Listin að lifa - 01.06.2006, Side 16
Austfirskir tónlist-
arstraumar
frá bræðrunum Lárusi og
Birgi mótuðu tónlistarlífið í
Mosfellsbse
Mosfellsbær er oft nefndur kórabærinn. Hér starfa fleiri
kórar á hvert mannsbarn en í öðrum bæjum á íslandi.
Austfirskir tónlistarstraumar hafa blásið um sveitina
síðan bræðurnir Lárus og Birgir Sveinssynir ffá Norðfirði festu
hér rætur og fluttu með sér mikið tónlistarlíf.
Birgir var kennari og skólastjóri Varmárskóla í 40 ár, stofn-
aði Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og stóð ásamt öðrum að
stofnun Tónlistarskóla Mosfellsbæjar. Lárus helgaði tónlistarlíf-
inu í Mosfellsbæ allar frístundir sínar frá Sinfóníunni, æfði kóra
og kenndi á blásturshljóðfæri. Hann lést árið 2000. Birgir hætti
sem skólastjóri um aldamótin, en er enn á fullu í hliðarstarfi sínu
- að æfa Skólahljómsveit Mosfellsbæjar.
Fagurt sjónarsvið opnast þegar komið er að einbýlishúsi
hjónanna Birgis Sveinssonar og Jórunnar Arnadóttur. Esjan
er svipmeiri héðan en séð frá Reykjavík og Helgafellið skiptir
fallega litum. Hlýlegt umhverfi með miklum trjágróðri. Birgir og
Jórunn eru líka með fyrstu frumbyggjum í nýjum bæ.
Útsýnið er ekki síðra þegar sest er við „ömmuborðið að
austan" í stofunni. Yfir kaffibolla og spjalli er gaman að skynja
menningaráhrif yfir listrænu heimili, þar fléttast ættargripir
saman við klassísk húsgögn og málverk. Athygli vekja austfirskir
steinar, gömul hljóðfæri og fagrir listmunir frá Italíu.
Birgir sýnir myndir af lúðrasveit og danshljómsveit
Norðfjarðar sem þeir bræður léku í. Og minningar æskuáranna
vakna hjá austfirskri konu sem dansaði ósjaldan undir tónum
bræðranna, bergmál þess tíma þegar uppspretta skemmtanalífs-
ins kom frá fólkinu sjálfu. Fjarðarböllin voru eftirsótt, enda stór
félagslegur vettvangur unga fólksins á Austfjörðum.
„Já, ásókn var mikil í góða dansmúsik og félagslífið geysilega
öflugt. Tónlist og leiklist spruttu upp úr stúkustarfi og íþrótta-
starfsemi. Kirkjuorganistinn, Sigdór Brekkan, kenndi mörgum.
Og harmonikkan var vinsæl. Á þessum tíma voru að koma fram
yngri menn eins og Svavar Lárusson, Höskuldur Stefánsson og
fleiri. Þeir fóru í tónlistarnám og fluttu heim nýjan tón sem aðal-
lega snerist um danstónlist.
Birgir í glerskálanum við gömlu hljóðfærin sem hanga þar sem vegg-
skraut.
Segja má að tónlistarsprengja hafi orðið á Norðfirði, þegar
Haraldur Guðmundsson prentari flutti þangað 1953. Hann var
mikil driffjöður og margir byrjuðu að blása í lúðra hjá honum.
Stofnuð var danshljómsveit og lúðrasveit, svo og tónlistarskóli.
Lárus bróðir var sá fyrsti sem fór í lengra tónlistarnám. Svo vel
bjó hann að tónlistinni að heiman, að hann þurfti aðeins að læra
hluta úr vetri í Reykjavík, þá var hann tilbúinn í framhaldsnám í
Vínarborg.
Ég fór í skóla til Vestmannaeyja og lærði hjá Oddgeiri
Kristjánssyni sem tók mig í tíma heim til sín. Það var stór-
kostlegt að fá að læra hjá slíkum snillingi og öndvegismanni.
Félagslífið heima kenndi mér líka mikið. Strax á fyrsta vetri í
Kennaraskólanum fann ég, hvað ég var með góða undirstöðu-
menntun. Þjóðdansasýning var sett upp og ég kunni dansana.
Sama var að segja um íþróttir og tónmennt. Þeir stóðu sig vel
kennararnir heima.“
Hvers vegna var Mosfellssveitin fyrir valinu hjá
Austfirðingti
„Ætli það hafi ekki verið íbúðin í Brúarlandsskóla," segir Birgir
kímileitur, „þar byrjaði ég sem íþróttakennari, en tvær kennara-
íbúðir voru i húsinu. Ég útskrifaðist úr kennaraskólanum 1960 og
hingað fluttum við sama ár. Þá var hér hrein sveit, um 600 manna
byggðarlag. Reykjalundur og Álafoss voru stærstu vinnustaðirnir.
Fyrstu árin vann ég á Reykjalundi í sumarvinnu með skólakrakk-
ana við að halda umhverfinu snyrtilegu. Þá var Reykjalundur eins
og stór sveitabær, með gróðurhús og garðyrkju.
Brúarland á sér langa sögu eða frá 1923. Þetta er fyrsta
skólahúsið í sveitinni og var um leið samkomuhús Mosfellinga.
Þar var símstöðin og stöðugur straumur sveitunga um húsið.
Varmárskóli var byggður 1961-62, skammt frá bænum Varmá,
og Gagnfræðaskólinn reis skörnmu síðar. Þetta voru stórar og
rúmgóðar glæsibyggingar, ekki veitti af, því að á áttunda ára-
tugnum fór íbúum að fjölga svo um munaði. Á níunda áratugnum
voru báðir skólarnir stækkaðir með myndarlegum viðbyggingum,
en segja má að bæjaryfirvöld hafi varla haft undan að byggja nýja
skóla, svo ör er íbúafjölgunin.