Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 8
Frá Reykjum getum við þrammað
úr Reykjahverfinu upp yfir Skammadal,
dálítinn slakka milli Helgafells að vestan
en Æsustaðafjalls að austan. Parna áttu
búhyggnir Reykvíkingar dálitla kartöflu-
garða og verkfæraskúra - suma dándisfína
- um áratugi, og eiga sumir enn. Þegar
upp kemur á slakkann blasir Mosfellið
sjálft við okkur og samnefndur bær
með alla sína sögu og þá ekki síst Egils
Skallagrímssonar forföður okkar flestra.
(Samkvæmt Islendingabók er ég 27. liður
frá honum, konan mín 26. liður. Hvað
með þig, lesandi góður?) Allir muna eftir
silfrinu hans sem á að vera grafið á góðum
stað í Mosfellsbæ og flestir halda að sé ein-
hvers staðar í landi Mosfells. Samt veðja
menn frekar á gull í Mosfellssbæ um þessar
mundir og nú er rétt eina ferðina verið að
grafa eftir því í árgilinu milli Búrfells og
bæjarins Þormóðsdals. Maður, sem ég
hitti á förnum vegi um daginn, sagði mér
kampakátur að nú loks væri þetta farið
að ganga og nefndi tölur til sanninda um
að þar væri nóg gull til að það borgaði sig
að vinna það - en ég kýs frekar að trúa á
silfrið Egils enn um sinn.
Nokkru austar er svo Laxnesið sem
Halldór Guðjónsson kenndi sig við og
gerði þar með ódauðlegt - í landsuður
frá Laxnessbænum Gljúfrasteinninn þar
sem hann reisti sér hús og bjó og nú er
orðið að safni. Ofar í brekkunni er bærinn
Seljabrekka og erum við nú komin lang-
Brúarland - menningarsetur Mosfellssveitar í áratugi. Fyrsti hlutinn byggður 1922, næsti 1928
og sá síðari 1950. Þar var barnaskóli og unglingaskóli og síðar tónlistarskóli; þar var samkomuhús
sveitarinnar og þar bjó fjöldi fólks. Hlutverk Brúarlands hefur heldur rýrnað, en enn er það aðsetur
Karlakórsins Stefnis og þar hefur Kvenfélag Lágafellssóknar aðsetur sitt.
fyrst borað eftir heitu vatni í landi Suður-
Reykja í því skyni að leiða það til Reykja-
víkur til upphitunar húsa þar. Þegar stríðið
skall á var svo langt komið að búið var að
steypa hitaveitustokk sem þó stóð tómur
og loklaus framan af stríðsárunum og var
gjarnan notaður fyrir gangbraut, enda slétt-
ur og góður í botninn. Winston Churchill,
forsætisráðherra Breta, kom í heimsókn til
íslands 1941. Meðal annars var farið með
hann að Reykjum þar sem hann stakk
fingri í hver til að mæla hita vatnsins og
hafði af gefnu tilefni traf um puttann það
sem eftir lifði dvalar hérlendis. Honum
hefur verið ekið meiri hluta leiðarinnar
meðfram hitaveitustokknum, en í ævisögu
sinni getur hann þess að hann hafi bent
íslendingum á að hagkvæmt myndi vera
að leiða heita vatnið í hús til upphitunar.
„Mér er það gleðiefni að því hefur nú verið
hrundið í framkvæmd," segir hann þar
borginmannlegur. Þar má við bæta að árið
1943 var stokkurinn fullgerður og lokaður
og vatnið farið að streyma til Reykjavíkur
- og gangvegurinn kominn ofan á hann,
fýrsti upphitaði gangstígurinn á landinu.
Stefáni vini sínum árið 1913 og ræktaði
þar fyrstu tómata sem vitað er að hafi
vaxið úr íslenskum jarðvegi.
Stefán seldi jörðina Guðmundi
Jónssyni og Bjarna Ásgeirssyni sem reistu
á Reykjum fyrsta gróðurhús á íslandi. Það
var 1923. Heiðurinn af þeirri hugmynd
gáfu þeir þó Johannesi Boeskov hinum
danska sem var vinnumaður hjá þeim á
Reykjum en hreifst af möguleikum jarð-
Reykjabændur fyrstir með
margt
Stefán B. Jónsson bóndi á Reykjum
leiddi fyrstur manna - líklega í heiminum
öllum - heitt vatn inn í bæjarhús til upp-
hitunar. Það var árið 1908. Á Reykjum var
líka gerð tilraun með ylrækt með því að
refta yfir hveralækina og leggja vermireiti
þar ofan á. Það gerði Oskar Halldórsson
(Islandsbersi) sem féklc aðstöðuna hjá
Álafosslaug; Húsið fremst á myndinni, með þrjá glugga á stafni, var fyrsta hús á íslandi sem
byggt var sem sundhöll. Það gerði Sigurjón á Álafossi á fjórða áratug liðinnar aldar. Langt er síðan
vatninu var hleypt úr lauginni og nú er þar hljóðupptökustúdíó.
hitans. Þetta fýrsta gróðurhús á Islandi var
um 20 fermetrar að stærð. Þar voru rækt- leiðina UPP á Mosfellsheiði þangað sem
uð bæði blóm og matjurtir. Boeskov fékk einu sinni stóðu Svanastaðir og voru um
svo skika úr jörðinni og reisti Blómvang, tíma veitingastaður; síðan halda margir
fyrstu gróðrarstöð á íslandi, nýbýli til þess að Leirvogsvatn heiti Svanavatn. Og enn
eins að rækta blóm og matjurtir. erum við 1 Mosfellsbæ.