Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 57

Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 57
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 57 ágúst 2009. Síðan hefur málið í raun verið stopp. Til marks um þá óvissu sem hefur verið sköpuð í samskiptum við ríkisvaldið nefnir Ragnar fyrstu hugmyndir um kol ­ efn is­ og raforkuskatt. Þær útfærslur sem þar voru kynntar hefðu haft í för með sér fimm milljarða króna gjaldtöku á Norðurál eitt og sér. Ragnar segir að það séu vinnu ­ brögð sem ekki séu boðleg. næG orka fyrir Hendi Það er oft erfitt að átta sig á því hvaða orka stendur raunverulega til boða, vísind in segja eitt og pólitíkin annað, og nýjar upp ­ lýsingar og reynsla koma fram eftir því sem tíminn líður. Þegar verkefnið fór af stað var áætlað að á Suðvestur landi væru fyrir hendi orkukostir sem saman lagt næmu um 1.500 MW. Ef litið er á helstu kosti sam ­ kvæmt nýsamþykktri rammaáætlun eru ríflega 700 MW í nýtingarflokki og önnur 700 MW í biðflokki. Þetta er auðvitað ekki ein falt mál þar sem kostir hafa verið að fara á milli nýtingar­ og biðflokks eftir lög ­ málum sem ekki verða alltaf séð fyrir. Ef til eru 100­200 MW þarf um 150 MW í viðbót til að koma verkefninu af stað og önnur 150 MW til að klára þrjá áfanga. Ragnar segir að enginn vafi sé á því að iðnaðar­ og hafnarsvæðið við Helguvík henti vel fyrir álver. Hafnaraðstaða sé þar góð og öflug þjónustu­, byggingar­ og þekk ingar fyrirtæki séu í nágrenninu. Þarna sé stórt atvinnusvæði með ríflega 21 þús ­ und íbúa og aðgangur að vel menntuðu og hæfu vinnuafli. Nú liggja fyrir öll leyfi og samþykktir vegna 250 þúsund tonna álvers í Helguvík, sem skipt hefur verið í þrjá áfanga í áætlunum Norðuráls. Eins og áður segir strandar fyrst og fremst á að orkusamningar verði uppfylltir. Ef ráðist er í að byggja tvo áfanga, eða 180 þúsund tonna álver, má ætla að um 5.000 ársverk skapist á um það bil fjórum árum. Það er þá vegna byggingar álversins, virkjana og lína. Af þessum framkvæmdum skapast síðan 1.000 varanleg störf, bæði bein og óbein, samkvæmt útreikningum Norðuráls. Hér er því mikið í húfi, ekki aðeins fyrir Norðurál, heldur einnig at ­ vinnu ástandið í landinu. Þar er þó alltaf ein hver vinna í gangi þótt Ragnar taki fram að það sé í algeru lágmarki núna. miklar fjárfestinGar á GrundartanGa En á meðan biðstaða ríkir í Helguvík er allt á fullu á Grundartanga. Norðurál undir rit ­ aði í lok síðasta árs verksamning við ÍAV um byggingu 1.600 fermetra mannvirkja við álverið á Grundartanga. Verklok eru áætluð á haustmánuðum 2013. Þetta tengist straumhækkunarverkefni sem er fjárfesting fyrir á annan tug milljarða króna. Stærstu verkþættir vegna stækkunarinnar á Grundar tanga eru stækkun aðveitustöðvar og um f angsmikil endurnýjun í skautsmiðju til þess að geta tekið stærri rafskaut í not kun. Þá verður ráðist í að stækka skaut ­ gaffla verksmiðjunnar þannig að þeir beri meiri straum. Verkefnið hefur það markmið að auka framleiðni, rekstraröryggi og fram leiðslu upp í 320 til 330 þúsund tonn af áli á ári. Það yrði talsverð viðbót en á Grundartanga voru framleidd 284 þúsund tonn á síðasta ári. Núverandi starfsleyfi miðast við 300 þúsund tonna