Listin að lifa - 01.06.2006, Page 25
Kartöflusalat
með kryddjurtum og jógúrt
500 g smáar kartöflur (soðnar)
2 msk sítrónusafi
2 dl létt jógúrt
1 hvítlauksrif (pressað)
21/2 dl ný basilika (söxuð)
1V4 dl ný steinselja (söxuð)
Svartur pipar, nýmalaður eða annað krydd
Ristaðar furuhnetur
1. Flysjið heitar kartöflumar og skiptið þeim í tvo til fjóra hluta
eftir stærð. Hellið sítrónusafanum yfir þær og haldið heitum.
2. Blandið jógúrt, hvítlauk og kryddjurtum saman við volgar
kartöflurnar. Kælið. Stráið ristuðum furuhnetum yfir
salatið um leið og það er borið fram með salat- og spf-
natblöðum ásamt kirsuberjatómötum sem skornir eru í
tvennt og grófu brauði.
Fljötlegt síldarsalat
2 flök sýrð síld
1 epli í bitum
2 litlar, soðnar kartöflur í bitum
5 sneiðar sýrðar rauðrófur í bitum
1 lítil sýrð gúrka smátt skorin eða
1- 2 msk Sweet relish pickles
Sósa:
ldl sýrður rjómi 18%
1 tsk fínt rifinn laukur
2- 3 msk rauðrófusafi
V4 -V2 tsk (gult) sinnep
salt og pipar eftir bragði
Harðsoðið egg
Gróft brauð
Skerið síldarflökin í bita eða lengjur.
Búið til sósuna. Blandið siðan öllu saman eða blandið sal-
atið og berið sósuna með salatinu. Skreytið salatið með
eggjabátum og borðið með grófu brauði.
Aðsendar uppskriftir:
,pld Kentucky“ valhnetukaka
frá Kristínu Ó. í Reykjavík
75 g smjörlíki
1 3/4 dl sykur
1 tsk vanillusykur
2egg
4 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 1/3 dl mjólk
100 g valhnetukjarnar
1. Hrærið smjörlíkið vel með sykri og vanillusykri.
2. Bætið eggjunum saman við einu og einu f senn.
3. Hrærið hveiti ásamt lyftidufti og mjólk til skiptis út í
og að lokum söxuðum valhnetum.
4. Bakið deigið í smurðu jólakökumóti við 175° um eina
klukkustund.
5. Kæbð kökuna og geymið til næsta dags. Skiptið henni í tvö
til þrjú lög.
6. Leggið saman með um 150 g af aprikósumauki.
Glasúr:
Bræðið 100 g af Síríus-suðusúkkulaði með 1 msk af vatni í
vatnsbaði við mjög lítinn hita. Hrærið 1 msk af smjöri og 1 msk
af flórsykri saman við þegar súkkulaðið er bráðnað og smyrjið
strax yfir kökuna. Skreytið með valhnetum. Þetta er kaka sem
mistekst aldrei í bakstri, bragðast vel, venst vel, geymist vel og
eignast gjarnan aðdáendur.
Epla- eða rabarbarakaka
frá Kristínu J. í Reykjavík
(stór uppskrift)
5 græn epli eða 500 g rabarbari
3 msk sykur
2 tsk kartöflumjöl
3-4 msk aprikósumauk (ef epli eru notuð)
Kókosdeig:
3egg
180 g sykur
6 msk brætt smjör
210 g kókosmjöl
1. Skerið rabarbarann í 4 sm bita eða flysjið eplin og skerið
þau í bita. Látið í smurt ofnmót og stráið sykri með kartöflu-
mjöli yfir. Ef epli eru notuð er aprikósumaukið hrært með
vökva, ef það er of þykkt og blandað saman við eplin.
2. Þeytið egg og sykur vel saman. Blandið bræddu smjöri og
kókosmjöli saman við og setjið í jafnt lag yfir rabarbarann
eða eplin. Bakið strax í ofni við 200 0 hita í um 25 mínútur
eða þar til kakan er gulbrún. Berið kökuna fram volga með
þeyttum rjóma eða ís.
Ég hlakka til að heyra frá ykkur.
Btyndís Steinþórsdóttir
hússtjómarkennari