Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 26

Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 26
Framtíðarsýn í umönnun aldraðra Ólafur Þór Gunnarsson, lyf- og öldrunarlæknir, telur skort á hjúkrunarrýmum á íslandi vera meðal annars fólginn í misjafnri dreifingu þeirra milli sveitarfélaga. Hann tiltekur þrjá meginþætti sem gætu breytt þessu til betri vegar - og segir brýna þörf á nýrri hugmyndafræði gagnvart eldra fólki. Málefhi aldraðra hafa verið mikið í þjóðmálaumræðunni undanfarnar vikur og mánuði, og kannski ekki að undra, kosningar í nánd, og atkvæði eldra fólks og aðstandenda þeirra geta vigtað þungt í vor. Er skortur á hjúkrunarrýmum? Mikið hefur verið rætt um skort á hjúkrunarrýmum og einnig kvartað undan úrræðaleysi í heimahjúkrun og heimaþjónustu. En hver er vandinn í raun? Er það rétt að á Islandi vanti fleiri hjúkrunarrými, á sama tíma og það er staðreynd að hér eru fleiri rými á hverja 1000 íbúa en á nokkru hinna Norðurlandanna? Hluti vandans liggur klárlega í því að dreifing hjúkrunarrýma milli sveitarfélaga og svæða endurspeglar ekki þörfina. A sumum svæðum eru mun fieiri hjúkrunarrými en ætti að þurfa, en á öðrum svæðum alltof fá. Á Vesturlandi eru t.d. til hjúkrunar- eða dvalarrými fyrir 60% þeirra sem eru 80 ára og eldri, en í Kópavogi eru aðeins rými fyrir 20% af sama aldurshópi. Þannig má segja að 80 ára Kópavogsbúi á jafn góðan möguleika á að fá Söludeild TM Árangurstengd kvöldvinna Tryggingamiðstöóin auglýsir eftir þjónustulipru fólki til starfa við úthringingar. Vinnutími er þriðjudaga - fimmtudaga frá kl. 18:00 - 21:00. Greitt er tímakaup fyrir hverja unna klukkustund auk árangurstengdra greiðslna. Umsækjendur skulu vera að lágmarki 20 ára en einstaklingar um og yfir fimmtugt eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Áhugasamir eru beðnir að senda umsóknir til I Tryggingamiðstöðvarinnar, Aðalstræti 6,101 Reykjavík eða | á tölvupóstfangið solveig@tmhf.is I Nánari upplýsingar veitir Sólveig Hjaltadóttir, | deildarstjóri söludeildar TM, s: 515 2000. TRYCGINGAMIÐSTÖÐIN / S(mi 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is stofnanapláss og 68 ára Vestlendingur. Ástæður þessa liggja ann- ars vegar í mannfjöldaþróun sem ekki var fyllilega fyrirséð, hins vegar mismunandi áherslum á þjónustu í þéttbýli og dreifbýli. Ekki má heldur gleyma því að áherslur sveitarfélaga í öldrunar- þjónustu eru mismunandi. Hvernig á að bregðast við? Lítum á nokkrar staðreyndir. Á höfuðborgarsvæðinu, Kjalarnesi í vestri til Hafnarfjarðar í suðri, eru rétt tæp 1500 hjúkrunar- rými fýrir aldraða, auk um 350 dvalarrýma. Meðaldvalarlengd í hverju hjúkrunarrými er tæp 3 ár. Þannig losna á svæðinu um 500 hjúkrunarpláss á ári, eða rúmlega 40 á mánuði. Á biðlistum eftir hjúkrunarrými á svæðinu eru um 400 manns, svo að biðin eftir vistun er að meðaltali um 9—10 mánuðir. Þess ber þó að geta að staðan er mjög misjöfn eftir sveitarfélögum á svæðinu, að meðaltali eru 3,2 80 ára og eldri um hvert dvalar-og hjúkrunar- rými, en í Kópavogi eru 6,5 um hvert rými. Á hverjum tíma bíða á bráðasjúkradeildum og Landakoti á milli 80-100 manns eftir vistun og komast ekki heim. Spurningin er því, hvað er til ráða til að stytta biðtíma fólks eftir nauðsynlegu úrræði, en jafnframt að gera biðina, sem virðist óhjákvæmileg, bærilega. Svarið virðist liggja í breytingu þriggja meginþátta í fyrsta lagi er afar mikilvægt að efla og samþætta heimahjúkrun og heimaþjónustu. í dag getur einstaklingur í Reykjavík gert ráð fyrir að geta fengið 2-3 innlit frá heimahjúkrun á dag og álíka tíðni frá heimaþjónustu. Reyndin er þó sú að flestir fá ekki nema 3-4 vitjanir samtals. Dagurinn á hjúkrunarheimili kostar um þessar mundir 14-20 þúsund, misjafnt eftir heimilum. Ársdvöl kostar því að jafnaði tæpar 6 milljónir. Það þarf engan reikn- ingssnilling til að sjá að fyrir þá peninga má fá töluvert mikla þjónustu frá heimahjúkrun og þjónustu. Líklega er hægt að ráða marga starfsmenn í heimahjúkrun eða þjónustu fyrir hver 10 daggjöld sem sparast, auk þess sem má ætla að þeim einstak- lingum sem þiggja þjónustuna þyki það mikilvægt að geta fengið fullnægjandi þjónustu heim. Ef við tryggjum fullnægjandi þjón- ustu heim er einnig líklegt að meðaldvalartími á hjúkrunarbeim- ili styttist, þ.e. fólk færi þangað ekki ótímabært vegna skorts á þjónustu heim. I öðru lagi er löngu tímabært að sett verði í lög að stofnanir, sem fá daggjöld frá ríkinu, veiti spítölunum forgang á þau rými sem losna. Það hlýtur að mega ætla að þeir sem á hverjum tíma “fest- ast” inni á spítala í kjölfar bráðaveikinda, séu að jafnaði þeir sem eru í mestri þörf fýrir hjúkrunarrými. Með þessu fyrirkomulagi mætti gera ráð fyrir að þær “stíflur” sem myndast á spítölunum myndu losna á fáeinum mánuðum. Annar meginkosmr við þetta kerfi væri einnig að flæði í gegnum endurhæfingarrými spítalanna yrði betra, og þeir sjúklingar sem ættu möguleika á að ná heilsu

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.