Listin að lifa - 01.06.2006, Page 27
með endurhæfingu fengju tækifæri til þess tímanlega, en ekki eins
og oft er nú eftir margra mánaða bið á bráðadeildum, og hafa þá
kannski misst af því tækifæri sem þeir höfðu til að ná sér.
Samanlögð áhrif þessara tveggja þátta ættu að verða að meðal-
dvalartími á hjúkrunarheimilum ætti að styttast, sjúklingar kæmu
ekki þangað fyrr en þeir þyrftu raunverulega á því að halda, og
ekki fyrr en fullreynt hefði verið með endurhæfingu og heima-
þjónustu að gera þeim kleift að búa heima. Til einföldunar má
segja að ef við náum að stytta meðaldvalartíma á hjúkrunarheim-
ili í 2 ár, þá fjölgar um 250 pláss sem losna á ári, eða sem nemur
nýbyggingu 3ja meðalstórra hjúkrunarheimila. Þetta myndi aftur
gera að verkum að meðalbiðtími eftir hjúkrunarrými, eftir að sú
þörf væri orðin ljós, myndi styttast verulega. Ef viðkomandi færi
í gegnum bráðadeild og endurhæfingu ætti biðin í raun ekki að
vera lengri en nokkrar vikur i mesta lagi. Með aukinni áherslu
á heimaþjónustu og endurhæfingu er sjálfræði hins aldraða yfir
eigin afdrifum og lífsstíl einnig haldið lengur.
Þriðja atriðið liggur svo í því að flytja stýringu allra þjónustuþátta
öldrunarþjónustunnar til sveitarfélaganna. Það er í sjálfu sér ekki
forsenda fyrir því að fyrri tveir liðirnir geti gengið, en myndi auð-
velda skipulagningu og færa hana nær þjónustuþeganum. Hvort
sem þetta væri gert með stökum þjónustusamningum milli ríkis
og sveitarfélags, eða með flutningi alls málaflokksins til sveitar-
félaganna myndi það hafa afar jákvæð áhrif á þjónustuþegana að
þurfa einungis að leita til eins aðila til að fá þau úrræði sem við-
komandi þyrfti á að halda. Það er augljóst að með flutningi mála-
flokksins þarf að fylgja fjármagn frá ríkinu, í samræmi við þann
kostnað sem af hlýst. Því hefur verið haldið fram að sameining
sveitarfélaga væri forsenda fyrir því að hægt væri að flytja mála-
flokkinn, en að mínu mati er það ekki rétt. Á svipaðan hátt og
sveitarfélög hafa sameinast um rekstur skóla, hafna, slökkviliða
og fleiri þátta almannaþjónustu gætu þau hæglega sameinast um
þennan þátt, óháð sameiningu.
Ný hugsun tímabær
Það er löngu tímabært að við tökum upp aðra hugsun þegar við
ræðum málefni eldra fólks. Aldraðir eru einstaklingar sem eru
eins fjölbreytilegir og aðrir þjóðfélagshópar, með mismunandi
væntingar, íanganir og þarfir. Við þurfum að temja okkur að
mæta eldra fólki sem einstaklingum og miða þjónustuna við það.
Forræðishyggja þarf að víkja fyrir sjálfræði - og engar ákvarðanir
er snerta þennan hóp einstakíinga á að taka án samráðs við þá.
Við vinnslu greinar var stuðst við upplýsingar frá heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneyti, Hagstofu Islands og ffá félagsþjón-
ustum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, auk upplýsinga
af heimasíðum hjúkrunarheimilanna.
Ólafur Pór Gunnarsson, lyf- og öldrunarlaknir á Landspítala -
Háskólasjúkrahúsi og Sjúkrahúsi og Heilsugceslustöð Akraness
Endurhæfingin gerði kraftaverk!
Sagan af þeim níræða: Hann kom í endurhæfingu í hjólastól, en
var svo hress eftir 5 vikna þjálfun - að hann er tekinn aftur til
við uppáhaldsiðjuna sína.
(Góðar sögur úr danskrifélagsþjónustu 2001-2002)
ÆuUkislan
Sérverslun
með kvensilfur
Bjóðum eldri nuuisturgerðir
Onnumst allar
viðgerðir, hreinsun
og gyllingar.
Allar upplýsingar
um hefð og gerðir
búninga eru
veittar á staðnum.
4^ (Cullkistati
Frakkastíg 10 - Sími: 551 3160