Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 77
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 77
sem kennd er við „ofbeldis-
laus samskipti“ (Non Violent
Communication). Lykilþættir
að ferðarinnar eru þeir að lýsa
aðstæðum eða atburðum án
þess að leggja dóm á þá, að
lýsa eigin upplifun eða tilfinn-
ingum tengdum atburðinum
eða aðstæðum, að útskýra
þarfir, langanir, gildi eða annað
sem kveikir þessar tilfinningar
okkar og að setja fram einlæga
og skýra ósk um aðra hegðun.
Aðferð Rosenbergs er víðfræg
og notuð um allan heim til að
auðvelda samskipti við ólíkar
aðstæður.
skref 1. að lýsa án þess að
dæma
Að greina milli hegðunar og
persónunnar sem sýnir hegðun-
ina er mikilvægt því þegar
við dæmum fólk með orðum
eins og „latur“, „óstundvís“ og
„neikvæður“ gefum við um leið
til kynna að viðkomandi hafi til
að bera persónueinkenni sem
ekki sé hægt að gera neitt í.
Viðbrögð við slíkum dómum
hljóta því alltaf að vera einhvers
konar vörn eða mótbárur.
Betra er að vísa til sértækrar
hegðunar með því að lýsa
atburði hlutlægt og forðast þar
með dóma og gífuryrðin sem
algengt er að fylgi slíkum dóm-
um. Þú ert alltaf of seinn eða
Þú ert aldrei með viðeigandi
verkfæri með þér eru allt dæmi
um slíka dóma sem innihalda
gífur yrði sem ólíklegt er að
standist nána skoðun.
Hér verður í hverju skrefi lýst
dæmi þar sem vísað er til vinnu -
félaga þar sem annar hefur
þann leiða ávana að skilja eftir
sig óhreina kaffibolla á kaffi-
stofunni.
Dæmi: Þú skildir eftir tvo
óhreina kaffibolla á skrifstof
unni í gær.
skref 2. að lýsa eigin upp-
lifunum eða tilfinningum
sem þessi atburður eða
hegðun vekur
Skref tvö í aðferðinni er að
lýsa okkar eigin upplifunum
tengdum hegðuninni. Það er
vænlegt til árangurs að vera
hreinskilinn varðandi þessar
tilfinningar þar sem með því
auk ast líkur á að orð okkar hljóti
hljómgrunn.
Dæmi: Mér gremst þetta
svolítið vegna þess að ég
borða morgunmat í vinn
unni og mér finnst ólystugt
að koma að kaffistofunni á
morgn ana þar sem óhreint
leirtau er á borðinu.
skref 3. að spyrja um
ástæðu hegðunarinnar
Þriðja stig orðræðunnar er að
spyrja viðkomandi um ástæðu
hegðunarinnar og gefa honum
tækifæri til að útskýra.
Dæmi: Er einhver ástæða fyrir
því að þú skildir bollana eftir
á borðinu?
skref 4. að setja fram
skýrar óskir um hvað það er
sem við viljum að fólk geri
Skref fjögur er að setja fram
skýrar kröfur varðandi það sem
við viljum að fólk geri og við
sjáum sem leið til að geta bætt
líf okkar, líðan, vinnuskilyrði,
skilvirkni eða hvað sem vakir
fyrir okkur. Mikilvægt er að setja
fram kurteislega orðaða ósk.
Dæmi: Værir þú til í að ganga
frá kaffibollunum þínum áður
en þú ferð heim á kvöldin?
Ef við rifjum upp dæmið um
hjónin þar sem ófrágenginn
ostur var bitbeinið þá gæti það
litið svona út:
– Jón, þú skildir ostinn eftir á
borðinu í dag.
– Ég var pirruð þegar ég sá
ostinn á borðinu því osturinn er
svo dýr og mér finnst leitt að sjá
hann skemmast.
– Værir þú til í að setja ostinn
framvegis í ísskápinn um leið
og þú ert búinn að fá þér af
honum svo við getum komið í
veg fyrir aukaleg útgjöld?
að lýsa sameigin leg
um ávinningi breyttr ar
hegðunar
Oft er gagnlegt að setja óskir
um breytta hegðun í eitthvert
það samhengi sem dregur upp
sameiginlegan ávinning þeirra
sem um ræðir og auka þannig
enn á líkur þess að fólk sjái
ástæðu til að breyta hegðun
sinni. Með þeim hætti erum við
ekki einungis að leggja að fólki
að það bregðist við óskum okk-
ar heldur erum við líka að setja
fram rök fyrir því að það sé í
þágu beggja aðila að hegðun
breytist. Við getum ímyndað
okkur algengt dæmi þar sem
einstaklingur hefur tamið sér
það að koma of seint á fundi.
Dæmið gæti þá litið þannig út:
– Jón, þú hefur komið 15
mínútum of seint á tvo síðustu
fundi.
– Ég er ekki sátt við þetta því
fundir okkar dragast á langinn
og við eigum erfitt með að ljúka
yfirferð dagskrárliða.
– Gætirðu hér eftir gætt þess
að mæta á réttum tíma?
– Þannig gætum við náð meiri
skilvirkni á fundum og jafnvel
fækkað þeim eitthvað.
„Aðferð Rosenbergs
er víðfræg og notuð
um allan heim til að
auðvelda samskipti
við ólíkar aðstæður.“