Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 76

Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 76
76 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 ingrid kuhlman – framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar Listin að gagnrýna á uppbyggilegan hátt stjórnun Við verðum því undir öllum kringumstæðum að kunna að velja réttu orðin en sér staklega ríður á að kunna það þegar við þurfum að tjá óánægju eða ræða viðkvæm mál. Ásökun, dómur, krafa og hótun – Þú gengur aldrei frá ostinum eftir þig! – Þetta er óþolandi sóðaskapur. – Þú verður að fara að ganga betur frá eftir þig! – Annars get ég alveg eins hætt að kaupa þennan bannsetta ost fyrir þig. Góð og gjöful sam -skipti eru sennilega það sem við flestöll óskum okkur í líf- inu. Það er hins vegar furðu flókið að halda samskiptunum í þeim farvegi sem við mynd- um helst kjósa og auðvelt að láta berast af leið. Pirringur, gremja, ásakanir og önnur erfið samskipti eru fullalgeng, en ekki þarf að hugsa lengra en til skilnaðartíðni í nútímasamfélagi til að sjá hversu oft við erum á villigötum. Fæst leggjum við upp með að ástunda samskipti sem skila litlu sem engu eða gera málin jafnvel enn verri en áður. Þau tæki sem við vinnum með í samskiptum eru orðin sem við segjum, orðanna hljóðan og hin ósögðu orð líkamsmálsins. Allt eru þetta mikilvægir þættir góðra samskipta en orð eru til alls fyrst enda má fullyrða að setningar eins og „Þú ert nú meiri hálfvitinn“ hljómi allt af illa, hversu góðlegur sem tónn inn er eða líkamsstaðan vingjarn- leg. Við verðum því undir öllum kringumstæðum að kunna að velja réttu orðin en sér staklega ríður á að kunna það þegar við þurfum að tjá óánægju eða ræða viðkvæm mál. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Íhugum eftirfarandi dæmi sem ætla má að sé ekki svo fjarri veruleika flestra venjulegra Ís - lendinga. Frúin kemur heim úr vinnunni og kemur að ostinum óvörðum á eldhúsborðinu og kexmylsnu um allt borð. Bóndinn er inni í sjónvarpsholi, nokkuð sæll enda nýbúinn að gæða sér á uppá haldskexinu sínu með osti. Eftir farandi orðasenna á sér stað: frúin: – Þú gengur aldrei frá ostinum eftir þig! – Þetta er óþolandi sóða skapur. – Þú verður að fara að ganga betur frá eftir þig! – Annars get ég alveg eins hætt að kaupa þennan bannsetta ost fyrir þig. Í þessum samskiptum má greina ásökun; þú gengur aldrei frá ostinum, dóm; þetta er óþolandi sóðaskapur, kröfur; þú verður að ganga frá, og hótun; annars hætti ég að kaupa ostinn. Samskipti af þessu tagi eru líkleg til að valda viðtakandan- um gremju – hann fer í vörn og jafnvel gagnárás. Það sem lagt var upp með; að breyta hegðun varðandi umgengni, verður að aukaatriði og mjög líklega árangurslaus tilraun til að fá eiginmanninn til að breyta hegðun sinni. Því miður eru samskipti sem þessi ekki bund- in við hjónabönd heldur má greina þau m.a. á vinnustöðum og í uppeldi barna. ofbeldislaus samskipti Sem betur fer er til einföld aðferð eftir Marshall Rosenberg sem kunnastur er fyrir nálgun „Þau tæki sem við vinnum með í sam ­ skiptum eru orðin sem við segjum, orðanna hljóðan og hin ósögðu orð líkamsmálsins.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.