framleiðslu en unnið er að breytingu á því. Þá er vert að geta þess að móðurfélag Norðuráls keypti nýlega rafskautaverksmiðju í Hollandi og hefur ráðist í talsverða fjárfestingu þar. Framleiðsla verksmiðjunnar verður að stærst um hluta notuð í álverum Norðuráls á Grundartanga og í Helguvík. Reiknað er með að verkefnið muni skapa um 100 störf á framkvæmdatímanum og auka framleiðslu um allt að 50 þúsund tonn á ári eins og áður segir. Á síðasta ári not aði Norðurál 4.300 GWst, eða tæplega fjórðung alls rafmagns sem framleitt er á Íslandi. Raforkan er keypt af Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun og HS Orku. Norðurál er dótturfyrirtæki Century Alum­ inum sem er skráð á opinberan hluta bréfa­ markað. Höfuðstöðvar móður félagsins hafa verið í Kaliforníu í í Banda ríkjunum en flytja til Chicago síðar á þessu ári. meðallaun 615.000 á mánuði Heildarverðmæti álsins sem framleitt var á Grundartanga á síðasta ári var nálægt 80 milljörðum króna. Samkvæmt tölum sem Ragnar dró fram var launakostnaður á síðasta ári 8,7 milljónir króna að meðal­ tali á starfsmann. Þá eru launatengd gjöld innifalin. Það jafngildir um 615 þús und krónum að meðaltali á mánuði, sem er talsvert hærra en á almennum vinnu mark ­ aði. Samkvæmt nýlegum tölum Hag stof ­ unnar voru meðallaun á almennum vinnu ­ markaði hér á landi 510 þúsund krónur á síðasta ári. Hjá Norðuráli voru 600 starfsmenn að jafnaði á síðasta ári. Að sögn Ragnars er starfsmannavelta með minnsta móti miðað við önnur íslensk iðnfyrirtæki. Hann segist halda að fólki þyki ágætt að starfa hjá fyrir tækinu og ánægjumælingar þess sýni það. Heldur hallar á konur í fyrirtækinu, þær eru á milli 20 og 25% starfsmanna en Ragnar tekur fram að vilji félagsins standi til að fjölga þeim. „Það eru ákveðnir þættir sem hamla því að við náum jöfnu hlutfalli. Þar skiptir staðsetning miklu, við erum jú fjarri þéttbýli. Sömuleiðis hefur vaktavinna áhrif en það er okkar reynsla að karlar eru frekar tilbúnir í vaktavinnu. Þá erum við með mikinn fjölda iðnaðarmanna sem eru fyrst og fremst rafvirkjar og vélvirkjar og það hafa fáar konur lært þess ar greinar. Þegar kemur upp í stéttir lang skóla geng­ inna breytist hlutfallið og verður jafnara.“ einn stærsti skattGreiðandi landsins Ragnar segir fjárhagsstöðu félagsins trausta. Skattamál félagsins komust í um ­ ræðuna fyrir stuttu í kjölfar umfjöllunar Kastljóss Ríkissjónvarpsins. Þar fóru rangar upplýsingar í umferð sem Ragnar segir að hafi verið reynt að leiðrétta, meðal annars af fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Félagið sé, öfugt við það sem þá var sagt, einn stærsti skattgreiðandi landsins, næst á eftir bönk unum og opinberum aðilum. Árið 2012 greiddi Norðurál á Grundartanga tæplega 1,9 milljarða króna í opinber gjöld sem setti félagið í 7. sæti yfir gjaldendur á landinu öllu, og er þá ekki meðtalin sér­ stök fyrirframgreiðsla vegna síðari tíma „Ef litið er á stærð fjárfestingarinnar kann að vera hag - kvæmara að flytja hluta fram leiðsl - unnar í Evrópu til Ís lands, eins og segja má að gert hafi verið í tilfelli áliðn - aðarins, fremur en að leggja þangað langan og dýran streng.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.