Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 17

Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 17
Frá Lúðrasveit Neskaupsstaðar bárust sterkir tónlistarstraumar. Á myndinni má sjá bræðurna, Lárus og Birgi kornunga, upprennandi tónlistarmenn. Hvernig var tónlistarlífið i Mosfellssveit 1960? „Það var ekki mikið. Þá var bara kirkjukórinn hérna, starf- semi Karlakórsins Stefnis lá niðri og aðeins fáir krakkar sóttu tónlistarnám til Reykjavíkur. Ég stofnaði fljótlega skólahljóm- sveitina, enda hafði tónlistin alltaf verið áhugamál hjá mér, þótt ég liti fyrst og fremst á mig sem kennara. Lárus kemur síðan heim með fagmennskuna eftir sex ára nám í trompetleik í Vínarborg og ákvað fljótlega að setja sig hér niður. Hann fór að kenna við skólahljómsveitina og vann hér alltaf utan verkefna við Sinfóníuna. Á þjóðhátíðinni 1974 stjórnaði Lárus kór og hljómsveit á hátíðarsamkomu. Eftir það fór boltinn að rúlla. Stefnir var vak- inn úr dvala og starf hans blómstraði mjög á næstu árum. Öflugir tónlistarmenn komu úr liði karlakórsins og stofnuðu fleiri kóra eins og Álafosskórinn, Reykjalundarkórinn og Mosfellskórinn. Svo eru barnakórar í báðum skólunum, kirkjukór og Vorboðarnir, kór eldri borgara. Skólahljómsveitin er nú 42 ára. Ég er núna í hlutastarfi að æfa krakkana, en er að draga mig út, hægt og hljótt. Ég kallaði til gamlan nemanda, Daða Þór Einarsson, sem nú stýrir starfi hljóm- sveitarinnar. Það eru ekki kennarar og tónlistarmenn á hverju strái sem hafa vilja og getu til að taka að sér að stýra starfi nær 140 ungmenna. Starfslokin eru kafli út af fyrir sig og gott að geta ráðið þeim að nokkru sjálfur. Ég kaus að hætta í starfi skólastjóra Varmárskóla eftir 40 ára starf sem kennari og skólastjóri." Undirstaðan ffá Norðfirði er alltaf til staðar hjá Birgi. Hann er enn á fullu í íþróttum, söng í sextán ár í karlakórnum Stefni, en hefur aldrei haft tíma til að taka þátt í klúbbastarfi. Skólahljómsveitin verður líka alltaf hluti af lífi hans. í sumar fyr- irhugar hann sína sjöundu tónlistarferð með skólahljómsveitina til Bologna á Ítalíu. Itölsk áhrif svífa héryfir heimilinu, Birgir. „Já, það er ekki undarlegt. Ég dvaldi með fjölskylduna í tíu sumur úti á Italíu, vann þar við að taka á móti íslenskum ferða- mönnum í strandbænum Lignano. Við eigum marga góða vini á Ítalíu sem eru góðir heim að sækja. í sumar munu um 40 félagar úr Skólahljómsveitinni dvelja í vikutíma á ítölskum heimilum. Þá vikuna njótum við leiðsagnar heimamanna um borgirnar: Bologna, Parma, Flórens og Pisa, spilum einnig tónleika á þessum stöðum. I júlí kemur svo 70 manna hópur frá Italíu sem verða gestir okkar hér í Mosfellsbæ. Við munum þá kappkosta að sýna þeim bæinn okkar og eins mikið af íslandi og hægt er á vikutíma." Þú hefur líka verið fararstjóri í Mosfellsbce á sumrin. „Já, það er gaman að sýna Mosfellshæ sem fólk þekkir almennt ekki. Margir hafa sagt við mig á eftir að þeir hefðu alls ekki gert sér grein fyrir þessum fallega bæ. Fólk brunar hér í gegn á hraðri leið út úr höfuðborginni, en með tilkomu Sundabrautar minnkar umferðin í gegnum bæinn sem betur fer. Landbyggðarfólkið flytur mikið hingað, vill gjarnan setjast að í jaðarbæjum Reykjavíkur. Ég skynjaði vel fólksflutningana utan af landi á skólastjóraárunum, þegar foreldrar voru að Þarna tekur Birgir lagið fyrir Mosfellinga við brennuna eitt gamla- árskvöldið. koma með börnin í skólann. Nú er mest byggt í landi Blikastaða og Krikabyggð, og verið að undirbúa lóðir við Helgafell og Leirvogstungu. Bærinn er að byggjast upp í litlum einingum."

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.