Frjáls verslun - 01.03.2013, Síða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
HeiLbriGðisþjónustan
Sigurður Ásgeir Kristinsson er sérfræðingur í bækl-un ar skurðlækningum og
jafnframt framkvæmda stjóri
Lækna stöðvarinnar og Orku -
húss ins. Læknastöðin sérhæfir
sig í bæklunarskurðlækningum
og sinnir mjög stórum hluta
slíkra aðgerða á landinu öllu.
Í Orku húsinu eru auk Lækna -
stöðv arinnar röntgenfyrirtæki,
stærsta sjúkraþjálfunarstöð
lands ins, stoðtækjafyrirtækið
Stoð og verslun með stuðnings-
hlífar og göngugreiningu.
Læknastöðin var stofnuð af
fimm læknum 1997 en hóf fulla
starfsemi í ársbyrjun 1998.
Nú starfa á Læknastöðinni
25 læknar og fjórir læknar hjá
rönt g enfyrirtækinu. Langflestir
læknanna eru í fullu starfi í
Orku húsinu. „Stóra breytingin
hjá sjálfstætt starfandi læknum
síðustu 20 árin er að stærri
aðgerðum hefur fjölgað mikið.
Bæði er það vegna tæknifram -
fara og niðurskurðar hjá hinu
opinbera. Sem dæmi þá flutt ist
stærsti hluti aðgerða sem
fram kvæmdar höfðu verið á
St. Jósefsspítala yfir til Lækna -
stöðv arinnar þegar spítalanum
var lokað.“
Þessi þróun er af hinu góða
að mati Sigurðar, því einka-
stöðv arnar geti framkvæmt
þau verk efni sem þær sinna
á mun hagkvæmari hátt en
hið opinbera. „Hjá okkur er
yfir bygg ingin svo til engin, allir
starfa „á gólfinu“ og þrátt fyrir
mik inn vöxt hefur okkur tekist
að hemja allan rekstrarkostnað.
Ákvarðanataka er snörp og svo
er ekkert verið að tvínóna við
hlutina. Hér eru engar nefndir
sem þurfa að velta hlutunum
endalaust fyrir sér.“
Góð samvinna við
landspítalann
Sigurður segir að Læknastöðin
sé framarlega á sínu sviði í
alþjóðlegum samanburði. „Ég
hef kynnt mér svipaða starfsemi
víða erlendis og ekki séð marg-
ar stöðvar sem eru jafnstórar og
okkar og um leið jafnsérhæfðar
og heildstæðar í þjónustu við
sjúklingana. Það sem svipaðar
stöðvar hafa þó fram yfir okkur
víða erlendis, s.s. í Svíþjóð, er
að þar geta þær haft sjúklinga
yfir nótt. Ég sé stöð á borð við
okkar fyllilega geta tekist á við
slík verkefni, t.a.m. taka á móti
heilsuhraustum sjúklingum í
ein faldari liðskiptiaðgerðir til
að stytta biðlista á opinberum
stofnunum.“
Að mati Sigurðar græða allir
á því að fyrirtæki á borð við
Lækna stöðina og Orkuhúsið
séu virkur hluti af heilbrigðis-
kerfinu. „Starfsfólkinu líður
vel, sjúklingarnir eru ánægðir,
enda er biðtíminn hjá okkur
jafnan miklu styttri en hjá hinu
opinbera, og hið opinbera
sparar kostnað. Við leggjum
okkur fram um að vinna með
Landspítalanum að því að efla
samstarfið enn meira, m.a.
með því að bæta flæði þeirra
sjúklinga sem leita fyrst til
Landspítalans en þurfa síðar
að koma til okkar í meðferð og
eins þeirra sjúkl inga sem koma
til okkar og þurfa svo að fara
á Landspítalann. Þar er hægt
að gera enn betur í að efla
þjónustuna við sjúklingana. Að
auki vinnum við nú með bæklu-
narskurðdeild Landspítalans
og íslenska bæklunar skurð-
læknafélaginu að því að koma
upp vísi að sérnámi í bæklunar-
skurðlækningum hér á landi
með sameiginlegri námsstöðu í
greininni,“ segir Sigurður.
Sigurður Ásgeir Kristinsson, Læknastöðinni
í Orkuhúsinu:
hagKvæmari rEKstur
og styttri Biðtími
„Stóra breytingin
hjá sjálfstætt
starfandi lækn-
um síðustu 20
árin er að stærri
aðgerðum hefur
fjölgað mikið.
Bæði er það
vegna tækni-
fram fara og nið -
ur skurðar hjá
hinu opinbera.“
Stefán E. Matthíasson, Lækningu í Lágmúla:
hægt að nýta
EinKastöðvarnar
Enn mEira
Stefán E. Matthíasson stund ar almennar skurð-lækn ingar og æðaskurð-
lækningar á Skurðstofunni ehf.
hjá Lækningu í Lágmúla. Hann
er jafnframt formaður stjórnar
Samtaka heilbrigðisfyrirtækja,
sem er undirfélag Samtaka
versl unar og þjónustu. Samtökin
voru stofnuð fyrir tveimur árum
og er tilgangur þeirra að vera
málsvari sjálfstætt starfandi
fyrir tækja í heilbrigðisþjónustu.
Stefán segir ekki vera vanþörf
á því að halda málstaðnum á
loft. „Okkur finnst oft hart sótt
að þessari starfsemi okkar, ekki
síst af hinu opinbera. Síðastliðin
ár hefur okkur þótt sem stjórn -
völdum hafi ekki hugnast
sér staklega að hafa þennan
fjölbreytileika í heilbrigðisþjón-