Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 73

Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 73
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 73 Þá er bent á að stjórnvöld hafa þegar ákveðið að ráðast í aðrar framkvæmdir, til að mynda byggingu húss Vigdísar Finnbogadóttur, Húss íslenskra fræða, nýtt öryggisfangelsi á Hólmsheiði, nýja Vest mannaeyjaferju, jarðgöng í Norðfirði, jarð göng undir Vaðlaheiði, uppbyggingu ferða mannastaða og ýmis önnur minni fjár festingarverkefni. Flest þessi verkefni á að fjármagna með sérstakri tímabundinni fjármögnun. Því verði varla hægt að ráðast einnig í byggingu nýs spítala nema með því að for gangsraða upp á nýtt, draga úr fram kvæmdum eða auka tekjuöflun ríkisins frekar. LANDSPÍTALINN Það mæðir mikið á Landspítalanum og þaðan berast reglulega fréttir um eins konar neyðarástand vegna bágrar aðstöðu og skorts á sjúkrarými. Mikill þrýstingur er á að byggja nýjan spítala fyrir 85 milljarða króna en spurningin er sú hvort einkareknar skurðstofur geti létt á Landspítalanum þann ig að ekki þurfi að fara í jafnmikla stækkun sjúkrahússins. Katrín Ólafsdóttir, lektor við viðskiptafræðideild Há ­ skólans í Reykjavík, sagði á fundi sl. vor að kostnaður við byggingu fyrsta áfanga nýs Land spít ala við Hringbraut yrði aldrei 45 milljarðar króna, eins og áætlað væri í fjár lagafrumvarpi, heldur allt að 91 milljarður. Þegar annar áfangi bætist við gæti endan legur kostnaður orðið 135 milljarðar króna. Katrín sagði þetta á morg­ un verðarfundi Samtaka versl unar og þjónustu og Samtaka heilbrigðis fyrir tækja síðastliðið vor. Fund urinn bar yfirskriftina „Þjóðin byggir spítala – feilspor eða fjárfesting til framtíðar?“ Katrín sagði að ef tekinn væri með kostnaður við endur nýjun húsnæðis upp á 11 milljarða og tækjakostnaður upp á 7 milljarða yrði heildar kostn ­ aður við fyrsta áfanga nýs spítala 63 milljarðar króna. Sagði Katrín þetta varlega áætlað og miðað við reynslu af opinberum verkefnum þá færu fjögur af hverjum fimm fram úr kostnaðaráætlun, að jafnaði um 45%. Samkvæmt þessu gæti fyrsti áfangi nýs spítala kostað 91 milljarð króna, annar áfangi gæti farið í 44 milljarða og endan ­ legur heildarkostnaður því 135 milljarðar króna. Í ljósi þess að nýr Land ­ spítali yrði á endanum fjármagnaður með skatt ­ greiðslum almenn ings sagði Katrín að heildar kostnaður þyrfti að liggja ljós fyrir áður en farið væri af stað, með mögulegum frá vikum og mis munandi sviðsmyndum. viLja að ríKið rEKi hEiLBrigðisÞjónustuna Í­nýlegri­þjóðmálakönnun­Fé­lags­vís­indastofnunar­kom­fram­skýr­vilji­um­ að­ríkið­reki­heilbrigðisþjónustuna­á­Íslandi.­En­hvaða­skilning­leggur­fólk­ í­þá­þjónustu?­Væntanlega­fyrst­og­fremst­að­almennur­réttur­íbúa­sé­til­ heilbrigðisþjónustu,­þjónustan­sé­fjár­mögnuð­af­hinu­opinbera­og­að­það­ greiði­þjónustuveitendum­fyrir­þjónustu­sína. Spurt var:­Finnst­þér­að­heilbrigðis­þjón­ustan­eigi­að­vera­rekin­(starfrækt)­ af­hinu­opinbera­eða­einkaaðilum? Fyrst og fremst af hinu opinbera 81,1% Jafnt af einkaaðilum og hinu opinbera 18,4% Fyrst og fremst af einkaaðilum 0,5% Þá­var­spurt­hvor­fólk­vildi­að­hið­opinbera­legði­meira­fé,­minna­fé­eða­ óbreytt­fé­til­heilbrigðisþjónustunnar­(miðað­við­það­sem­nú­er)? 2006 2013 Meira fé 81,5% 94,0% Óbreytt fé 16,5% 4,8% Minna fé 1,9% 1,1% Samkvæmt­þessari­könnun­vill­mikill­meirihluti­Íslendinga­að­hið­opinbera­verji­ meira­fé­til­heilbrigðisþjónustunnar­en­núna­er­gert­og­að­heil­brigðisþjónustan­ eigi­fyrst­og­fremst­að­vera­rekin­af­hinu­opinbera­og­fjár­mögnuð­af­hinu­ opinbera. Engu­að­síður­voru­um­17­þúsund­skurðaðgerðir­framkvæmdar­á­einka­ reknu­skurðstofunum­árið­2011,­sem­og­þjónusta­við­komu­sjúklinga,­og­ greiddu­sjúkl­ingarnir­sjálfir­um­1,6­milljarða­króna­en­ríkið,­Sjúkratryggingar­ Íslands,­um­3,5­milljarða­króna.­ nýr spÍtali fyrir 135 milljarða? KaTrÍn ÓLafSdÓTTir LEKTor: þ j Ó ð m á L a K ö n n u n f é L a G S v Í S i n d a S T o f n u n a r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.