Frjáls verslun - 01.03.2013, Qupperneq 71
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 71
ustunni og því er mikilvægt að
við stöndum saman í að ræða
við stjórnmála- og embættis-
menn og leita leiða til að skapa
starfseminni sem best um-
hverfi.“
áhyggjur af fákeppni
Stefán hefur nokkrar áhyggjur
af þróun síðustu ára og því sem
hann kallar fákeppnistilburðum
hins opinbera í veitingu heil-
brigðis þjónustu. „Fyrir 13 árum
voru fjórir spítalar á höfuð borg-
arsvæðinu, en núna er bara ein
stofnun, Landspítalinn. Samein-
ingar og lokanir spítala hafa
verið gerðar í nafni hagræðing-
ar, en ég veit ekki til þess að
enn hafi verið sýnt fram á mikið
hagræði og hvað þá faglegan
ávinning af þessum aðgerðum.
Núna höfum við eitt stórt bákn
sem er einrátt í því hvernig
og hvar þjónusta er veitt og
starfsfólk í heilbrigðisstéttum
hef ur ekki marga kosti aðra
en að starfa á þessum eina
vinnustað. Hér er um fákeppni
að ræða sem er engum til góðs
þegar upp er staðið. Þróun
þjón ustunnar verður þunglama-
leg, öll ákvarðanataka hæg og
erfið og boðleiðir langar.“
Úr því sem komið er verða
einkareknu stofurnar að vera
öflugt mótvægi við Landspítal-
ann að mati Stefáns. „Það þarf
þá að vera tryggt að við getum
starfað með eðlilegum hætti.
Það er til að mynda nauðsyn-
legt að samið sé við sérfræði-
lækna í stað þess að þau mál
séu látin óleyst um margra
ára skeið. Bæði almenningur
í landinu og við sem störfum í
greininni þurfum að fá lausn í
því máli sem fyrst.“
Jafnframt segir Stefán að
stjórnvöld þyrftu að sjá betur
tækifærin sem eru fyrir hendi
í starfsemi einkareknu stöðv-
anna. „Hvers vegna ekki að
bjóða nemendum við Há skól -
ann að stunda sitt nám að hluta
hjá okkar stöðvum í stað þess
að einskorða námið við Land-
spítalann? Og hvers vegna
ekki að skoða möguleikann á
að einkareknu stöðvarnar geti
útvíkkað sína starfsemi með
því að taka sjúklinga yfir nótt
eins og til að mynda er gert
víða í löndum í kringum okkur?
Við getum sannarlega bætt við
okkur verkefnum og stuðlað
að hagræðingu í kerfinu. Það
myndi létta á Landspítalanum
og gæti mögulega leyst hluta
af bráðavanda hans, aukið
fjölbreytileika þjónustunnar og
bætt hana. Tækifærin til að nýta
betur skattfé borgaranna eru
fyrir hendi – það þarf víðsýni og
viljann til að grípa þau.“
„Sameiningar og
lokanir spítala
hafa verið gerðar
í nafni hag ræð -
ingar, en ég veit
ekki til þess að
enn hafi verið
sýnt fram á
mikið hagræði
og hvað þá fag -
legan ávinn -
ing af þessum
aðgerðum.“
fimm einkareknar
skurðstofur
domus mediCa
fjöldi aðgerða 2012: Um 3.000
Helstu aðgerðir: Almennar skurð lækn -
ingar, lýtaskurðlækningar, þvag færa- og
æðaskurðlækningar.
læknastöðin Glæsibæ
fjöldi aðgerða 2012: 7.367 (þar af 5.082
með svæfingu)
Helstu aðgerðir: Háls-, nef- og eyrna -
skurðlækningar. Þvagfæra-, bækl unar -
skurðlækningar, barna skurð lækn ingar
og fleira.
læknastöðin í orkuHÚsinu
fjöldi aðgerða 2012: 4.260
Helstu aðgerðir: Bæklunar skurð -
lækningar.
lækninG, láGmÚla
fjöldi aðgerða 2012: 2.980
Helstu aðgerðir: Kvensjúkdómaaðgerðir,
almennar skurðlækningar, lýta- og
fegr unaraðgerðir, háls-, nef- og eyrna-
skurðlækningar.
læknastöð akureyrar
fjöldi aðgerða 2012: 1.735
Helstu aðgerðir: Almennar skurð lækn -
ingar, háls-, nef- og eyrna skurð lækn -
ingar, bæklunaraðgerðir og þvag færa -
skurð lækningar.Dr. Tryggvi B. Stefánsson skurðlæknir ásamt Sigurði Péturssyni svæfingalækni
og Vaivu Strasunskiené skurðhjúkrunarfræðingi við kviðarholsaðgerð.