Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 62

Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 62
62 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 áliðnaður oG raforkan Framlegð orkufyrirtækja hefur stóraukist undanfarna áratugi en áliðnaðurinn kaupir um 70% af þeirri raforku sem er framleidd hér á landi. Það jafngildir um 17 TWh á síðasta ári. Hlutfallslegur rekstrarhagn- aður orkufyrirtækja fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hefur aukist úr 45% í 72% á síðustu 10 árum samkvæmt samantekt Samál. EBITDA orkufyrirtækja hefur þannig nær sexfaldast og nam 65 milljörðum króna árið 2010. Eigið fé orkufyrirtækjanna hefur aukist úr 100 mill jörðum króna í liðlega 300 milljarða á sama tíma. Rekstrartekjur hafa nær þre- faldast í 90 milljarða króna. Raforkusala til áliðnaðar hefur liðlega tvöfaldast á 10 árum. um 2% af Heims- framleiðslunni Þróun álverðs skiptir íslenska hagkerf- ið allnokkru máli, enda eru framleidd hér rúmlega 800 þúsund tonn af áli á ári, sem svarar til nálega 2% af heims- framleiðslu áls. Árið 2011 var verðmæti álútflutningsins orðið nánast hið sama og útflutningsverðmæti sjávarafurða en þá var vægi hvorrar greinar fyrir sig um það bil 25% af heildarútflutningstekjum Íslands. ÚtflutninGur eykst veGna orkufreks iðnaðar Tekjur af vöruútflutningi frá Íslandi jukust um 320 milljarða króna frá 2006 til 2010. 60% aukningarinnar voru vegna orkufreks iðnaðar en 30% vegna sjávarafurða. 10% eru síðan vegna annarra vara. Árið 2011 nam útflutningsaukning um 58 milljörðum króna og var 31% hennar frá orkufrekum iðnaði en 53% vegna sjávarafurða. í 7. sæti yfir Gjald- endur á landinu öllu Árið 2012 greiddi Norðurál á Grundartanga tæplega 1,9 milljarða króna í opinber gjöld sem setti félagið í 7. sæti yfir gjaldendur á landinu öllu, og er þá ekki meðtalin sér- stök fyrirframgreiðsla vegna síðari tíma álagningar opinberra gjalda upp á tæpar 400 milljónir króna. Innlendur kostnaður Norðuráls er um 25 milljarðar króna á ári en í þeirri tölu eru laun, orka og aðkeypt þjónusta. Þar af er keypt þjónusta af inn- lendum fyrirtækjum fyrir um 10 milljarða króna. raGnar GuðmunDsson byrja vegferð sína. Ragnar segir að enginn vafi leiki á því að Íslendingar hafi skapað sér sérstaka samkeppnisfærni á sviði ál­ og orkuiðnaðar. Því sé mikilvægt að fylgja eftir tækifærum sem skapast hafa í hliðarstarfsemi, t.d. hjá verkfræðistofum og sérhæfðum þjónustufyrirtækjum af ýmsu tagi. Menntakerfið þarf að fylgja þessu eftir en Norðurál hefur til dæmis lagt aukna áherslu á að bjóða upp á starfstengt nám sem nýtist starfsmönnum. Segir Ragnar að góð reynsla sé af slíku námi en fyrsta útskrift úr stóriðjuskóla Norðuráls var fyrr á þessu ári. Þar öðlast fólk ákveðin starfsréttindi sem gefa færi á launahækkunum um leið og námið gefur einingar sem nýtast til frekara náms. Skólinn er rekinn í samstarfi við símenntunarmiðstöð Vesturlands og Fjölbrautaskóla Vesturlands en þó á ábyrgð Norðuráls. Þeir sem eru í náminu sinna því með vinnu, að hluta til í eigin tíma og að hluta til á vinnutíma. Ragnar segist telja þetta gott fyrirkomulag en hin álfyrirtækin hafa boðið upp á hliðstæða valkosti. Eins og áður sagði eru starfsmenn Norður ­ áls á Grundartanga vel á sjötta hundraðið. Þar starfa vélvirkjar, bifvéla