Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 50

Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 50
50 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 Kröfuhafar vilja fá þessa eign útborgaða í gjaldeyri en fá ekki og vita að íslenskt þjóðarbú getur aldrei borgað þessa kröfu alla. Mögulegar gjaldeyristekjur í framtíð- inni hrökkva ekki til. Hins vegar eiga kröfuhafar um 2.000 milljarða í erlendum eignum, mikið af því inneignir í erlendum bönkum. Kröfuhaf arnir vilja fyrir alla muni fá yfirráð yfir þess- um eignum. Þessar erlendu eignir munu væntanlega lenda hjá kröfuhöfunum en er haldið sem tryggingu til að knýja fram samninga um lækkun á krónueignunum. Um þessa stöðu segir Pétur: Hags munir kröfuhafanna og Íslands fara saman því kröfuhafarnir hafa hag af því að íslenskt atvinnulíf geti framleitt nægan gjaldeyri til að greiða afganginn af krónunum. Til þess þarf að afnema gjaldeyrishöftin strax og lækka skatta á gjaldeyrisskapandi atvinnu- greinar. Ef gengið er til samninga við kröfuhaf ana um niðurfellingu á hluta krónueign anna kemur það fram sem bætt skuldstaða ríkissjóðs. Ef helmingur – 600 milljarðar – er felldur niður annaðhvort með samningi eða lögum batnar skulda staða ríkissjóðs að sama marki. Það eykur svigrúm ríkis- sjóðs. En til hvaða aðgerða? „Ég hef nefnt dæmi af manni sem skuldaði milljón en gat ekki borgað. Hann fékk helminginn felldan niður og hélt þá veislu fyrir vini sína vegna þess að nú skuldaði hann hálfri milljón minna en áður. Allir sjá að þetta gengur ekki. Það varð ekkert fé til við lækkun skuld arinnar,“ segir Pétur. En með sama hætti myndi skuldastaða ríkissjóðs batna við við niðurfellingu krafna erlendra kröfuhafa. Pétur seg ir að eftirgjöf- in gæti komið fram í því að ríkið fengi bankana tvo, Arion og Íslandsbanka, í sinn hlut og gæti selt þá. Bankarnir eru 200 milljarða virði eða svo. Meira gæti fengist út úr samningum um krónueignirnar en hvað á að gera við hagnaðinn? Framsóknarmenn vilja að hagnaðurinn verði notaður til að lækka húsnæðisskuldir. Skuldastaða ríkissjóðs væri þá óbreytt frá því sem var fyrir samningana en skulda- staða húsnæðiseigenda myndi batna. Þetta kallar Pétur „slæma og ófélagslega aðgerð“. Rök hans eru þau að ekki standa allir jafnt þegar kemur að skuldum í húsnæði. Hann skiptir fólki í fjóra hópa með till iti til stöðu þess á húsnæðismarkaði: 21% skuldar ekki (Pétur hefur fyrirvara um að þetta er byggt á mati) 27% eru leigjendur 32%-42% skulda í húsnæði og eru með sín mál í lagi 10%-20% eru í vanda (sumir miklum) – keyptu íbúð 2004-2009 Þessi skipting sýnir að 48% fólks nytu þess ekki á neinn hátt þótt húsnæðis- skuldir lækkuðu. Þetta fólk yrði eftir sem áður að greiða háa skatta því staða ríkis- sjóðs hefði ekkert batnað og hann þyrfti að greiða gífurlega vexti. Fyrir þau 32%-42%, sem eru aflögufær, væri lækkun skulda vafalaust kærkom in en engin nauðsyn. Eiginfjárstaða þessa hóps myndi batna en það er háð aðferðum við niðurfellingu skuldanna hvort það kæmi fram í aukinni kaupgetu. Andstaða Péturs við lausn Fram sóknar- flokks ins byggist á því að hann telur að það komi öllum til góða ef staða ríkis sjóðs batnar og það er hægt að nota aukið svigrúm til skattalækkana. „Og það er óskynsamlegt að lofa fólki úrbótum áður en um nokkuð hefur verið samið og kann að skaða samningaferl ið,“ segir Pétur H. Blöndal. „Þetta er gerlegt og það verður gert sam- komulag eða beitt laga setningu í náinni framtíð.“ niðurfeLLinG skuLDa

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.