Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 66

Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 66
66 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 Heildarútgjöld hins opinbera til heilbrigðismála árið 2011 voru um 147 milljarðar króna. rekstur landspítalans árið 2011 var um 42 milljarðar kr. kostar stækkun spítalans 85 milljarða eða 135 milljarða? Hvað gerir ný ríkisstjórn? Hvað með að gefa einkareknu skurðstofunum meira vægi? Ný ríkisstjórn þarf að taka á mikl um vanda þegar kemur að heilbrigðisþjón­ustunni. Reglulegar fréttir eru af léleg­um aðbúnaði á Land spítalanum og rætt er um að niður ­ skurður þar sé kominn niður fyrir þolmörk; sé hvorki í takt við þarfir sjúklinga né starfs fólks og komi niður á öryggi sjúklinga og gæðum þjónustunnar. Þá er rætt um að nú verandi húsnæði muni engan veginn anna aukinni þjónustuþörf vegna fjölgunar þjóð arinnar. Í öllum áætlunum er gert ráð fyrir að stækka núverandi spítala og nýta þannig þá aðstöðu og byggingar sem fyrir eru. Verð ­ miðinn á stækkuninni er um 85 milljarðar króna með fjármagnskostnaði en áætlaður kostnaður við byggingu nýs sjúkrahúss frá grunni yrði væntanlega um 130 milljarðar króna. Velta má því fyrir sér hvort risaverkefni sem stækkun Landspítalans rúmist innan getu ríkissjóðs og hvort slíkur risakjarni spilli fyrir sjálfri heilbrigðisþjónustunni í heild sinni – komi niður á kjörum starfsfólks sem og starfi annars staðar. Frjáls verslun varpar hér ljósi á einka ­ reknu skurðstofurnar og hversu mikilvægu hlutverki þær gegna í heilbrigðis þjónust­ unni. Þær eru stærri hluti af heilbrigðis ­ kerfi nu en margur heldur og gerir kerfið hagkvæmara og skilvirkara. Fimm einka ­ reknar skurðstofur á Íslandi ráða beinlínis úrslitum í heilbrigðiskerfinu og þar eru framkvæmdar 17 þúsund skurðaðgerðir á ári eða álíka margar og á Landspítalanum. Í nýlegri þjóðmálakönnun Félagsvísinda­ stofn unar kom fram skýr vilji um að ríkið reki (starfræki) heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. En hvaða skilning leggur fólk í þá ríkisþjónustu? Væntanlega fyrst og fremst að almennur réttur íbúa sé til heil brigðis ­ þjónustu, þjónustan sé fjár mögn uð af hinu opinbera og að það greiði þjónustu veit end ­ um fyrir þjónustu sína. Ef til vill má túlka það þannig að fólk vilji fara í skurðaðgerð á einkareknum skurð ­ stofum svo fremi sem hið opinbera greiðir fyrir aðgerðirnar. Árið 2011 var hlutur sjúkl ­ inga hins vegar um 1,6 milljarðar króna af slíkum aðgerðum (og af heimsóknum til lækna) á meðan Sjúkratryggingar greiddu um 3,5 milljarða vegna þessa. Takið eftir að nærri þriðjungur læknaheimsókna á ári hverju er á einkareknu stöðvarnar. Einkareknu skurðstofurnar hafa stytt bið ­ listana í heilbrigðiskerfinu svo um munar þegar kemur að skurðaðgerðum þar sem sjúklingar þurfa ekki að gista yfir nótt til að jafna sig. Eitt lítið dæmi um hagkvæmni einkastofanna er kviðslitsaðgerð sem fyrir tuttugu og fimm árum hefði þýtt legu á sjúkrahúsi í tíu daga en er núna framkvæmd á fjórum klukkustundum á einkastofunum, þ.e. með svæfingu og hvíld. Erfitt væri að ímynda sér hvernig staðan væri í íslenskri heilbrigðisþjónustu ef einka ­ reknu skurðstöðvanna nyti ekki við eða þær væru starfandi í minna mæli en nú er. Um leið er nokkur óvissa uppi um framtíð þessa reksturs. Mun hann á einhvern hátt líða fyrir þær kostnaðarsömu framkvæmdir sem stefnt er að við byggingu nýs Landspítala? Gæti hið opinbera jafnvel litið til einkareknu stöðvanna til að draga úr vand anum á Landspítalanum? Sjálfstætt starf andi læknar vilja efla einkareksturinn og lýsa yfir vilja til að taka að sér flóknari að gerðir þar sem sjúklingar þurfa að dvelja yfir nótt. Boltinn er hjá stjórnvöldum. HeiLbriGðisþjónustan „Með því að semja ekki við sérfræðilækna er hið opinbera í raun að minnka kostn að sinn við þá heilbrigðis þjón - ustu sem fram fer á einkareknu stöðv unum og auka kostn aðar þátt - töku sjúklinga. “ 17 ÞÚsund skurðaðGerðir á ári Einkaskurðstofurnar: á einkareknu skurðstofunum eru 17 þúsund skurðaðgerðir á ári og er það svip aður fjöldi og á landspítalanum. á landspítalanum eru ríflega 9 þúsund skurð að gerðir, sem teljast utan bráða að gerða, og er spurningin sú hvort einka reknu stöðvarnar geti tekið við stærra hlut verki í heilbrigðisþjónustunni og létt meira á landspítalanum.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.