virkjar, rafvirkjar, eðlisfræðingar, líffræð ingar, verkfræðingar, tæknifræðingar, við skiptafræðingar, fólk með stúdentspróf og fólk með almenna grunnmentun. Að sögn Ragnars eru um 60% starfsmanna með almenna grunnmenntun, 20% eru með fagmenntun og 20% með háskólapróf. Hann segist halda að þetta endurspegli nokkuð vel menntunarstig íslensku þjóð arinnar. álverð mun Halda áfram að Hækka Álverð hefur hækkað verulega undan­ geng inn áratug en hækkunin er meðal ann ars knúin áfram af hækkandi orku­ og hráefnaverði. Verð á áli hefur hins vegar gefið eftir undanfarna mánuði og helst lík lega í hendur við almennt hráefnaverð, sem fer lækkandi. Ragnar segist ekki hafa neinar sérstakar áhyggjur af því. Áætlanir Norðuráls miði við langtímaþróun og lang tímaspár sérfræðinga geri ráð fyrir að álverð muni halda áfram að hækka. Ragnar bendir á að álverð hefur hækkað talsvert umfram verðlag undanfarinn áratug. Gangi spár um hækkandi orkuverð í heiminum eftir mun þessi þróun halda áfram. Hann segist halda að það séu góðar fréttir fyrir núgildandi raforkusamninga tengda raf ­ orkuverði. „Sveiflur í álverði hafa fyrst og fremst komið fram í afkomunni en ekki haft nein áhrif á framleitt magn eða starf ­ smannahald hjá okkur. Við höfum frekar verið í þeim gírnum að fjárfesta meira til að geta framleitt meira og aukið framleiðni.“ Ragnar segir að spár geri ráð fyrir að eftirspurn eftir áli aukist um tvær til þrjár milljónir tonna á ári um fyrirsjánlega framtíð. „Það er auðvitað gríðarleg aukn ­ ing en endurspeglar mikla aukningu á notkun áls í byggingariðnaði og sam göng ­ um. Ál er léttara og endingarbetra í mörg­ um tilvikum. Því virðist það eiga mikla framtíð fyrir sér í þessum greinum. Til þess horfir iðnaðurinn.“ sæstrenGur oG Hvað Gerist í HelGuvík? Aðspurður um umræðu um mögulegan sæstreng segir Ragnar að mikilvægt sé að horfa til heildarhagsmuna íslensku þjóð ­ ar innar, líkt og þegar sjávarútvegur er skoðaður. „Skoða þarf alla virðiskeðjuna og öll störfin, bæði bein og óbein. Ekki er hægt að byggja á tímabundnum niður greiðsl­ um annarra þjóða á grænni orku. Ef litið er á stærð fjárfestingarinnar kann að vera hagkvæmara að flytja hluta fram leiðslunnar í Evrópu til Íslands, eins og segja má að gert hafi verið í tilfelli áliðn aðarins, fremur en að leggja þangað langan og dýran streng.“ Um langt skeið hefur hagspá fyrir Ísland að hluta til oltið á því hvort ráðist verður í Helgu víkur ­álverið. Í spá Hagstofunnar í apríl síðastliðnum kveður við heldur svart­ sýnan tón um hagvöxt. Það byggist meðal annars á því að fjárfesting í orkufrekum iðn­ aði verði minni á næstu misserum en spáð hefur verið. Hagstofan gerir þó ráð fyrir að framkvæmdir við álver í Helguvík, eða ígildi þess, hefjist á næsta ári. Í Morgunkorni Íslandsbanka var vakin athygli á því að þetta væri „óþægilega kunnuglegt stef, enda hafa framkvæmdir í Helguvík „átt að fara á fullt á næsta ári“ síðan skömmu eftir hrun“. Á meðan svona er munu Íslendingar halda áfram að horfa til Helguvíkur og þeirrar óklár uðu verk miðju sem þar er að finna. Og líklega þarf Ragnar að halda áfram að svara spurn ing um óþreyjufullra um hvenær verk smiðj an verði fullkláruð. „Skoða þarf alla virð iskeðjuna og öll störfin, bæði bein og óbein.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.