þrotabúanna langverðmætastar.
fugl í skógi – en samt fugl
Með þessu móti verður umtalsvert af eign
um erlendu kröfuhafanna eftir á Íslandi. Að
sjálfsögðu má deila um hve mikið: Engar
samningaviðræður eru hafnar, engin lög
gjöf hefur verið undirbúin og kröfuhafar
ekki lýst skoðun sinni opinberlega. Gylfi
Magnússon, dósent í hagfræði og áður
viðskiptaráðherra, segir að þetta sé mögu
leiki: Fugl í skógi en ekki fugl í hendi.
Í útreikningum sínum hefur Frosti
Sigur jónsson talað um að 300 milljarðar
íslenskra króna af eignum kröfuhafanna
verði eftir við uppgjör. Það kemur í hlut
samningamanna væntanlegrar ríkisstjónar
að finna út hvort sú tala er raunhæf.
Andmælin við þessa útreikninga hafa í
sjálfu sér ekki miðast við að hrekja þessa
tölu: 300 milljarða. Heppnist þessi leið er
um umtalsverða fjármuni að ræða og þeir
lenda hjá ríkinu.
Verra er að skipta fengnum þegar og ef
það tekst að ná honum úr netunum sem
leggja á fyrir kröfuhafana.
hvað svo?
Framsóknarmenn segja að þetta skapi
svig rúm til að lækka skuldir heimilanna
um 20%. Stefán Ólafsson, prófessor við
fé lagsvísindadeild HÍ, kallaði það fyrir
kosn ingar „tilboð sem heimilin gætu ekki
hafnað“. Fylgisaukning framsóknarmanna
í kosn ingunum bendir til að það mat hafi
verið rétt.
Fylgismenn annarra flokka hafa yfirleitt
andmælt niðurfellingu húsnæðisskulda.
Það byggist á margvíslegnum rökum.
Það er ekki víst að lækkun skulda leysi
vanda þeirra sem verst standa. Og svo er
gagnrýnt að verið er að lofa sannkölluðum
„vonarpeningum“. Enginn afli er kominn á
land og því of snemmt að skipta hlutnum.
Eftir því sem leið á kosningabaráttuna
fínpússuðu framsóknarmenn einnig hug
myndir sínar. Bein niðurfelling er ávísun
á neyslubólu: skuldaaflausnin þarf að
koma fram á mörgum árum. Annars leiðir
hún af sér verðbólguskot og hækkun hús
næðisverðs þegar fjöldi fólks nýtir aukið
svigrúm til að stækka við sig. Aukið pen
ingamagn í umferð leiðir til gengisfalls.
Og svo réttlætismálið: Aðferð framsóknar
manna þýðir að skuldir ríkis sjóðs minnka
niðuRfellinG sKuLda Heimila
„Heppnist þessi leið er
um umtalsverða fjár-
muni að ræða og þeir
lenda hjá ríkinu.“
„Fylgismenn annarra
flokka hafa yfirleitt
andmælt niðurfellingu
húsnæðisskulda.“
er leið framsóknarflokksins gerleg? þeir meta stöðuna;
pétur Blöndal, ásgeir jónsson og gylfi magnússon.