Listin að lifa - 01.06.2006, Side 14
Heyskapur á Blikastaðatúninu. Trúlega situr Magnús Þorlákur
Sigsteinsson þarna við stjórn á traktornum.
ár, þar af formaður síðustu 5 árin. Já, svo var ég einn af stofn-
endum Lionsfélags Kjalarnesþings sem stóð fyrir byggingu elsta
hússins hér á Hlaðhömrum. Þetta heiðurskjal fékk ég sent frá
Alheimsreglunni á 100 ára afmælinu." Sigsteinn bendir á inn-
rammaða viðurkenningu fyrir frumherjastarfið.
„Helga fékk ótal viðurkenningar fyrir sin störf eins
og gullmerki Húsmœðrafélagasambands Sviþjóðar.
Kvenfélagasamband íslands gerði hana að heiðursfélaga. Hún
var formaður KFSÍ í 8 ár sem þótti mikill vegsauki og tímafrek
vinna, en sagði starfinu lausu um svipað leyti og við hættum
búskap og höfðum rýmri tíma.
Hvers vegna ? Þvi svaraði Helga þannig:
„Ég veit að Sigríður Thorlacius er tilbúin að taka við af mér
núna, en kannski ekki eftir fjögur ár. Formennskan er í góðum
höndum hjá Sigríði." Svona var Helga, hugsaði meira um starfið
og framtíðina, en embættisframa fyrir sjálfa sig. Hún var svo full-
komin,“ segir Sigsteinn meira við sjálfan sig.
Blikastaðahjónin eignuðust tvö börn, Magnús Þorlák, bú-
fræðikandidat frá Ási í Noregi, sem starfar hjá Bændasamtökum
Islands og Elínborgu Kristínu sem er menntuð kennari. Þau búa
bæði með fjölskyldum sínum á Blikastöðum.
Helga var vel menntuð úr Kvennaskólanum í Reykjavík og
verslunarskóla í Kaupmannahöfn. Sigsteinn segir að í Danmörku
hafi henni opnast sjóndeildarhringurinn. Sjálfur fór hann ekki út
fyrir landsteinana fyrr en síðar.
„Á seinni árum fórum við bæði til Gyðingalands, Ameríku og
Kanada. Vorum við vígslu á heimili Stephans G. Stephanssonar.
Eyjan úti fyrir Vancouver er gróðurríkasta svæði sem ég hef
komið á. Þar ilmaði allt og angaði, komst næst paradís á jörð.
Fórum líka um Norðurlöndin og Mið-Evrópu. Ég var latur að
skrifa um þessa heimshluta, en keypti hluti til minningar um
veruna á hverjum stað. Á hverjum morgni þurrka ég mér um
andlitið á handklæði sem ég keypti á fögrum stað.“
Hvað viltu segja um Mosfellssveitina sem er óðum að
breytast i stóran bce ?
„Þetta er ákaflega glæsilegt bæjarstæði. Skammt á milli fjalls
og fjöru. Stutt niður i fjöru og stutt upp í Lágafell. Mér sýnist allt
stefna í að byggðirnar vaxi saman. Reykjavík, Seltjarnarnes og
Mosfellsbær. Samruni hlýtur að eiga sér stað í næstu framtíð."
Hvað hefurðu lcert mest áþessum 101 ceviárii
„Reynsla lífsins hefur kennt mér mest, meðal annars hve
mikilsvert er að kunna að umgangast samferðafólkið."
Eitthvað sem þú vilt koma á framfceri við yngri kyn-
slóðir?
„Það er nú margt, eins og hófsemi, reglusemi, iðni og sparsemi.
Umfram allt að mennta sig vel fyrir lífið, sem er svo auðvelt nú
til dags.“
Hverju þakkarðu langlífiþitt?
„Eg ætlaði mér aldrei að verða 100 ára. Ég er ekki sterk-
byggður maður. Sjáðu bara þessi grönnu bein!“ Sigsteinn brettir
upp ermina og sýnir grannan armlegg.
„Manstu eftir Geststaðabrceðrum? (Geststaðir eru næsti bær
við Tungu í Fáskrúðsfirði). Þeir voru sérstaklega sterkbyggðir
menn, en urðu ekki langlífir. Ég held að langlífi leggist í ættir.
Jón Pálsson, langafi minn í föðurætt, varð 100 ára sem þótti sér-
stakt á þeim árum. Pabbi varð 96 ára og við systkinin höfum öll
náð háum aldri. Nú um helgina er verið að jarða yngstu systur
mína, Unni, sem var bóndakona í Borgarfirði. Þá er ég einn eftir-
lifandi af fjórtán systkinum.
Afhverju er égkominnyfir 100 ár?Sigurbjörg systir mín dó á
fermingaraldri og móðir mín syrgði hana alla ævi. Af hverju dó
hún svona ung? Af hverju er ég orðinn svona gamall? Svona lífs-
gátum getur enginn svarað. Ég hef lifað ákaflega farsælu lífi - og
er þakklátur forsjóninni fyrir það sem hún hefur úthlutað mér.
Maður verður að taka því sem að manni er rétt.
Heiðursskjal frá alheimsreglu Lionsfélaga er innrammað á hillunni hjá
Sigsteini. Skjalið fékk hann í tilefni af 100 ára afmælinu.
Trúirðu á Guð?
„Ég trúi á hið góða og almættið. Mannskepnunni er áskapað að
trúa á eitthvað. Það sýna sig öll átökin í heiminum út af trúnni."
Hvernig liturðu á dauðann ?
„Ég hef oft hugsað um hvað taki við, en þori hvorki að játa né
neita neinu um framhaldslífið. Mig langar að hitta Helgu mína,
en er reiðubúinn að taka því sem að höndum ber,“ segir þessi 101
árs unglingur í andanum.
O.Sv.B.