Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 52
52 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
niðurfeLLinG skuLDa
umferð og afhentar íslenskum aðilum. Það
myndi leiða til viðskiptahalla og út streymis
peninga rétt eins og þegar svokallaðir
„hrægammasjóðir“ vilja skipta krónunni fyrir
gjaldeyri.
„Að einhverju leyti stendur valið á milli
þess að endurdreifa krónunum inn í hag-
kerfi ð til þess að lækka skuldir eða taka
þær úr umferð til þess að geta afnumið
höftin,“ segir Ásgeir. „Ég efast því um að
hægt væri að afnema gjaldeyrishöftin í
bráð þótt búið væri að ganga frá uppgjöri
bankanna.“
Best að loka
peningana inni
Það er hægt að koma í veg fyrir að lækkun
skulda komi fram sem aukin kaupgeta en
þá kemur hún fram sem aukið svigrúm til
húsnæðiskaupa. Það gæti valdið þenslu á
húsnæðismarkaði.
„Það besta sem ríkið gæti gert við þessa
peninga væri að taka þá úr umferð. Loka
þá inni í Seðlabankanum,“ segir Ásgeir. Í
Seðlabankanum gætu krónunar gert gagn
við að endurreisa bankann eftir gjaldþrotið
í bankahruninu. Það myndi létta á skuldum
ríkisins og koma öllum til góða.
„Útfærslan á hugmyndum Framsóknar-
flokksins er mjög vandasöm og krefst þess
að fjármálakerfi og skuldir séu endurskipu-
lagðar á sama tíma og skuldalækkun fer
fram,“ segir Ásgeir. „Það er hægt að gera
það eins og lofað hefur verið en það getur
haft alvarlegar afleiðingar fyrir stöðug leik-
ann í efnahagslífinu.“
Þ
að er hægt að semja þannig að
opinberir íslenskir aðilar, ríkið
eða Seðlabankinn, geti bókfært
hagnað í krónum,“ segir Gylfi
Magnússon og tekur þannig
undir með framsóknarmönnum: Þetta er
raunhæfur möguleiki ef allt fer á besta veg.
„Íslendingar meta krónur meira en útlend-
ingar. Því er líklegast að krónueignir verði
eftir hér og þar að auki eiga bæði ríkissjóð-
ur og Seðlabanki kröfur í þrotabúin,“
segir Gylfi. „Þessar krónur gætu fengist á
hagstæðara gengi en hinu opinbera gengi.
Það eru til fordæmi fyrir svona skiptum.“
Gylfi vill hins vegar ekki geta sér til um
upphæð. Það sé ekkert hægt að segja
um niðurstöðu þegar viðræður um uppgjör
þrota búanna eru ekki einu sinni hafnar. Þetta
sé bara möguleiki sem gæti skilað krón um í
ríkissjóð.
„Mér finnst skynsamlegt að áætla þessa
upphæð hóflega,“ segir Gylfi.
Gylfi bendir og á að upp úr samninga-
við ræðum gæti slitnað og allt endað í
mála ferlum. „Dómur félli væntanlega fyrir
íslenskum dómstól en angar af þessu
gætu líka endað hjá EFTA-dómstólnum því
gjald eyrishöftin byggjast á undanþágu frá
EES-samningnum. Það er óvíst hve langt
má teygja þá undanþágu og hve lengi,“
segir Gylfi.
forgangsröðun
Annað mál er svo hvað skynsamlegt er að
gera þegar og ef samningar skila krónum
í ríkissjóð.
„Þetta er spurning um pólitíska forgangs-
röðun,“ segir Gylfi. „Það er hægt að ráð -
stafa fé í að bæta heilbrigðiskerfið, vega-
kerfið eða að bæta mönnum tjón sem þeir
telja sig hafa orðið fyrir við fall bank anna.
Eðlilegast virðist þó að ráðstafa þessu til
að lækka skuldir ríkisins.“
Afskriftir skulda eru þannig pólitísk
ákvörð un. Þá þarf að finna reglu fyrir slíkri
lækkun. Á að leita uppi hópa sem hafa
orðið verst úti eða á að hafa flatan niður-
skurð á allar húsnæðisskuldir?
„Vandinn er að þeir sem skulda mest
eiga oftast mest og hafa mestar tekjur.
Þetta eru ekki þeir sem eru í mestum
vanda en myndu hagnast mest á flöt um
niður skurði. Þeir sem ekkert skulda fengju
ekkert. Lækkun skulda kemur mjög mis -
jafn lega fram eftir þjóðfélagshópum og
landshlutum,“ segir Gylfi.
stöðugleikinn
Spurningin um réttlæti er því einn angi
andmælanna við leið Framsóknarflokksins.
Annað er hvaða afleiðingar lækkun skulda
hefði fyrir efnahagslífið. Stefnir skuldalækk-
un stöðugleikanum í hættu?
„Það er óhjákvæmilegt að rýmri hagur
með lækkun skulda endar að einhverju
marki úti í verðlaginu þótt reynt sé að tefja
og minnka þau áhrif. Það er hætta á að
þessi áhrif komi fram sem þensla; aukin
neysla og viðskiptahalli og þá þarf að
grípa til mótvægisaðgerða,“ segir Gylfi.
Þess ar mótvægisaðgerðir yrðu væntan-
lega að hækka vexti og hækka skatta og
það væri mjög bagalegt fyrir atvinnulífið.
„Það virðist gagnlegast fyrir alla að skili
eitthvert fé sér verði það einkum nýtt til að
lækka skuldir ríkisins,“ segir Gylfi Magnús-
son.
Gylfi magnússon hagfræðingur um tillögur framsóknarmanna:
HæTTa á ÞensLu
og ViðSkipTaHalla
gylfi magnússon, dósent í viðskiptafræðideild HÍ, telur að við
uppgjör þrotabúa hinna föllnu banka geti orðið til fjármunir í ríkissjóði.
Hve miklir er ómögulegt að segja og ekki hægt að útiloka að allt endi
í ljótum málaferlum. En það er pólitísk ákvörðun hvað gert verður
við peningana.
„Vandinn er að þeir
sem skulda mest eiga
oftast mest og hafa
mestar tekjur.“