Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 18
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í tónleikaferð.
Hvað álítur þú með áhrif tónlistar á almennt nám hjá
börnum?
„Eg efast ekki um gagn af tónlistaruppeldi. Börn í tónlistar-
námi skipuleggja og nýta sinn tíma betur. Iþróttauppeldi er oft
hampað sem allra meina bót. Það er gott í sjálfu sér, en alltof ein-
hæft. Börn verða líka að komast í snertingu við listir. Sá þáttur er
feikilega mikilvæg örvun til frekara náms.
Okkur vantar málsvara fyrir menningaruppeldi!
Uti í heimi eigum við ekki bara knattspyrnumenn. Þar eigum
við líka listafólk sem er ekki síður að skora. Sonur Höskuldar
Stefánssonar, Stefán Höskuldsson flautuleikari, spilar nú í einni
fremstu hljómsveit New York. Yngsta dóttir Lárusar, Hjördís
Elín, er að ljúka framhaldsnámi í söng, mjög efnileg söngkona.
A tónleikum Sinfóníunnar nýlega sá ég sex hljóðfæraleikara á
sviðinu sem tengdust námi hjá Skólahljómsveit Mosfellsbæjar.
Gaman að gera sér grein fyrir að allt eru þetta afsprengi tónlist-
arstraumanna frá Norðfirði fyrir hálfri öld síðan.“
Áhrif foreldranna koma vel fram í börnum Birgis og Jórunnar.
Sveinn Þórður er tónlistarkennari og Anna Björk er myndmennta-
kennari í Lágafellsskóla. Onnur dóttirin, Harpa, er uppeldisfræð-
ingur og býr með fjölskyldu sinni úti í Danmörku. Þriðju dótt-
urina misstu þau þriggja ára árið 1964.
Sumarið lofar góðu hjá Birgi og Jórunni. Tónlistarferð um
Italíu og dvöl þar. Hann tengir ekki aðeins tónlistarstrauma frá
Austfjörðum við Mosfellsbæ, en sækir þá líka til Italíu.
O.Sv.B.
Alltaf hlýtt
Alltaf fjör
EDEH
HVERAGERÐI