Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 94

Frjáls verslun - 01.03.2013, Side 94
94 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 A llir hafa einhvern tímann séð Super- man-kvikmynd eða sjónvarpsseríur byggðar á teikni- myndasögunum um Super- man, sem örugglega má telja eina af þekktustu skáldsagna- fígúrum sem skapaðar hafa verið. Gerðar hafa verið nokkrar misgóðar kvikmyndir um Superman á 65 ára ferli í kvikmyndum og sjónvarpi. Í sum ar lítur svo nýjasta kvik- mynd in, Man of Steel, dagsins ljós og um leið nýr leikari, Henry Cavill, sem tekur að sér að túlka ofurmennið. Þekktastar kvikmyndanna eru þær fjórar þar sem Christopher Reeve lék Superman og hefur Reeve hingað til verið talinn fremstur meðal þeirra sem hafa brugðið sér í blárauða bún - inginn með stóra S-inu fram an á og nú er bara að sjá hvort Henry Cavill, sem er fyrsti breski leikarinn til að leika Super man, hefur eitthvað í Christopher Reeve að gera. Farnar eru troðnar slóðir í upphafi Man of Steel og má segja að byrjunin sé í takt við byrjunina á Superman (1978) þegar Christopher Reeves var kynntur til leiks. Foreldrar Supermans skilja hann eftir á jörðinni þegar í ljós kemur að heimapláneta hans, Krypton, er í dauðateygjunum. Á jörðinni er hann ættleiddur af Jonathan og Mörthu Kent og fær nafnið Clark Kent. Í eldri myndinni var það Marlon Brando sem lék Jor-El, líffræðilegan föð ur Clarks Kents, og í Man of Steel er það ekki minni kvik- mynda stjarna sem tekur við boltanum af Brando; Russell Crowe. Það sem helst aðgreinir Man of Steel frá öðrum Superman - myndum er að nú berst Super- man ekki við ósvífna jarðneska glæpamenn á borð við Lex Luther heldur tekst hann á við ómennska glæpamenn sem vilja leggja undir sig jörðina, geimverur sem eru meðal ann ars frá Krypton, hans eigin heimabyggð. Þess á milli er Superman í blaðamennskunni í hlutverki Clarks Kents og daðrar við Lois Lane eins og vera ber. Ungur­en­reyndur­ leikari í kvikmyndum og­sjónvarpi Sá sem kemur til með að sjást á hvíta tjaldinu í sumar Í man of Steel er Superman fylgt eftir frá því hann er sendur af foreldrum sínum til jarðarinnar barn að aldri, ættleiddur og skírður Clark Kent, uppgötvar yfirnáttúrlega hæfileika sína og berst gegn yfirtöku jarðarinnar kvikmynDir Ofurmenni með hjartað á réttum stað Henry Cavill er fyrsti breski leikarinn sem leikur Superman. Texti: Hilmar Karlsson

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.