Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 79
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 79
að skapa „win-win“-niðurstöðu
hefur mikið með samskipta-
hæfni að gera og þar með
hversu miklum árangri þeir ná
yfirhöfuð.
Viðhorf
Viðhorf fólks, til eigin verkefna,
annars fólks, óvæntra uppá -
komna og því um líks, hafa mikil
áhrif á hvernig því gengur að
fást við og vinna úr daglegum
verkefnum, hvort um er að ræða
vandamál eða úrlausnarefni.
Sumir eru alltaf að „lenda í“
hinu og þessu eins og fórnar -
lömb á meðan aðrir takast
hreinlega á við það sem upp
kemur og standa því oftar uppi
sem „sigurvegarar“ í sínum
verkefnum og aðstæðum. Það
hvernig starfsfólk lítur á, nálgast
og vinnur með öðru fólki mótast
af viðhorfum þess og viðhorfin
lita og hafa áhrif á alla sam-
vinnu og samstarf.
Viðhorf starfsfólks til sjálfs sín
hafa einnig mikil áhrif á hvernig
aðrir upplifa það og hversu
vel því gengur að koma sínum
málum áfram, að eiga samskipti
við ólíka einstaklinga o.fl.
Ef þekking og reynsla tveggja
einstaklinga er álíka, þegar
verið er að ráða í starf, út-
deila ábyrgð eða annað slíkt,
er líklegt að viðhorf þeirra muni
skera úr um hvor verður valinn.
Sjálfsþekking
Það er mjög mikilvægt að vera
með sjálfan sig á hreinu og
þekkja sem dæmi styrkleika
sína og veikleika og hvernig
mað ur bregst við ýmsu áreiti,
að stæðum, fólki o.s.frv. Styrk-
leikana þarf að þekkja til að
geta nýtt þá sem best, unnið
þannig að það reyni meira á
styrk leikana en veikleikana og
halda áfram að byggja ofan á þá.
Veikleikana þarf að þekkja til
að geta verið nægjanlega með-
vitaður um þá þannig að þeim
sé ekki gefið rými til að hafa of
mikil áhrif, hugsanlega einnig
til að vinna með þá og styrkja,
þótt einhverjir haldi því reyndar
fram að ef þú heldur stöðugt
áfram að styrkja styrk leika þína
og nýta þá sem best verði
ekkert rými fyrir veikleik ana.
Ef þú telur að þú getir styrkt
sjálfstraust þitt og samskipta-
hæfni eða unnið með þín eigin
viðhorf er ekki eftir neinu að
bíða, þetta eru lykilatriði fyrir þig
til að ná auknum árangri.
„Talað hefur verið
um og vísað í rann
sóknir sem hafa sýnt
fram á að 85% af
skýringunni á því
af hverju fólk er
ráðið í starf eða fær
framgang í starfi er
samskiptahæfni og
viðhorf.“
– í sambandi við allt
118 Já.is Stjörnur.is Símaskrá Já í símann i.ja.is
Já – það passar