Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
Guðmunda er for stöðu-maður stjórn enda- og fyrir tækja lausna í Opna há skólan um
í Háskólanum í Reykja vík. Þar
er boðið upp á fjöl breytt úrval
námskeiða fyrir stjórn endur svo
sem opnar vinnu stofur þar sem
leiðbeinendur eru kennarar við
HR, samstarfsaðilar úr íslensku
atvinnulífi sem og erlendir sér -
fræð ingar. Ennfremur er boðið
upp á einkaþjálfun t.d. í ræðu -
mennsku, leiðtogafærni og
mark þjálfun.
„Auk stjórnendaþjálfunarinnar
bjóðum við upp á heildarlausnir
í fræðslumálum fyrir fyrirtæki
og stofnanir. Við vinnum með
mörgum fremstu fyrirtækjum
og stofnunum landsins að því
að sérsníða lausnir að þörfum
og starfsumhverfi viðkom-
andi skipu lagsheilda. Efnistök
sérsniðinna lausna eru sótt inn
í deildir HR, til sérfræðinga í
íslensku atvinnulífi sem og til
erlendra samstarfsaðila. Efnið
getur spannað helstu svið
stjórnendafræða – svo sem
leiðtogafærni, stjórnun, stefnu -
mótun og fjármál – auk sér -
tækra lausna á sviðum tækni,
við skipta og laga.
Við erum þessar vikurnar að
vinna að áætlun haustsins;
skipu leggja fræðsludag-
skrána bæði hvað varðar lengri
og styttri námskeið sem og
námslínur en námskeið í Opna
háskólan um spanna allt frá hálf-
um degi að lengd upp í eitt ár.“
Guðmunda segir að við þróun
námskeiða sé m.a. skoðað
fram boð erlendra háskóla og
hvað hægt er að taka gott
það an til að laga að íslenskum
mark aði. „Við fundum jafnframt
með fagráðum okkar sem sam -
an standa af akademískum sér-
fræðingum sem og innlendum
og erlendum samstarfsaðilum.“
Guðmunda lauk stúdentsprófi
frá Verslunarskóla Íslands árið
1987 en vildi að því loknu prófa
nýjar leiðir – hún lærði frönsku
í Frakklandi í eitt ár auk þess
að búa á Ítalíu í tæpt ár. „Ég
kynntist latneskri menningu og
langaði að kafa dýpra ofan í
þær pælingar.“ Liður í því var
að læra frönsku við Háskóla
Íslands eftir að heim kom en
Guðmunda er með BA-próf í
frönsku og bókmenntum frá Há -
skóla Íslands. Hún er auk þess
með meistaragráðu í stjórn un
og stefnumótun frá viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands og
er langt komin í meist aranámi í
opinberri stjórn sýslu.
Áhugamálin eru nokkur. „Hreyf-
ing er númer eitt en ég hleyp
mikið og stunda almenna útivist.
Ég hljóp fyrsta maraþonið mitt í
París árið 2011 og hef hlaupið
Laugaveginn tvisvar sinnum
auk nokkurra annarra utanvega -
hlaupa á Íslandi. Á fimm ára
markmiða listanum er svo að
taka þátt í fjallahlaupinu á Mont
Blanc.“
Guðmunda segir fjölskylduna
vera duglega að ferðast, bæði
innanlands sem utan. „Við fór-
um í fyrrasumar til Tyrklands,
m.a. til að synda í silfurtærum
sjó. Við fórum reyndar á heit-
asta tíma ársins en hitinn var oft
yfir 40 stig þannig að við vorum
meira og minna í sjónum að
synda með fiskunum og sigla á
skútum.“
Fjölskyldan mun ferðast innan-
lands í sumar. Laugavegurinn
verður væntanlega genginn
og jafnvel Fimmvörðuháls. „Við
ætlum að kynna fyrir krökkunum
lengri gönguferðir en þau hafa
mjög gaman af því líkt og við,
foreldrarnir.“
Jú, áhugamálin eru fleiri og
má nefna bókmenntir og mats-
eld í því sambandi. „Ég velti
fyrir mér erlendri menningu og
hvernig hún tengist matseld
og prufa mig áfram. Það eru
bunkar af matreiðslubókum á
náttborðinu.“
Guðmunda Smáradóttir
– forstöðumaður stjórnenda- og fyrirtækja-
lausna í HR
Nafn: Guðmunda Smáradóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
2. maí 1971
Foreldrar: Guðríður Gísladóttir og
Smári Sæmundsson
Maki: Þorsteinn Helgi Steinarsson
verkfræðingur
Börn: Berglind, 14 ára, og tvíburarnir
Ísar og Sindri, 11 ára
Menntun: BA-próf í frönsku og
bókmenntun og MS í viðskiptafræði
– stjórnun og stefnumótun
„Við erum þessar vikurnar að vinna að áætlun haustsins; skipu leggja fræðsludag skrána
bæði hvað varðar lengri og styttri námskeið sem og námslínur en námskeið í Opna
háskólan um spanna allt frá hálfum degi að lengd upp í eitt ár.“
fóLk TexTi: svava jÓnsdÓTTir