Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 49
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 49
ekki þótt hagur hans batni. Allir skatt borg
ar ar verða að sameinast um að borga þær
en bara þeir skuldugustu njóta þess að hús
næðislánin þeirra lækka.
lítil Þjóð í klóm gamma
Og hér hangir fleira á spýtunni. Það er of
einfalt að kalla þetta tilboð til heimilanna.
Einnig hinir skuldlausu hafa verið hrifnir af
hörkunni í málflutningi framsóknarmanna.
Það má ekki gleyma þjóðarstoltinu. Icesave
deilan sýndi að það er slæm gleymska.
Þjóðernisvitundin er umtalsverður þátt ur
í viðhorfum manna. Fráfarandi ríkis stjórn
hefur verið sökuð um linkind í garð er l endra
kröfuhafa. Framsóknarmenn töluðu aftur á
móti um um að sækja fjár munina með „kylfu
og haglabyssu“. Líka það gefur at kvæði.
Um 80% hröfuhafa í þrotabú bank anna eru
svokallaðir hrægammasjóðir – eða vulture
fonds á ensku. Nafnið eitt er hrollvekjandi:
Slefandi gammar sitja á hræi og reyna að
slíta í sig það sem eftir er ætilegt. Hræið er
Ísland og gammarnir samviskulausir fjár
málamenn sem hafa keypt kröfur fyrir lítið
og vilja nú fá mikið fyrir þær.
Dæmi eru um að kröfur á hendur föllnum
íslenskum banka hafi selst á 3% af nafnvirði.
Núna gætu 2030% af nafnvirði fengist upp
í kröfurnar. Sá sem keypti á 3% á því von
á verulegum hagnaði. Á að láta gammana
komast upp með þetta? Á lítil þjóð að láta
undan ofurefli gammanna?
löglegir en mátulega
siðlausir
Hrægammasjóðir eru löglegir: Það má fjár
festa í kröfum á þrotabú og spurning hvort
þetta er siðlaust. Bankarnir tóku þessa
fjármuni að láni, jafnvel löngu eftir að ljóst
var að þeir gætu aldrei borgað. Upphafið
er hjá þeim sem lánuðu og tóku lánin –
eftirleikurinn hjá þeim sem hafa fjárfest í
skuldunum. Þetta er allt mátulega siðlaust.
Kaup á föllnum skuldum eru
áhættufjárfesting. Stundum tapast allt. Því
er það svo að margir fjárfestar leggja gjarn
an í púkkið þegar „hrægammasjóður“ er
stofnaður um tiltekin kaup. Markmiðið
er að innheimta eins mikið og hægt er af
skuldinni, greiða út arðinn og leysa svo
sjóðinn upp.
Stundum hafa fjárfestarnir tekið lán til kaup anna. Þeim liggur því oft á að ljúka við skiptunum, endurgreiða lánið
með sem minnstum fjármagnskostnaði og
nýta hagn aðinn til nýrra fjárfestinga.
Kröfurnar á föllnu íslensku bankana eru
kröfur á einkafyrirtæki sem koma íslenska
ríkinu ekki beint við. Það er ólíkt því sem er
um kaup á skuldum ríkja eins og Argentínu.
Þar voru allar skuldur seldar á 20% af
nafn virði og verða væntanlega innheimtar
meðan nokkuð er að hafa út úr argentíska
ríkinu. Hagur almennings er þar aukaatriði.
verður höggvið á hnútinn?
Kröfur á föllnu bankana varða íslenska
ríkið óbeint því hluti þessara krafna er í ís
lenskum krónum. Sjóðirnir vilja skipta þeim
fyrir gjaldeyri og sá gjaldeyrir er ekki til.
Á meðan ekki verður samið um uppgjör
þessara skulda situr allt fast. Íslenska ríkið
getur beðið en efnahagslífið situr þá fast í
gjaldeyrishöftum um ófyrirséða framtíð.
Eigendur skuldanna geta beðið en hve
lengi? Allir hafa hag af að ljúka upp gjör
inu en eftir stendur vandinn með skipt
ingu krafnanna. Það er verkefni næstu
ríkisstjórnar að reyna að höggva á hnútinn.
Framsóknarmenn hafa lofað að höggva á
hnútinn og aðrir vilja það líka. Fráfarandi
ríkis stjórn byrjaði þó ekki einu sinni að brýna
kutann. Verði framsóknarmenn í næstu
ríkisstjórn verða þeir að standa við stóru
orðin, ná krónunum – og lækka skuldir.
„Hræið er Ísland og
gammarnir samvisku-
lausir fjár málamenn
sem hafa keypt kröfur
fyrir lítið og vilja nú fá
mikið fyrir þær.“
pétur H. blöndal um leið framsóknarflokksins til skuldalækkunar:
Möguleg leið en
aLLs ekki Sú BeSTa
– segir Pétur h. Blöndal, Sjálfstæðisflokki
pétur H. Blöndal hefur langa reynslu af rekstri fjármálastofnana og
hefur gangrýnt hugmyndir framsóknarmanna um að nýta svigrúm,
sem gæti skapast við uppgjör þrotabúa bankanna, til að lækka
húsnæðisskuldir. Hvað finnst honum að?
Þ
etta er gerlegt og það
verður gert samkomulag
eða beitt lagasetningu í
náinni framtíð og við það
opnast ýmsir möguleikar.
En eins og hugmyndin er
útfærð af framsóknarmönnum er þetta
ekki góð aðgerð og mjög ófélagsleg,“
segir Pétur H. Blöndal.
Pétur er sjálfstæðismaður og því
sam kvæmt skilgreiningu að keppa við
Framsóknarflokkinn um hylli kjósenda.
Hann hefur líka reynslu af störfum á fjár-
málamarkaði og var áður alltaf kennd ur
við fyrirtæki sitt: Kaupþing.
Við biðjum Pétur fyrst að útskýra hvern ig
þetta er gerleg leið – að uppgjör við
kröfuhafa þrotabúanna auki svigrúm
ríkissjóðs.
Hann bendir á tvær tölulegar staðreyndir:
Annars vegar eru krónueignir kröfuhaf-
anna á Íslandi um 1.200 milljarðar.